Morgunblaðið - 01.10.2008, Side 39

Morgunblaðið - 01.10.2008, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2008 39 THE Appeal er fyrsta lagadrama John Grisham í þrjú ár, það síðasta var The Last Juror. Þar sem farsæll metsöluhöfundur á í hlut kemur ekki á óvart að The Appeal þaut upp vinsældalista víða um heim, hefur til dæmis setið ofarlega á erlenda metsölulista Eymunds- son undanfarnar vikur. Efnaverksmiðjan Krane er dæmd til greiðslu hárra skaðabóta vegna losunar úrgangs- efna í vatnsból en mengað vatnið leiddi til veikinda og dauða fjölda manna, þar á með- al barna. Forsvarsmenn fyrirtækisins áfrýja dómnum en láta ekki þar við sitja heldur leggja allt í sölurnar til að hafa áhrif á úrskurð áfrýjunarréttar og þar er einskis svifist til að ná markmiðinu. Efnið er verulega áhugavert en spennu skortir í frásögnina. Það er eins og Grisham treysti um of á söguefni sitt og telji að það eitt og sér muni halda lesandanum við efn- ið. Vissulega eru þarna dapurlegar lýsingar á örlögum saklauss fólks en samt skortir verulega nánd. Lesandinn er allan tímann ögn fjarlægur persónum sem gerir að verk- um að hann á erfitt með að lifa sig inn í frá- sögnina. Grisham, sem kann að mörgu leyti til verka, virðist ekki hafa nennt að einbeita sér að því að draga upp sterkar myndir af persónum heldur fremur kosið að einbeita sér að frásögn um pólitíska spillingu. Hann er gagnrýninn á bandaríska pólitík og hrossakaup í dómskerfinu. Honum er nokk- uð mikið niðri fyrir og telur sig greinilega eiga erindi en hefði átt að vanda sig betur. Hann gleymir til dæmis spennunni og end- irinn er furðulega slappur. The Appeal er því bók sem er ekki nema rétt í meðallagi. Grisham getur gert miklu betur. Barist í dómssal The Appeal, skáldsaga eftir John Grisham. Arrow Books gefur út. 501 bls. ób. Kolbrún Bergþórsdóttir BÆKUR» METSÖLULISTAR» 1. The Story of Edgar Sawtelle - David Wroblewski 2. The Other Queen - Philippa Gregory 3. Faefever - Karen Marie Moning 4. The Girl With the Dragon Tattoo - Stieg Larsson 5. The Guernsey Literary and Po- tato Peel Pie Society - Mary Ann Shaffer & Annie Barrows 6. The Book of Lies - Brad Meltzer 7. The Host - Stephenie Meyer 8. Anathem - Neal Stephenson 9. American Wife - Curtis Sittenfeld 10. Indignation - Philip Roth. New York Times 1. A Most Wanted Man - John Le Carre 2. A Thousand Splendid Suns Khaled Hosseini 3. Boy in the Striped Pyjamas - John Boyne 4. The Reluctant Fundamentalist - Mohsin Hamid 5. The Kite Runner - Khaled Hosseini 6. The Road Home - Rose Tremain 7. The Forgotten Garden - Kate Morton 8. The Strange Case of Dr. Jekyll and Mr. Hyde - Robert Mighall 9. The Book Thief - Markus Zusak 10. The Ghost - Robert Harris Waterstone’s 1. Girl With the Dragon Tattoo - Stieg Larsson 2. Garden of Evil - David Hewson 3. When Day Breaks - Mary Jane Clark 4. Book of the Dead - Patricia Cornwell 5. Whole Truth - David Baldacci 6. Appeal - John Grisham 7. Damnation Falls - Edward Wright 8. Dark of the Moon - John Sandford 9. Amazing Grace - Danielle Steel 10. Critical - Robin Cook Eymundsson Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is EKKI er gott að segja hvað veld- ur, en undanfarin ár hefur vart verið þverfótað fyrir „listabók- um“ allskonar: 1001 bók sem maður verður að lesa fyrir dauð- ann, 100 staðir til að heimsækja áður en maður geispar golunni, 1001 plata sem ekki má missa af o.s.frv. Hugsanlega eru þetta eft- irhreytur aldamótanna eða birt- ingarmynd þess hve frítími er af skornum skammti; til að nýta tímann er best að treysta á lista. Þeir sem fengið hafa nóg af listum geta sótt sér fróun í einum listanum til en að þessu sinni lista yfir allt það sem maður á ekki að gera áður en gengið er fyrir ætternisstapa. Að því er kemur fram í eftirmála bók- arinnar er listinn byggður á öðr- um listum (listalistabók) og þá þannig að Jordison hefur tekið allar heimskulegustu uppá- stungurnar um það hvernig drepa eigi tímann síðustu æviár- in. Ekki borða skít Íslendingum þykir væntanlega einna forvitnilegast að heyra að í röðinni er sú hvatning að menn láti algerlega eiga sig að éta há- karl sem verkaður sé upp á ís- lenskan máta (númer 14 í röð- inni). Jordison lýsir því af nokkurri íþrótt hvernig hákarlinn er verkaður, látinn „rotna og úldna“ og síðan því hvernig hans sé neytt með áherslu á að hafa við höndina ískalt brennivín til að deyfa bragðlaukana. Hann rifjar upp þau orð Anthonys Bourdains, matreiðslumeistarans þekkta, sem segir að hákarl sé „það lang- versta, ógeðslegasta og hræðileg- asta“ sem hann hafi bragðað um ævina, sem sé fast að orði kveðið í ljósi þess að Bourdain hafi eitt sinn neytt kóbraslöngugalls í sjónvarpsþætti sínum. Eins hafi hörkutólið Gordon Ramsay rétt verið búið að renna niður há- karlsbita í sjónvarpsþætti sínum er það kastaði upp með látum. Upptalningin í bókinni er óneitanlega hugmyndarík, til að mynda ætti maður ekki að gera sér ferð til sjá Monu Lisu í Lo- uvre (53), ekki að lesa Ulysses eftir James Joyce (39) og alls ekki að læra á ukulele (52). Okto- berfest (102), sem stendur nú í Bæjaralandi, er ein af þeim há- tíðum sem betra er að láta eiga sig og eins San Fermín í Pamp- lona (nautahlaupið fræga) (77). Áður er getið um hákarl, en það er sitthvað annað sem maður á ekki að láta inn fyrir varirnar, til að mynda rósakál (39), fugu (jap- anskur fiskur) (89) og styrju- hrogn (kavíar) (75) og alls ekki drekka Kopi Luvak kaffi (35), sem unnið sé úr skógarmarða- skít; kapítalisminn í hnotskurn: viðskiptakerfi sem hefur það markmið eitt að selja bjánum skít á hæsta fáanlega verði. Sod That! 103 things not to do before you die eftir Sam Jordi- son. Orion gefur út. 213 bls. Forvitnilegar bækur: Er ekki nóg komið af listum? Láttu þetta ógert: Varúð Ekki fallhlífarstökk, sund með hákörlum eða glóandi kol. Þú færð 5 % endurgreitt í SmárabíóSími 564 0000 www.laugarasbio.is Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum Sýnd kl. 8 og 10 Sýnd kl. 6 SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI eeee - Ó.H.T, Rás 2 eee - L.I.B, Topp5.is/FBL Sýnd kl. 6 M Y N D O G H L J Ó Ð -S.V., MBL Troddu þessu í pípuna og reyktu það! Troddu þessu í pípuna og reyktu það! -T.S.K., 24 STUNDIR „ÁN EFA BESTA MYND APATOW-HÓPSINSTIL ÞESSA.“ - H.J., MBL „Í HÓPI BESTU GAMANMYNDA ÁRSINS.“ -L.I.B.,TOPP5.IS/FBL „... LANGFYNDNASTA MYND SEM ÉG HEF SÉÐ Í LENGRITÍMA...“ - DÓRI DNA, DV -T.S.K., 24 STUNDIR - H.J., MBL -L.I.B.,TOPP5.IS/FBL - DÓRI DNA, DV FRAMTÍÐAR SPENNUTRYLLIR Í ANDA BLADE RUNNER LUKKU LÁKI ER MÆTTUR AFTUR Í SKEMMTILEGRI MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Tekjuhæsta mynd allra tíma á Íslandi! HÖRKU HASAR Burn After Reading kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 16 ára Burn After Reading kl. 5:45 - 8 - 10:15 LÚXUS Pineapple Express kl. 5:30 D - 8 D - 10:30 D B.i. 16 ára Step Brothers kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 12 ára Mirrors kl. 10:30 B.i. 16 ára Mamma Mia kl. 5:30 LEYFÐ Grísirnir þrír kl. 3:45 LEYFÐ Lukku Láki kl. 4 LEYFD -bara lúxus Sími 553 2075 Sýnd kl. 6, 8 og 10 Sýnd kl. 8 og 10:15 - H.J., MBL -T.S.K., 24 STUNDIR SÝND Í SMÁRABÍÓI eeee - Ó.H.T, Rás 2 eee - L.I.B, Topp5.is/FBL Tekjuhæsta mynd allra tíma á Íslandi! SÝND SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á ar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum! S.V. MBL LUKKU LÁKI ER MÆTTUR AFTUR Í SKEMMTILEGRI MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.