Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1950, Page 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1950, Page 18
og þetta með Bill, vesalinginn. Mér verður oft undarlega innanbrjósts, þegar ég lít á ykkur, piltar mínir, sé ykkur arka um ánægða og á- hyggjulausa, og vita um alla þá hræðilegu at- burði, sem bíða ykkar. Stundum rennur mér kalt kalt vatn milli skinns og hörunds“. „Hræðilegu atburði, sem bíða okkar“? segir Charlie og glápir. „Já“, segir kokkurinn og kinkar kolli. „Ég hef aldrei verið á skipi, þar sem aðrir eins lán- leysingjar hafa verið samankomnir. Aldrei. Það eru tveir vesalingar, sem verða liðin lík innan hálfs árs, þeir sitja hér hlægjandi og masandi rétt eins og þeir ættu eftir að verða níræðir. Þakkið ykkar sæla, að ykkur skuli ekki dreyma aðra eins drauma“. „Hverjir — hverjir eru þessir tveir, kokksi“? segir Charlie eftir litla þögn. „Það er sama, Charlie", segir kokkurinn í dapurlegum tón; „Það væri engum fyrir góðu að segja frá því. Ekkert fær breytt því“. „Gefðu okkur einhverja vísbendingu“, segir Charlie. „Jæja, ég get sagt ykkur svo mikið“, segir kokkurinn eftir að hafa setið með höfuðið milli handanna,djúpt hugsandi; ,,að annar er næst- um því ljótasti maður um borð, en hinn ekki“. Auðvitað komu þessar upplýsingar ekki að miklu haldi, en þær ollu háværum deilum, og Ijótasti maður um borð, í stað þess að hann hefði átt að vera þakklátur, hegðaði sér líkar villidýri en kristinni manneskju, þegar honum var bent á, að hann þyrfti ekkert að óttast. Eftir drauminn um Bill, varð ekkert við kokkinn tjónkað. Hann dreymdi nálega á hverri nóttu, og talaði slitrótt upp úr svefninum. Orða- slitur, sem engin leið var að henda reiður á, og þegar við spurðum hann um morguninn, hristi hann bara höfuðið og sagði: „Það er sama“. Stundum nefndi hann einhvern af pilt- unum með nafni í draumi og gerði hann óró- legan lengi á eftir. Þetta var óheillaferð fyrir ýmsa þeirra. Um það bil viku eftir slys Bills, fór Ted Jones í boltaleik við annan náunga og tóma bjórflösku, og í fimmta kastinu greip Ted flöskuna með andlitinu. Við héldum í fyrstu, að hann væri dauður — hann hafði svo hátt; en þeir komu honum niður, og þegar þeir voru búnir að tína úr andlitinu á honum eins mikið af glerbrotum og Ted leyfði þeim, tyllti annar stýrimaður því saman með heftiplástrum og sagði honum að liggja rólegum í einn eða tvo tíma. Ted var stoltur af andlitsfegurð sinni, og það var skelfilegt að heyra hvernig hann hegðaði sér. Fyrst og fremst úthúðaði hann náungan- 154 um, sem hann hafði verið að leika sér við, og svo sneri hann sér að kokknum. „Það var leiðinlegt, að þú skyldir ekki sjá þetta í draumi', segir hann og reynir að glotta háðslega, en plásturinn kom að mestu í veg fyrir það. „Ég sá það einmitt“, segir kokkurinn og reigir sig. „Hvað?“ segir Ted eins og hann hafi verið stunginn. „Mig dreymdi það í fyrrinótt, nákvæmlega eins og það skeði“, segir kokkurinn blátt áfram. „Því sagðirðu mér það þá ekki“, segir Ted uppvægur. „Það hefði ekki gagnað neitt“, segir kokkur brosandi og hristi höfuðið". Það, sem ég sé, hlýtur að ske. Ég sé einungis framtíðina, eins og' hún verður“. „En þú stóðst þarna og horfir á mig kasta flöskunni", segir Ted og fer fram úr. „Hvers- vegna aftraðir þú mig ekki?“ „Þú skilur þetta ekki“, segir kokkurinn „Ef þú hefðir einhverja menntun—“ Hann fékk ekki tóm til að segja meira áður en Ted réðist á hann, og þar eð kokksi var eng- inn, slagsmálagarpur, varð hann að láta sér nægja eitt auga við eldamennskuna næstu tvo, þrjá daga. Hann flíkaði ekki draumum sínum í nokkurn tíma eftir þetta, en það stoðaði ekkert, því Georg Hall, sem var sanntrúaður, gaf honum ráðningu fyrir að vara sig ekki við snúnum ökla, og Bob Haw að segja sér ekki, að hann myndi tapa landgöngufötunum sínum í spilum. Eini maðurinn, sem sýndi kokknum nokkra velvild, var ungur náungi að nafni Jósef Meck, rólegur piltur, sem ætlaði að kvænast systur- dóttur Bills jafnskjótt og við kæmum heim. Eng- inn annar vissi það, en hann sagði kokknum frá því í trúnaði. Hann sagði, að hún væri of góð handa honum, en hvernig sem hann reyndi, gæti hann ekki komið henni í skilning um það. „Tilfinningar mínar hafa breytzt", segir hann. „Ef til vill breytast þær aftur“, segir kokkur- inn hughreystandi. Jósef hristi höfuðið. „Nei, ég hef ákveðið mig“ segir hann hægt. „Ég er ungur ennþá, og auk þess hef ég ekki efni á því, en hvernig ég á að sleppa, veit ég ekki. Gætir þú ekki látið þig dreyma illa fyrir því fyrir mig?“ „Hvað áttu við?“ segir kokkurinn uppvægur. „Heldurðu að ég búi draumana til ?“. „Nei, nei, alls ekki“ segir Jósef og klappar honum á öxlina; „en gætir þú það ekki í þetta eina sinn? Látið þig dreyma, að við Emily séum drepin nokkrum dögum eftir brúðkaupið. V í K I N G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.