Morgunblaðið - 31.01.2008, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 31.01.2008, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 29 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9- 16.30 , jóga kl. 9, botsía kl. 10, út- skurður og myndlist kl. 13, Grandabíó- vídeóstund kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43 | Bingó kl. 13.30, hárgreiðsla, böðun, handavinna, jóga, morgunkaffi/dagblöð, myndlist, fóta- aðgerð, bókband, kaffi. 5. febrúar er Revía í Iðnó kl. 14. Söngperlur úr ís- lenskum revíum, rútuferð frá Ból- staðarhlíð kl. 13.10. Miðaverð 2.500 kr., rútugjald 500 kr. Skráning í s. 535-2760. Dalbraut 18-20 | Lýður og harm- onikkan kl. 14, guðsþjónusta annan hvern fimmtudag kl. 15.10. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids spilað kl. 13 Félag kennara á eftirlaunum | Ekkó- kórinn æfir í Kennaraháskólanum kl. 17. Nýjum röddum tekið fagnandi, bókmenntahópurinn hittist í Kenn- arahúsinu kl. 14. Ekki þarf að skrá sig fyrirfram, bara mæta. Félagsheimilið Gjábakki | Ramma- vefnaður í handavinnustofu, leikfimi kl. 9, málm- og silfursmíði kl. 9.30, bókband og róleg leikfimi kl. 13, bingó kl. 13,45, tveir dönskuhópar kl. 16 og 17, myndlistarhópur kl. 16.30. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handavinna kl. 9, ganga kl. 10, hádeg- isverður, handavinna og brids kl. 13, jóga kl. 8.15. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Bókbandsklúbbur kl. 10, gönguhópur frá Jónshúsi kl. 11, vatnsleikfimi kl. 12.40, karlaleikfimi kl. 13, botsía kl. 14, handavinnuhorn og námskeið í búta- saumi kl. 13, námskeið í glerbræðslu og leir kl. 13. Skrifstofa félags eldri borgara í Garðabæ er opin kl. 13-15. Félagsstarf Gerðubergs | Helgistund umsj. sr. Guðmundur Karl Ágústsson kl. 10.30, frá hádegi vinnustofur opn- ar, m.a. myndlist og perlusaumur, á morgun kl. 10.30 er leikfimi (frítt) í ÍR heimilinu v/Skógarsel, heitt á könn- unni og dægurmálaspjall, s. 575- 7720. Furugerði 1, félagsstarf | Alm. handavinna, smíðar og útskurður. kl. 9, samverustund með handa- vinnuívafi kl. 13.15, kaffi kl. 15. Hraunbær 105 | Kaffi, spjall, blöðin kl. 9, handavinna og postulínsmálun kl. 9, líkamsrækt í Árbæjarþreki kl. 9, boccia kl. 10, leikfimi kl. 11, hádeg- ismatur, félagsvist kl. 14, kaffi. Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, leikfimi kl. 11.20, tréskurður kl. 13, bingó kl. 13.30. Hvassaleiti 56-58 | Opin handa- vinnustofa kl. 9-16 án leiðbeinanda, böðun fyrir hádegi, hádegisverður, félagsvist kl. 13.30, kaffiveitingar í hléi. Hæðargarður 31 | Tölvuleiðbeiningar í dag og á fimmtud. kl. 13.15. Þorra- blót 1. feb. Veislustjóri: Guðni Ágústs- son. Lögreglukórinn syngur o.fl. Miðar seldir í eldhúsinu. Uppl 568-3132. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun, föstudag, er sundleikfimi í Graf- arvogssundlaug kl. 9.30, og Lista- smiðjan opin kl. 13-16. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögu- stund og spjall kl. 9.45, botsía karla- flokkur kl. 10.30, handverks- og bóka- stofa og postulínsmálun kl. 13, botsía kvennaflokkur kl. 13, kaffiveitingar. Laugarból, Íþr.hús Ármann/Þróttur Laugardal | Leikfimi fyrir eldri borg- ara mánud. kl. 12. Þriðjud. kl. 11. Fimm- tud. kl. 11. Norðurbrún 1 | Smíðastofan opin kl. 9-16, handavinnustofa opin kl. 9-16, m/ leiðb. kl. 9-12, leirlist kl. 9-12, botsía kl. 10, hugmynda- og listastofa kl. 13-16. Hárgreiðslustofa 588-1288. Fótaaðgerðarstofa 568-3838. Sjálfsbjörg | Skák kl. 19, í félagsheim- ili Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæð- inu, Hátúni 12. Vesturgata 7 | Hárgreiðsla, fótaað- gerðir og aðstoð v/böðun, botsía, handavinna, spænska framhald, hádegisverður, kóræfing, leikfimi og kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, bókband kl. 9, morgunstund kl. 9.30, botsía kl. 10, fleiri þátttakendur vantar. upplestur kl. 12.30, handa- vinnustofan opin, frjáls spilamennska kl. 13. Kirkjustarf Akureyrarkirkja Kyrrðar- og fyrir- bænastund kl. 12. Léttur hádegis- verður á vægu verði eftir stundina. Áskirkja | Söngstund með organista kl. 14, bænastund á ensku kl. 16.30, klúbbur 8-9 ára kl. 17 og TTT-starfið kl. 18. Efni fundanna er „Uppáhalds- lagið“ allir koma með sitt uppáhalds- lag. Breiðholtskirkja | Trú og stjórnmál, biblíulestur í umsjá dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar kl. 20. Digraneskirkja | Foreldramorgunn kl. 10, leikfimi ÍAK kl. 11, bænastund kl. 12. 6-9 ára starf kl. 16-17. Meme junior kl. 19.30-21.30. www.digraneskirkja.is. Dómkirkjan | Opið hús í safnaðar- heimilinu Lækjargötu 14a kl. 14-16, kaffi og spjall, kvöldkirkjan er opin kl. 20-22. Bænastundir kl. 20.30 og 21.30, prestur á staðnum. Dómkirkjan | Kyrrðarstund fyrir ungt fólk í Dómkirkjunni kl. 18. ÆSKR, mið- borgarstarfið og Foreldrahús halda utan um stundina, léttar veitingar á kirkjulofti að athöfn lokinni. Grafarvogskirkja | Foreldramorgnar kl. 10-12, kaffi, djús og brauð fyrir börnin. TTT fyrir 10-12 ára kl. 15-16 í Víkurskóla. Grensáskirkja | Hversdagmessa með Þorvaldi Halldórssyni kl. 18-19, bænin, orð Guðs og altarisganga eru uppi- staða messunnar, hversdagsmessan einkennist af kyrrð og einfaldleika. Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund kl. 12, orgelleikur, íhugun og léttur máls- verður í safnaðarsal á eftir. Háteigskirkja | Íhugað í söng, bæn og lestur Guðs orðs kl. 20. Fyrirbæn og smurning, fyrir þá sem þess óska. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Bænastund í kaffisal kirkjunnar kl. 20. KFUM og KFUK | Fundur kl. 20 á Holtavegi 28. Þættir úr sögu Mar- teins Lúters í myndum. Sr. Bjarni Þór Bjarnason hefur umsjón með efni og hugleiðingu, kaffi eftir fundinn. Allir karlmenn eru velkomnir. Laugarneskirkja | Kyrrðarstund í hádegi og kl. 12.30, er léttur máls- verður í boði í safnaðarheimilinu, helgistund kl. 15, í félagsaðstöðunni á Dalbraut 18 20. Umsjón hefur sókn- arprestur. Adrenalín gegn rasisma kl. 17. (9.-10. bekkur). Umsjón hefur sr. Hildur Eir. Neskirkja Foreldramorgunn kl. 10. Agi og uppeldi ungbarna. Hjúkrunar- fræðingur frá heilsugæslunni á Sel- tjarnarnesi kemur í heimsókn og fjallar um efnið. Vídalínskirkja Garðasókn | Kyrrðar- og fyrirbænastund kl. 21. Tekið er við bænarefnum af prestum og djákna, kaffi í lok stundarinnar. Vídalínskirkja Garðasókn | Kyrrðar- og fyrirbænastund kl. 22, tekið við bænarefnum af prestum og djákna, kaffi í lok stundarinnar. 70ára afmæli. Sjötugurer í dag, 31. janúar, Kristján Ágústsson frá Hólm- um, Stóragerði 7, Hvolsvelli. Kristján er að heiman á af- mælisdaginn. 50ára afmæli. Fimm-tugur verður 3. febr- úar næstkomandi Kristján Guðmundsson, rekstrarhag- fræðingur og útibússtjóri hjá Landsbanka Íslands. Af því tilefni býður hann fjölskyldu, ættingjum, vinum og sam- starfsfólki til móttöku í Golf- skálanum Grafarholti laugar- daginn 2. febrúar kl. 17-19. dagbók Í dag er fimmtudagur 31. janúar, 31. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Ég lít svo á, að ekki séu þjáningar þessa tíma neitt í samanburði við þá dýrð, sem oss mun opinberast. (Rm. 8, 18.) Félag íslenskra fræða stendurfyrir rannsóknarkvöldi íkvöld, fimmtudagskvöld. Þarmun Jón G. Friðjónsson, pró- fessor í íslensku, flytja erindið Það skal vanda sem lengi á að standa: Um biblíu- þýðinguna nýju. Ný biblíuþýðing kom út á síðasta ári og er Jón þeirrar skoðunar að töluverð- ir ágallar séu á verkinu: „Biblíurann- sóknum fleygir fram og mjög eðlilegt að textar trúarrita eins og Biblíunnar séu í stöðugri endurskoðun og endurnýjun,“ segir hann. „Biblían sem við höfðum áð- ur, frá 1981, byggði að stofninum til á þýðingu frá 1912. Útgáfan var því lið- lega 100 ára gömul og mjög eðlilegt að endurskoða málfar og framsetningu í samræmi við þær breytingar sem orðið hafa á tungumálinu.“ Jón bætir því hins vegar við að þó að eðlilegt sé að Biblían sé í stöðugri þróun verði að gera mjög ríkar kröfur um vinnubrögð. „Að mínu mati hefur ekk- ert eitt verk haft jafnmikil áhrif í menn- ingarsögu okkar og er hornsteinn í sögu íslenskrar tungu. Því verður hver kyn- slóð sem endurskoðar Biblíuna að leggja allan sinn metnað í verkið og inna eins vel af hendi og mögulegt er.“ Í erindi sínu mun Jón rekja nokkur dæmi úr nýju þýðingunni og gera betur grein fyrir afstöðu sinni: „Meðal annars eru villur í málfari og framsetningu og ágallar á stíl og myndmáli. Um er að ræða villur sem sjaldséðar eru í vönd- uðum bókum og ættu allra síst að rata í Biblíuna,“ segir Jón. „Einnig virðast margar breytingar á eldri texta hafa verið gerðar eingöngu af geðþótta en eðlilegt er að gera þá grundvallarkröfu að texta af þessu tagi sé ekki hnikað nema ástæða liggi að baki hverri breyt- ingu.“ Jafnframt því að benda á vankanta á þýðingunni reynir Jón að leita útskýr- inga á hví fór sem fór: „Ekki er hægt að sakast við einstaka þýðendur sem tóku þátt í verkinu, heldur frekar að skort hafi skýra ábyrgð á heildarútkomunni og misskilnings hafi gætt í verkaskipt- ingu.“ Á slóðinni http://islensk.fraedi.is eru nánari upplýsingar. Fyrirlesturinn í kvöld verður fluttur í húsi Sögufélags- ins, Fischersundi 3, og hefst kl. 20.30. Bókmenntir | Fyrirlestur haldinn í húsi Sögufélagsins í kvöld kl. 20.30 Þýðing skoðuð í þaula  Jón G. Frið- jónsson fæddist í Reykjavík 1944. Hann lauk BA- prófi í íslensku og sögu frá HÍ 1969, cand.mag. prófi í íslensku máli og málfræði 1972. Að loknu námi var Jón við störf í Þýskalandi í þrjú ár. Jón varð lektor við HÍ 1975, dósent 1982 og prófessor frá 1994. Hann hlaut árið 1993 íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fræðirita fyrir Merg málsins. Eiginkona Jóns er Herdís Svavars- dóttir hjúkrunarfræðingur og eiga þau þrjá syni. Fyrirlestrar og fundir Maður lifandi | Hláturkætiklúbburinn verð- ur með opinn hláturjógatíma 2. febrúar kl. 10.30. Ásta Valdimarsdóttir og Kristján Helgason leiðbeina. Aðgangur 1.000 kr. Boðið er upp á opna hláturjógatíma í Mað- ur lifandi fyrsta laugardag í hverjum mán- uði í vetur. Ættfræðifélagið | Sr. Gísli Kolbeins heldur erindi um Skáld-Rósu 31. janúar kl. 20.30 í sal Þjóðskjalasafnsins, þriðju hæð. ÞESSI skemmtilega ljós- mynd var tekin í Amman í Jórdaníu í gær af þremur fullorðnum karlmönnum í snjókasti. Snjókoma er sjaldséð þar í landi og greinilegt að fullorðnir jafnt sem börn fagna henni. Snjókast í Jórdaníu Reuters FRÉTTIR ÖSSUR Skarphéðinsson iðnaðar- ráðherra efnir til kynningar í Brussel í Belgíu á morgun, föstu- dag, mögulegri nýtingu jarðhita í Evrópu. Ráðstefnan er haldin í boði And- ris Piebalgs, orkumálastjóra í fram- kvæmdanefnd Evrópusambandsins, og er liður í kynningarviku í tilefni nýrra markmiða í lofts- lagsmálum og notkun endur- nýjanlegra orku- gjafa. Andris Pie- balgs og Össur Skarphéðinsson flytja ávörp á ráðstefnunni, Ólafur G. Flóvenz, forstjóri ÍSOR, segir frá jarðhitaverkefnum á Ís- landi, Guðmundur Ómar Frið- leifsson, yfirjarðfræðingur hjá Hitaveitu Suðurnesja, greinir frá Íslenska djúpborunarverkefninu, Hólmfríður Sigurðardóttir, verk- efnastjóri hjá Orkuveitu Reykjavík- ur fjallar um kolefnisförgun í orku- framleiðslu úr jarðhita, Lárus Elíasson, forstjóri ENEX, gefur yfirlit um möguleika til nýtingar jarðvarma í Evrópu og Ásgeir Mar- geirsson, forstjóri Geysir Green Energy, talar um stefnu Evrópu- landa í jarðhitamálum, hvað þar hafi áunnist og hvers sé að vænta í framtíðinni. Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Brussel, lýkur ráðstefnunni með ávarpi. Gífurlega mikla ónýtta orku er að finna í Evrópu Á ráðstefnunni verður einnig kynnt ný skýrsla um nýtingu og nýtingar- möguleika jarðhita í Evrópu sem unnin hefur verið af Enex og Geysir Green Energy. Í sameiginlegu bréfi sem Evrópu- samband jarðfræðinga og Evr- ópska jarðhitaráðið sendu Andris Piebalgs 15. janúar sl. er bent á að gífurlega mikla ónýtta jarðorku sé að finna í Evrópu sem sérstaklega hagstætt sé að nýta til hitunar og kælingar en einnig til raforkufram- leiðslu. Telja samtökin að nýting jarðhita í Evrópu geti sparað mikla fjármuni og leitt samtímis til veru- legs samdráttar í losun kolefna. Þess vegna sé afar brýnt að í til- skipun Evrópusambandsins um endurnýjanlega orkugjafa sé lögð áhersla á að kynna jarðvarma til sögu á áhrifaríkan hátt. Kynnir Evr- ópusamband- inu nýtingu á jarðhita Össur Skarphéðinsson F Y R IR F Ó LK S E M G E R IR K R Ö F U R KRINGLUNNI / SMÁRALIND Allt að 70% útsala

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.