Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1950, Qupperneq 45

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1950, Qupperneq 45
é/ehtif iHcrýaH, frægasti sjóræningi sögunnar Hér verður sagt frá óskammfeilnasta sjóræningjan- um, sem uppi hefur verið. Manninum, sem mestan ótta vakti um allar Vestur-Indíur, Henry Morgan, mesta erkiþorpara í sjóræningjahópi. Um 1670 átti Morgan og réði fyrir heilum flota, 37 velbúnum skipum, og var áhöfn þeirra yfir 2000 manns. Morgan bjó yfir ráðagerð, sem hann hélt þó leyndri um sinn, en brátt varð til þess að vekja skelfingu um allar Vestur-Indíur, og einnig í Evrópu. Ætlun Morgans var að ráðast á og ræna stærstu og ríkustu borg Ameríku, Panama, sem var aðal geymslustaður góðmálma þeirra, er Spánverjar fluttu árlega þangað fra hinum auðugu námum í Perú og Mexieo. Hefði Morgan gert uppskátt um þessa ráðagerð mundi hann hafa verið álitinn vitskertur. Panama var vel víggirt stórborg. í borginni voru meira en 7000 stein- hús, átta klaustur og tvær skrautlegar kirkjur. Tvö þúsund húsanna máttu hallir kallast, og voru eign auðugustu manna Nýja heimsins. Að gera árás á þessa borg, með hópi slíkra ævin- týramanna, er saman höfðu safnazt úr öllum áttum, mátti því sýnast óðsmannsætlun. En hvað sem segja mátti um Morgan, var víst, að hræðast kunni hann ekki. Aftur á móti þekkti hann vel kjark sjóræningja sinna og gullgræðgi. Þegar hann hafði unnið tvö vígi, er verja skyldu leiðina yfir Panamaeiðið, skipulagði hann árásarher sinn, sem var myndaður af aðeins 1400 völdum mönn- um. Liðstyrkurinn var fluttur í 36 stórum eikjum og 7 slúffum upp eftir Chagrefljótinu. Á undan hafði Morgan sett varaforingja sinn, Collier, með sex skip og 300 menn til þess að afla vista til ferðarinnar. Flestir þeirra manna voru fyn-verandi „búkanerar", þ. e. menn, sem lifað höfðu á því að veiða villinaut og þurrka kjöt þeirra. Þessir veiðimenn, sem orðlagðir voru fyrir þrek og hugrekki, öfluðu ríkulegra birgða til ferðarinnar. En þegar víkingarnir hófu för sína reyndist aðeins rúm fyrir mjög lítið af vistum í bátunum. Morgan hrædd- ist slíkt þó ekki. Hann treysti því að allar nauðsyn- legar vistir mundu fáanlegar á leiðinni yfir eiðið. Brátt brugðust þó þær vonir. Spánverjar höfðu feng- ið njósnir um hvað Morgan og hinir villtu herskarar hans höfðu í huga. Allir nýlendumenn meðfram fljót- inu höfðu yfirgefið heimkynni sín. Áður höfðu þeir þó rekið nautgripi sína á brott, en brennt og eyðilagt hálfþroskaða ávexti og kornið á ökrunum. Innan fárra daga voru allar vistir þrotnar, og ræningjarnir urðu að láta sér nægja tóbak, sem þeir reyktu eða tuggðu sér til hressingar. Fljótlega urðu þeir að yfirgefa hina auðveldu vatnaleið. Spánverjar höfðu varpað stórum trjábolum í fljótið. Þegar þeir um síðir komust til þorpsins Terra Cavallos, eftir hræðilega göngu, yfir óheilnæm fen, var þar allt autt og yfirgefið. Eæn- ingjarnir urðu að gera sér að góðu nokkra leðursekki og ósútaðar húðir, sem þeir börðu unz þær urðu mjúkar og steiktu síðan á glóð. Ýmsir hinna ólmu sjóræningja buguðust og voru skildir eftir til þess að mæta örlögum sínum, — hung- urdauðanum, eða því að lenda í höndum Indíána. Hinn fámenni her náði þó að lokum takmörkunum milli Carabískahafsins og Kyrrahafs. Og nú áttu þeir aðeins eftir átta mílur til Panama. En leiðin var erfið. Sulturinn herjaði meðal sjóræningjanna, og hvarvetna lágu Indíánar, sem lögðust á eitt með Spánverjum, í launsátri, og unnu mörgum grand, sem aftur úr drógust. Á þennan hátt fækkaði liðstyrknum ískyggilega áður en víkingarnir, á níunda degi, sáu Kyrrahafið af fjalli einu. í dal einum neðan undir fjallinu gengu stórar hjarð- ir kvikfénaðar á grasi. Sjóræningjarnir ráku upp fagn- aðaróp, og á svipstundu höfðu hinir æfðu nautaveiði- menn drepið fjölda nauta. Sjóræningjarnir réðust á kjötið og hvomuðu það í sig svo blóðið rann í lækjum úr skegginu á þeim. Nú voru erfiði og hættur gleymd- ar. Með endurnýjuðum kröftum sóttu þeir hratt fram unz þeir, á tíunda degi sáu turna og þök Panama- borgar í fjarlægð. Líkt og krossfarendur æptu fagnaðaróp, er þeir litu Jerúsalem í fyrsta sinni, þannig æptu og hrópuðu vík- ingarnir nú villtir af gleði. Morgan og foringjar hans héldu herráð. Þó hin auðuga borg væri nú svona nærri, voru síðustu skrefin vissulega jafnerfið og öll leiðin sem að baki lá. Sléttan milli þeirra og borgarinnar var að mestu leyti vaxin ófæru kjarri á milli botnlausra fenja. Eini vegurinn, sem til borgarinnar lá, var var- inn af rammgervum virkjum, sem búin voru stórum fallbyssum. Riddarar þyrptust út úr borginni á móti víkingun- um og æptu til þeirra: „Brátt skuluð þið fá að kynn- ast okkur, hundarnir ykkar“, öskruðu þeir og skóku sverð sín. Tvö hundruð vel vopnaðir hermenn gengu hergöngu út úr borginni og leituðust við að ná aðstöðu til þess að geta varnað víkingunum að hafa möguleika til und- V I K I N □ U R 101
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.