Morgunblaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2008 41 / SELFOSSI/ KEFLAVÍK/ AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA! - B.S., FBL - Þ.Þ., D.V.- 24 STUNDIR - S.V., MBL- Ó.H.T., RÁS 2 VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA HÖRKU-DANSMYND MEÐ HINNI SJÓÐHEITU MARY ELIZABETH WINSTEAD SÝND Í ÁLFABAKKA EIN FLOTTASTA ÆVITÝRAMYND ÁRSINS MEÐ ÍSLENSKU LEIKKONUNNI ANÍTU BRIEM Í EINU AF AÐALHLUTVERKUNUM. SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI Þegar Charlie Bartlett talar þá hlusta allir! -TOMMI - KVIKMYNDIR.IS S.V. - MORGUNBLAÐIÐ SÝND Í KRINGLUNNI Frábær gamanmynd frá framleiðendum Sideways. DENNIS QUAID, SARAH JESSICA PARKER, ELLEN PAGE, OG THOMAS HADEN CHURCH - H.G.G., POPPLAND -TOMMI, KVIKMYNDIR.IS - S.V. MORGUNBLAÐIÐ SÝND Á SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA WILD CHILD kl. 6 - 8 LEYFÐ GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ CHARLIE BARTLETT kl. 8 B.i. 12 ára WILD CHILD kl. 8 - 10:10 LEYFÐ STEP BROTHERS kl. 8 B.i. 7 ára MAKE IT HAPPEN kl. 10:10 B.i. 16 ára MAKE IT HAPPEN kl. 8 - 10:10 LEYFÐ STEP BROTHERS kl. 8 B.i. 16 ára MIRRORS kl. 10:10 B.i. 16 ára SÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSISÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSI Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Búdapest 16. október frá kr. 59.990 Heimsferðir bjóða frábært sértilboð á allra síðustu sætunum í fjögurra nátta helgarferð til Búdapest 16. október. Bjóðum ótrúlegt sértilboð á gistingu á Hotel Novotel Centrum sem er gott og mjög vel staðsett fjögurra stjörnu hótel. Búdapest er ein fegursta borg Evrópu og haustið er einstakur tími til að heimsækja borgina. Fararstjórar Heimsferða gjörþekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heillandi menningu. Búdapest býður einstakt mannlíf, menningu og skemmtun að ógleymdri getrisni Ungverja auk frábærra veitinga- og skemmtistaða. Helgarferð á einstökum tíma - Aðeins 19 sæti! Verð kr. 59.990 - helgarferð Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi í 4 nætur á Hotel Novotel Centrum **** með morgunmat. Sértilboð 16. okt. Aukagjald fyrir einbýli kr. 15.000. Ótrúlegt sértilboð Frábær gisting Hotel Novotel Centrum * * * * Þótt ótrúlegt megi virðast stytt-ist nú óðfluga í enn ein jólin,sem koma eftir rétt rúma 80 daga. Einn fylgifiskur jólanna hér á landi er hið mikla jólaplötuflóð, sem líkt og jólabókaflóðið skellur á í október og nóvember ár hvert. Margir af stærstu og vinsælustu tón- listarmönnum landsins eru með plöt- ur í bígerð, og því eiga tónlistarunn- endur gott í vændum. En hvaða plötur verða vinsæl- astar í pakkana þessi jólin? Þar eru margir tilkallaðir, en, eins og venju- lega, fáir útvaldir.    Páll Óskar er vinsælasti tónlist-armaður landsins – það er að segja á Íslandi. Safnplata frá kapp- anum er væntanleg eftir réttan mán- uð, en hún heitir Silfursafnið og verður tvöföld, auk þess sem henni fylgir mynddiskur með mynd- böndum, tónleikum, sjónvarps- framkomum o.fl. Platan markar fimmtán ára afmæli fyrstu sólóplötu Palla, Stuð, og mun því innihalda lög allt frá „Ljúfa líf“ og „TF-Stuð“ til „Allt fyrir ástina“ og „Internatio- nal“. Ef að líkum lætur verður Silf- ursafnið vinsælasta platan þessi jól- in, og jafnvel sú langvinsælasta.    Nýtt safn frá Sálinni, Hér erdraumurinn, kemur í verslanir innan skamms. Um gríðarlega veg- lega útgáfu er að ræða, og verður hægt að velja um þrjá mismunandi pakka; sjö diska lúxuspakka í tak- mörkuðu upplagi með fjórum hljóm- diskum og þremur mynddiskum, þriggja hljómdiska safn, og loks tveggja mynddiska safn. Fyrr á þessu ári sendi Sálin frá sér glæsilega öskju með öllum plöt- um sveitarinnar frá upphafi, og seld- ist hún mjög vel. Hugsanlegt er að askjan hafi mettað Sálar-markaðinn að einhverju leyti, en hitt er annað mál að Sálin á sér gríðarlega marga aðdáendur sem kaupa allt sem sveit- in sendir frá sér. Það er því engin hætta á öðru en að safnið seljist vel.    Nýdönsk hefur unnið hörðumhöndum að nýrri plötu sem nú er tilbúin. Platan hefur hlotið nafnið Turninn, og er hún væntanleg í verslanir á allra næstu dögum. Ný- dönsk er einhver ástsælasta hljóm- sveit landsins og að öðrum sveitum ólöstuðum er hún sú íslenska sveit sem tekst hvað best að brúa kyn- slóðabilin. Turninn verður því án efa í fjölmörgum jólapökkum hjá fólki á aldrinum frá 15 til 65.    Þá er önnur plata Sprengjuhall-arinnar væntanleg. Sveitin sló eftirminnilega í gegn á síðasta ári með fyrstu plötu sinni – Tímunum okkar. Fjölmargar sveitir hafa lent í vandræðum með að fylgja eftir vin- sælli fyrstu plötu, en Sprengjuhöllin stenst þá pressu án efa. Líkt og Ný- dönsk höfðar sveitin til allra aldurs- hópa, auk þess sem vinalegt nafn nýju plötunnar, Bestu kveðjur, skemmir ekki fyrir. Án efa ein af vinsælustu plötum þessara jóla.    Hljómsveitin Motion Boys sendirfrá sér sína fyrstu plötu núna í október, en hún heitir Hang On. Í stuttu máli er platan stórskemmtileg og sérlega fersk, og munu lög á borð við „Hold Me Closer to Your Heart“ og „Steal Your Love“ eflaust hljóma mikið á öldum ljósvakans á næst- unni. Það er því líklegt að Motion Boys verði „spútnik-sveit“ þessara jóla, þótt hún muni kannski ekki selja alveg eins margar plötur og þeir flytjendur sem áður hafa verið nefndir.    Meðal annarra flytjenda semsenda frá sér plötur sem munu án efa njóta mikilla vinsælda um þessi jól má nefna Ladda, Jeff Who?, KK, Baggalút, Lay Low, Bubba Morthens og Stórsveit Reykjavíkur, Hinn íslenzka Þursa- flokk og Caput og fleiri og fleiri. Þá má ekki gleyma þeim plötum sem þegar eru komnar út – til dæmis plötu Emilíönu Torrini, Me and Armini, sem er þegar farin að rok- seljast.    Það er því ljóst að Íslendingareiga flott tónlistarjól í vændum. Góða skemmtun! Haldið ykkur fast AF LISTUM Jóhann Bjarni Kolbeinsson »Ef að líkum læturverður Silfursafnið vinsælasta platan þessi jólin, og jafnvel sú lang- vinsælasta. Motion Boys Hugsanleg „spútnik-hljómsveit“ þessara jóla. AUK þeirra sem nefndir eru í pistl- inum hér til hliðar má nefna eft- irtalda flytjendur sem allir hafa staðfest útgáfu fyrir þessi jól: Dr. Spock, Vax, Steed Lord, Bryndís Harðardóttir, Shogun, Skakkam- anage, Slugs, Ske, Steini, The Vik- ing Giant Show og Guðrún Gunn- arsdóttir. Þá hefur orðrómur verið á kreiki um nýjar plötur frá Björgvini Halldórssyni og Ragnheiði Gröndal, auk hljómsveitarinnar FM Belfast. Ekkert hefur þó enn fengist staðfest í þeim efnum. Fleiri útgáfur Væntanlegir Dr. Spock.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.