Morgunblaðið - 31.01.2008, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 31.01.2008, Blaðsíða 17
Útivistar- og sælkerapara- dísin Bormio Bormio stendur við ræturPasso del Stelvio, fjall-vegar sem tengir samanBormio og Trafoi í Ve- nosta-dalnum. Leiðin er nú hluti af Stelvio-þjóðgarðinum sem nær yfir 400.000 ferkílómetra svæði. Á sumr- in er starfræktur skíðaskóli í Passo di Stelvio, því þar er yfirleitt hægt að skíða allt sumarið í 2.757 m hæð. Í Bormio og nágrannaskíðasvæð- unum, S. Caterina, Valdidentro, Valdisotto, Valfurva og Livigno (toll- frítt smáríki sem er eins konar ítalskt Tíbet) er að finna brekkur við allra hæfi, en hæsti tindurinn á Bor- mio-svæðinu er Cima Bianca (3.012 m). Í Bormio eru reglulega haldin mikilvæg skíðamót, nú síðast World Cup í bruni karla í desember sl. Snjóbretti njóta líka sífellt meiri vin- sælda og í Bormio hefur verið útbúið sérstakt svæði fyrir brettafólk. Stutt er svo að skella sér til St. Moritz (sem er í 58 km fjarlægð) vilji maður prófa svissnesku brekkurnar. Einstök náttúrufegurð er á Bor- mio-svæðinu og útsýnið úr brekkum og að ekki sé nú talað um af hæstu tindum ólýsanlega fallegt á góðum degi. Valtellinabúar eru einnig ein- staklega viðmótsþýtt og greiðvikið fólk. Eftir að lyftum er lokað í eftirmið- daginn er upplagt að skella sér í eina af heilsulindunum á svæðinu og slaka á. Sérstaklega skal þá mælt með Bagni Vecchi eða gömlu böð- unum sem eru örfáa kílómetra fyrir ofan bæinn. Í Ölpunum fyrir ofan Bormio eru heitavatnsuppsprettur sem getið er í heimildum allt frá 1. öld f. Kr. og vatnið hefur löngum verið talið hafa lækningarmátt. Heimildir eru til um böð á staðnum frá tímum Rómverja og frá miðöld- um og eru böðin þar enn í dag (vitan- lega í endurbættri mynd). Þar sem talið er að rómversku böðin hafi ver- ið er nú miðaldakirkja og inni í hvelf- ingum hennar eru tvö jarðböð. En í miðaldaheimildum segir frá munk- um sem bjuggu í litlum húsum í ná- grenni við kirkjuna og ráku þar eins konar heilsulind. Strax um 1300 höfðu böðin getið sér gott orð og sjálfur Leonardo da Vinci sótti böðin árið 1493. Fyrir ofan kirkjuböðin er svo útilaug frá miðöldum. Gaman er að fylgjast með baðgestum klæddum hvítum hettusloppum ganga á milli baðstaðanna og í fjarlægð mætti halda að hér væru miðalda- munkarnir á ferð. Heilmikil starf- semi er nú í kringum böðin og alls kyns gufuböð, leirböð, nudd- meðferðir o.fl. í boði. Veitingastaðir eru í böðunum (og einnig hótel) og á öðrum þeirra (Caffé) er hægt að fá vel útilátið hlaðborð (á 14 evrur eða 18 evrur, vilji maður geta gengið í borðið ótakmarkað þann daginn) og snætt á sloppnum á milli vatns- og gufubaðaheimsókna. Pizzoccheri og djúpsteiktar eplaskífur milli ferða Valtellina er ekki síður sælkera- paradís en náttúru- og heilsupara- dís. Þaðan kemur t.a.m. hið eina sanna bresaola, sem er saltaður nautavöðvi sem látinn er hanga í marga mánuði og er svo borðaður í örþunnum sneiðum. Mikil eplarækt er í héraðinu og meðfram þjóðveginum er víða stillt út til sölu eplum, víni og fleiri land- búnaðarafurðum. Hafi maður áhuga á að kaupa slíkt góðgæti, stöðvar maður bílinn og bóndinn kemur hlaupandi niður á veg til aðstoðar og gefur gjarnan vínsopa að smakka eða eplasafa. Sá sem sækir héraðið heim skyldi ekki láta eftirfarandi sérrétti fram hjá sér fara: steiktu ostakúlurnar malfatti, pastaréttinn pizzoccheri, hjartarsteik (brasato di cervo) með maísmjölkökunni po- lenta, eða djúpsteiktu eplaskífurnar frittelle di mele með vanillusósu. Fullt er af veitingastöðum og krám í brekkunum þar sem upplagt er að fá sér hádegismat milli ferða. Matseðill héraðsins er afar freist- andi og kaloríuríkur, sem er vel við hæfi þegar skíðað er og það er auð- velt að falla fyrir freistingunum sem þar bjóðast. Í hádeginu skal þó hafa í huga að ef skíða á líka í eftirmiðdaginn þá getur það reynst erfitt ef einum bjór eða eplaskífuskammti er ofaukið! Einn eplaskífuskammtur nægir vel sem eftirréttur fyrir tvo. Frábær matseðill er t.d. á Le Chalet barnum (er að finna á miðri leið úr brekku sem liggur úr vinstri stólalyftunni í Bormio, sú sem liggur upp á tindinn Cimino 2.636 m ). Ljósmynd/ Hanna Friðriksdóttir Skíðaparadís Útsýnið úr brekkunum í nágrenni Bormio er einstaklega fallegt á góðum degi. Bagni Vecchi Gott er að slaka á í Gömlu böðunum eftir skíðaferð dagsins. Heimildir eru til um böð á staðnum frá tímum Rómverja og frá miðöldum. Sannkallað hnossgæti Djúp- steiktar eplaskífur með vanillusósu. Slökun Í Ölpunum fyrir ofan Bor- mio eru heitavatnsuppsprettur. Í hjarta Valtellinahéraðs liggur bærinn Bormio í 1.225 metra hæð. Svæðið þar í kring, segir Hanna Friðriksdóttir, er ein mesta náttúruparadís Ítalíu. Skipulagðar rútuferðir eru frá Orio al Serio-flugvellinum í Ber- gamo (mánud., fimmtud. til laug- ard.) og Milano Malpensa flugvell- inum (laugard.) til Valtellina. Einfalt er að keyra til Bormio frá Mílanó: Akið hraðveginn (Super- strada) Milano-Lecco til Colico og beygið þar út á afrein S.S. 38 sem heitir Sondrio-Bormio allt til Bor- mio. www.bormio.com www.livigno.eu www.santacaterina.it www.bagnidibormio.it www.parks.it/parco.nazio- nale.stelvio |fimmtudagur|31. 1. 2008| mbl.is daglegtlíf Nánar er hægt að fræðast um þá siði sem fylgja gerð græna tesins á http:// www.urasenke.or.jp Eftir Guðrúnu Hálfdánardóttur guna@mbl.is Japanska sendiráðið bauð hópi fólks til tedrykkju í vik- unni þar sem Urasenke- tesiðameistari frá Japan útbjó grænt te fyrir hópinn. Löng hefð er fyrir drykkju á grænu tei í Japan og kynnti Zabosai Soshisu Sen XVI, stórmeistari Urasenke- stofnunarinnar, Íslendingum hvernig staðið er að gerð drykkjarins, sem þykir allra meina bót. Sagan segir að teplantan hafi fyrst fundist í fjallahér- uðum í Asíu og verið flutt þaðan til Kína. Fyrstu heim- ildir um að grænt te hafi ver- ið notað í lækningaskyni eru frá sjöundu öld. Vinsældir þess jukust jafnt og þétt og í stað þess að vera lækninga- jurt var það drukkið vegna bragðsins meðal Kínverja. Japanar kynntust teinu hjá Kínverjum á tíundu öld en allt fram á tólftu öld var það einungis drukkið af aðlinum og í sérstökum athöfnum búddamunka. En eftir að jap- anskur almenningur komst upp á bragðið hefur vegur græns tes vaxið og hefur út- breiðslan náð víða um heim. Græna teið sem Zabosai Soshisu Sen XVI bauð upp á var borið fram eftir kúnst- arinnar reglum. Flestir gest- anna voru að smakka teið í fyrsta skipti og létu vel af enda ekki slæmt að eiga von á því að verða mun unglegri að lokinni drykkju. Árvakur/Frikki Boðið til tedrykkju Zabosai Soshisu Sen XVI, stórmeistari Urasenke stofnunarinnar lagar grænt te eftir öllum kúnstarinnar reglum. Japanskt teboð Gömul hefð Japanar kynntust teinu hjá Kínverjum á 10. öld en allt fram á 12. öld var það einungis drukkið af aðlinum og í sérstökum athöfnum búddamunka. Páskaferðir til Madeira Gestamóttakan og Ferða- klúbbur Levada Joe bjóða upp á tvær páskaferðir til Madeira vorið 2008. Fyrri ferðin er farin dagana 16.-30. mars en sú seinni 20.-30. mars Mikilfenglegt landslag, hitabeltisgróður og milt veð- urfar gerir Madeira að eft- irsóttum stað meðal nátt- úruunnenda. Boðið er upp á skipulagðar skoðunarferðir, en einnig geta gestir kynnt sér góða golfvelli og skemmtilegar gönguleiðir í fjöllunum allt um kring. Fararstjóri er Jón Krist- leifsson en hann hefur verið fararstjóri á Madeira til fjölda ára og er staðháttum vel kunnur. vítt og breitt Gestamóttakan ehf. Sími: 551 1730 Netfang: gestamottak- an@gestamottakan.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.