Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1950, Page 53

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1950, Page 53
annað skip, með sérstökum þar til gerðum áhöldum. Það skip flytur svo aflann að landi. Fiskurinn er sogaður upp í skipið með dælum og skipið getur þannig haldið áfram nærri því óendan- lega. Veiðarfærið er dregið af einum eða tveim bátum. Kringstad telur, að þessi veiðiaðferð, þegar um síld er að ræða, feli ekki aðeins í sér möguleika til meiri veiði, heldur geti þetta skip tekið „stór köst“, þegar vont veiðiveður er og erfitt fyrir herpinóta- eða rek- netaskip að ná nokkurri síld, auk þess sem menn losna við að „sprengja“, þegar mikil síld er. Innfellda teikningin sýnir veiðarfærið framan frá. („Fiskaren"). Lítill þýzkur togari Skipið, sem myndin er af, er lítill þýzkur togari, hann var byggður árið 1948. Aðalmál skipsins eru sem hér segir: Lengd (mesta) ....... 31,65 m. (ca. 104 fet) Lengd (p. p.) ....... 28,00 — (— 92 fet) Breidd ............... 7,00 — (— 23 fet) Rými, tómt skip .... 216 tonn — hlaðið — .... 330 — Brúttó ......... 178 — Skrokkurinn er byggður úr stáli, með hallandi stefni, hálf háum bakka og skuturinn er kúlulaga- og bog- myndaður. Fimm vatnsþétt hólf eru í skipinu, tvöfaldur botn fyrir ferskvatn og brennsluolíu er undir lestinni. Fremst í skipinu er stafnhylki, sem rúmar 14 tonn af ferskvatni, einnig keðjukjallari og vírtóg-geymsla þar fyrir aftan — undir lúkargólfinu er netageymsla. 1 lúkarnum eru lokrekkjur fyrir 8 menn og fremst í honum er handlaug. Fyrir aftan hásetaklefann er fiskilestin, óeinangruð. 3 lúgur eru á lestinni, ein fyrir framan mastur (íslúka), þeim er öllum lokað með tré- lokum og skrúfuðum stálhlerum. Aftan við lestina er vélarúmið, í því er aðalvélin, 350 B ha, M. W. M. dieselvél með 250 snúningshraða á mínútu. Hún er fasttengd við „branze“ skrúfu og snar- vend. Vélarúmið tekur yfir 15 bandabil, eða 7,5 m. Þó skrokkurinn sé byggður úr stáli, eru brennslu- olíuhylkin laus hylki beggja vegna í vélarúminu, nema 2,5 tonna botnhylki. Hylkjunum, sem rúma hvort um sig um 16 tonn af olíu, er komið fyrir það langt frá síðunni, að maður getur komizt á milli, til viðhalds. Það er vert að veita því athygli, að Þjóðverjar kjósa hér að setja niður laus hylki, sem eru miklu dýrari en hylki, sem byggð eru sem hluti af skrokknum. Eins, að þeim hefur þótt nauðsynlegt að eyða rúmi að baki þeirra til að auðvelda viðhald. Botnloka er hægt að blása hreina með lofti úr ræsi- loftskútunum. Afgas vélanna er leitt upp í gegnum afturmastrið. Þetta hefur sína kosti og galla: Vélarhljóðið og reykur verður ekki til óþæginda, en í þess stað verður ending mastursins mikið minni. V I K I N G U R 1B9

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.