Morgunblaðið - 31.01.2008, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 31.01.2008, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ÁFALL FYRIR KAUPÞING, EN … Kaupþing hefur komizt betur frákaupum á hollenzkum bankaen gera mátti ráð fyrir. Það er að vísu töluvert áfall fyrir Kaupþing að verða að hverfa frá þessum kaup- um en augljóslega hefði það verið verri kostur að þurfa að standa við þau. Það er ljóst að Fjármálaeftirlitið ís- lenzka hefur átt mikinn þátt í að koma Kaupþingi og raunar íslenzka fjár- málakerfinu öllu út úr þessum vanda. Bréf, sem Fjármálaeftirlitið sendi að- ilum þessara viðskipta fyrir nokkrum dögum, hefur gert þeim ljóst, að ef þeir næðu ekki samningum sín í milli um að hverfa frá þessum samningum mundi Fjármálaeftirlitið beita því valdi, sem það hefur, til þess að stöðva viðskiptin. Þótt þeirra úrslitakosta sé hvergi getið í bréfinu samkvæmt því, sem fram kemur hjá Hreiðari Má Sig- urðssyni, forstjóra Kaupþings, í Morgunblaðinu í dag. Íslenzka fjármálakerfið var meira og minna allt komið í vanda vegna áforma Kaupþings um kaup á hol- lenzka bankanum. Að mati sérfróðra manna hafa þessi fyrirhuguðu kaup átt mikinn þátt í því háa skuldatrygg- ingaálagi, sem verið hefur á skulda- bréfum ekki bara Kaupþings heldur allra íslenzku bankanna, þótt það hafi verið langhæst á bréfum Kaupþings. Í kjölfar yfirlýsingar Kaupþings í gær- morgun er gert ráð fyrir að þetta álag lækki verulega, sem auðveldi bönkun- um að sækja starfsfé út á hinn alþjóð- lega markað á viðunandi kjörum. Kaupþing hefur verið byggt upp af mikilli dirfsku. Þetta er í fyrsta sinn, sem fyrirætlanir forsvarsmanna fyr- irtækisins ganga ekki upp. Vafalaust mun það hafa áhrif á hve mikla áhættu þeir verða tilbúnir til að taka í framtíðinni. Í kjölfar yfirlýsingar Kaupþings var gert ráð fyrir að lifnaði yfir hluta- bréfamarkaðnum hér. Niðurstaðan varð þó sú, að hann lækkaði fremur en hækkaði. Ein af skýringunum er álits- gerð frá matsfyrirtækinu Moody’s, sem var heldur neikvæð fyrir Lands- bankann og Glitni og setti þá á bekk, sem Kaupþing hefur um skeið setið á. Forsvarsmenn bankanna eiga erfitt með að skilja þá ákvörðun matsfyr- irtækisins, sem þó er ólíklegt að hafi langvarandi áhrif fyrir þá. Með yfirlýsingu Kaupþings má bú- ast við að meira jafnvægi skapist á markaðnum hér. Þó má ekki gleyma því, að undirrót þess mikla falls, sem hefur orðið á Kauphöll Íslands, er fyrst og fremst þróunin á alþjóðlegum fjármálamörkuðum síðustu sex mán- uði. Þótt seðlabankar beggja vegna Atlantshafsins hafi margt gert til þess að draga úr þjáningum fjármála- markaðanna fer ekki á milli mála, að þau vandamál hafa ekki verið leyst og líklegra en ekki að það taki allt þetta ár að greiða úr þeim. Í gær lækkuðu markaðir um allan heim. Ekki er ólík- legt að markaðir hækki og lækki á víxl um skeið. Og að svo verði alla vega fram eftir árinu. LEIÐTOGAR Í ÞRÖNGRI STÖÐU Þegar Hamas-hreyfingin rauf gatá múrinn við landamæri Egypta- lands til þess að Palestínumenn á Gaza-svæðinu gætu náð sér í nauð- þurftir hleypti hún loftinu úr tilraun Ísraela til að magna upp ólgu með því að einangra svæðið. Ísraelar höfðu vonast til þess að almenningur myndi í þrengingunum snúast gegn Hamas, en það gekk ekki eftir og það mun ekki auðvelda Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, framhald- ið. Þetta þýðir einnig að enn um sinn mun Fatah-hreyfingin, sem undir forustu Mahmouds Abbasar fer með völd á Vesturbakkanum, ekki ganga til samninga með fullt umboð, hann ræður aðeins yfir 60% Palestínu- manna. Leiðtogar Ísraela og Palestínu- manna eru því hvorugur í sterkri stöðu, en þeir eru þó mun líklegri en forverar þeirra til þess að geta kom- ið á friði fyrir botni Miðjarðarhafs heldur en forverar þeirra. Ísraelski rithöfundurinn Amos Elon skrifar grein í nýjasta tölublað tímaritsins New York Review of Books þar sem hann færir rök að því að þessir tveir leiðtogar hafi ekki sama farangur og forverar þeirra og aðra sýn á vand- ann fyrir botni Miðjarðarhafs en þeir. Elon bendir á að Ariel Sharon hafi ávallt sagt að hann hafi engan viðsemjanda í röðum Palestínu- manna. Olmert sjái hins vegar við- semjanda í Abbasi. Olmert sjái Ísr- aelsríki ekki fyrir sér sem uppfyllingu sýnar úr Biblíunni, held- ur veraldlegt nútímaríki með öflugu efnahagslífi sem sé tengt beint inn í heimsviðskiptin. Sharon hafi talað um hina löngu og erfiðu baráttu, Olmert segi að Ísraelar séu „þreyttir á stríði, þreyttir á að vera sigurveg- arar“. Olmert sé fyrsti leiðtogi Ísr- aels sem hafi sýnt að hann hafi sam- úð með Palestínumönnum og skilji harmleik þeirra. Elon bendir á að eigi þessum tveimur mönnum að takast það sem forverum þeirra mistókst verði þeir að styðja hvor annan. Olmert þarf að stöðva útþenslu landtökubyggða Ísr- aela á hernumdu svæðunum og binda enda á daglegar ofsóknir og niður- lægingu Palestínumanna til þess að Abbas styrkist í sessi og fái notið einhvers stuðnings Palestínumanna í friðarsamningum. Abbas þarf að stöðva hryðjuverk gegn Ísraelum til þess að staða Olmerts styrkist. Þessir tveir menn eru lykillinn að friðarsamningum fyrir botni Mið- jarðarhafs. Þeir geta styrkt hvor annan og þar með styrkt eigin stöðu til að semja en hvorugur er í nógu sterkri stöðu til að gera það upp á sitt eindæmi. Þar hefur George Bush Bandaríkjaforseti tækifæri til standa við orð sín í ferðalaginu um Mið- Austurlönd fyrr í þessum mánuði og hjálpa þessum aðþrengdu leiðtogum að knýja fram langþráðan frið. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is Annar tónn hefur verið ífréttum af íslenskum út-rásarfyrirtækjum ogbönkum undanfarið en Íslendingar hafa mátt venjast und- anfarin ár. Tilkynnt var í gær að Kaupþing hefði hætt við yfirtöku hollenska bankans NIBC, sem annars hefði orðið stærsta yfirtaka í sögu íslensks viðskiptalífs. Gert hefur verið samkomulag við Baug- ur Group um að tískuvöruversl- anakeðjan Whistles gangi út úr fyrirtækinu Mosaic Fashions og hefur verðandi forstjóri keðjunnar keypt 20% hlut í henni. Þá seldi Dagsbrún Media danska fjárfest- inum Morten Lund 51% hlut í frí- blaðinu Nyhedsavisen fyrir skemmstu. Í ljósi frétta sem þess- ara var leitað viðbragða forstöðu- manna íslenskra banka og útrás- arfyrirtækja og þeir inntir álits á ákvörðun Kaupþings og stöðu út- rásarinnar. Markaðir tóku vel við sér fyrri hluta dags í gær og tengdist það líklega ákvörðun Kaupþings. Eftir að alþjóðlega matsfyrirtækið Moody’s tilkynnti að lánshæfis- matseinkunn bæði Glitnis og Landsbankans yrði tekin til skoð- unar, með mögulega lækkun í huga, tóku þeir hins vegar að lækka á ný. Almennt heyrðist sá tónn á þeim viðmælendum sem ekki er vitnað til hér undir nafni að ákvörðunin væri nokkur léttir, að hún kæmi Kaupþingi til góða til skamms tíma en gæti skaðað orðspor bankans við hugsanleg stórviðskipti í fram- tíðinni. Einnig heyrðust þær radd- ir að meira yrði talað um samein- ingar íslenskra banka til að lækka kostnað á komandi ári. Ákvörðunin lækkar áhættu- stig íslenska fjármálageirans „Ég vil ekki tjá mig um einstak- ar aðgerðir varðandi keppinauta, en vil þó fagna því fyrir hönd markaðarins að niðurstöðu er náð í þessu máli og óvissu eytt. Almennt get ég þó sagt að aðgerð sem lækk- ar áhættustig íslenska fjármála- geirans við núverandi aðstæður er jákvætt skref fyrir markaðinn í heild. Þetta er hægt að segja án þess að gagnrýna einn eða neinn,“ segir Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans. Tímasetningu kveður hann al- mennt ráða miklu þegar ákvarð- anir í viðskiptum eru metnar. „Kaup á bankaeignum, sem eru metnar þannig að þær muni auka áhættustig viðkomandi íslensks banka, geta haft neikvæð áhrif á markaðinn í heild, sérstaklega þegar markaðsaðstæður til endur- fjármögnunar versna eins hratt og raun hefur verið. Það ræður vænt- anlega miklu um ákvörðun aðila hversu hratt aðstæður hafa breyst frá því viðskiptin voru upphaflega ákveðin,“ segir hann. Enn fremur segir Halldór jafnstór mál og þetta, fyrir banka í litlu hagkerfi, geta haft áhrif á mat á öllu hag- kerfinu. Strangari skilyrði munu ein- kenna viðskipti í framhaldinu Aðstæður til fjármögnunar eru almennt erfiðari nú og hafa vafa- laust áhrif á getuna til uppbygg- ingar bæði hér á landi og erlendis. Halldór segir íslensku útrásina ekki að stöðvast en töluvert muni hægja á hér sem annars staðar. Skilyrði banka fyrir mögulegum yfirtökum verði væntanlega strangari í árferði eins og nú er en oft áður. „Árið 2008 verður ár þar sem fyrirtæki einbeita sér að því að ná vel utan um það sem áður hefur verið gert. Áfram munu koma upp einhver tækifæri. Landsbankinn hefur til að mynda sýnt áhuga á að kaupa bankastarfsemi breska fjár- málafyrirtækisins Close Brothers. Forsenda þess að Landsbankinn hafi áhuga á þeim viðskiptum er að þau lækki heildaráhættustig í starfsemi bankans, styrki kjarna- starfsemina og styrki lausafjár- stöðu samstæðunnar eftir kaupin.“ Skilyrði sem þessi segir Halldór líklegt að einkenni viðskip hver verða á þessu ári. „V svo á að Landsbankinn h tækifæri í stöðunni sem því það eru ekki margir sem hafa eins sterka eigi lausafjárstöðu í dag og bankinn,“ segir Halldór að Bankar fari sér hægar beiti sér að grunnrekst Lárus Welding, forstjór segir ákvörðun Kaupþin samlega í ljósi aðstæðna hana jákvæða. Hann seg telja að ákvörðunin verði fyrir bankann til lengri t almennt skilji menn þ stöðu sem uppi er á fjá mörkuðum, ekki sé óalg svona aðstæður að stór detti upp fyrir. Og Lárus segir ákvörðu þings ekki merki um að ú að stöðvast. „Nei ég he Markaðir hafa verið mjög ir nánast öllum bönkum tíma, en svo hafa markað ur gjörbreyst á undanförn uðum. Nú er réttara að m sér hægt og einbeiti sér f sínum grunnrekstri. Það e ná góðri dreifingu eigna á sem er gott. Nú höldum vi ur höndum og metum stö eins. Þetta umhverfi mu fela í sér einhver tækifæri Afurð almennra aðstæ Róbert Wessman, Actavis, segir ákvörðun þings að mörgu leyti Íslenska útrá að stöðvast?  Segja ákvörðun Kaupþings jákvæða fyrir bankann sj heild  Hægist á útrásinni á þessu ári  „Höldum að ok Halldór J. Kristjánsson Lárus Welding Ásgeir Margeirs Róbert Wessman Í HNOTSKURN »Almennt segja viðmælendurákvörðun Kaupþings skyn- samlega miðað við núverandi aðstæður, hún eyði óvissu og lækki áhættustig íslenska fjár- málamarkaðarins mikið. »Stjórnendur virðast ekki lítasvo á að fréttir undanfar- inna vikna bendi til þess að ís- lenska útrásin sé að stöðvast, en telja að hægja muni á henni á næstu mánuðum. »Árið 2008 er líklegt að mörgfyrirtæki einbeiti sér að grunnrekstri sínum og innri uppbyggingu. Bankar muni halda að sér höndum í lánveit- ingum og setja strangari skil- yrði fyrir yfirtökum. Morgunbl Viðskipti Íslensk útrásarfyrirtæki eru sum hver með umsvif í Dan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.