Skinfaxi - 01.04.1962, Blaðsíða 3
BJARNI M. GÍSLASON:
JT
a
íslandi
I.
Blöðin hafa að undanförnu rætt talsvert
um það, að byggður verði lýðháskóli í Skál-
holti, og hef ég þar lagt nokkur orð til mál-
anna í Morgunblaðinu og Tímanum. T þessu
sambandi er vert að benda á skilmerkilega
greinargerð eftir prófessor Jóhann Hann-
esson í Morgunblaðinu 14. og 15. júní 1962.
Nú getur verið, að einhverjum finnist lýð-
háskólamálið slitni úr sambandi við áður-
greindar umræður, ef ég í staðinn fyrir
„Lýðháskóli í Skálholti" nota hugtakið
„Lýðháskóli á lslandi“. En eftir samræður
við ýmsa menn, sem hafa áhuga fyrir þessu
máli, hefur sú hugsun sótt meira og meira
að mér, að það yrði kannski minni hætta á
því, að stéttvísar dyggðir settu rugling á
málið, ef sönnunargildi þess fyrir íslenzku
þjóðina væri ekki beinlínis bundið við end-
Urreisn Skálholts.
Það gefur talsverða hugmynd um menn-
ingarlegan seinagang hærri skóla víðs veg-
ar um heim, að farið er að setja á stofn
sálfræðilegar rannsóknir í sambandi við
prófskólakerfið til að kanna sjálfstæði
nemendanna. Nýlega kom bandarískur pró-
fessor að nafni Stanley Milgram frá Yale-
háskólanum til Oslo til að gera tilraunir á
stúdentunum þar. Og niðurstaðan varð hin
sama og alls staðar annars staðar, að sér-
fræðslustappið í skólunum ali mestmegnis
upp ósjálfstæða menn, sem elti fjöldann, en
hafi enga sjálfstæða, persónulega skoðun.
Og svo sagði hinn lærði prófessor, að fram-
Bjarni M. Gíslason.
tíð lýðræðisins í vestrænum löndum væri
í voða stödd, ef ekki yrðu stofnaðir skólar,
sem flyttu þróttmikinn boðskap til að
vekja unglingana til vitundar á verðmæt-
um lífsins og sérstaklega á sínu eigin lífi.
En það mikið voru hinir norsku stúdentar
bundnir af skóla- og kennsluvenjum próf-
skólanna, að aðeins einn gat sagt prófess-
ornum frá því, að þannig skólar hefðu
starfað á Norðurlöndum í meira en 100 ár
og að tilveruréttur þeirra væri nú að vekja
athygli heimsins. Þegar hann gat tekið
þannig til orða var það vegna þess, að
hann vissi að verja átti doktorsritgerð um
hugsjónamanninn Grundtvig við Osló há-
s K I N F A X I
3