Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1978, Blaðsíða 24
Nýi Lundeyjarvitinn Gamli Lundeyjarvitinn
Austfirðinga, reið Wathne sjálfur
á vaðið og lét byggja vita á Dala-
tanga sumarið 1895. Byggingin
var steinhús með herbergi fyrir
vitavörð og stöpli þar upp af. Var
vitinn fullbyggður um haustið og
kveikt á honum hinn 1. september
1895. í hinu mikla riti Búnaðar-
sambands Austurlands, Sveitir og
jarðir í Múlaþingi, er fullyrt í
jarðarlýsingu Dlatanga, að viti
Wathnes sé frá árinu 1878, eldri
en Reykjanesviti og þar með elsti
viti landsins. Fullyrðing þessi fær
ekki staðist og er ranghermi.
Þótt það væri einkaaðili, sem
reisti og kostaði Dalatangavitann í
upphafi, veitti Alþingi strax fé til
reksturs vitans. Og þegar vitinn
var endurbyggður árið 1908, kost-
aði hið opinbera framkvæmdirnar
alfarið og ávallt síðan.
24
Reykjanesvitinn
yngri.
Reykjanesvitinn var eini viti
landsins um nærri tveggja áratuga
skeið, eða þar til Wathne reisti
vita á Dalatanga. En sumarið 1897
voru byggðir vitar í Gróttu við
Reykjavík og á Garðskaga, en á
Garðskaga hafði verið reist varða
með lukt árið 1884. Jafnframt
voru árið 1897 gerðar endurbætur
á Reykjanesvita, en hann var orð-
inn illa farinn, einkum vegna
jarðhræringa, og ljósi vitans breytt
í leiftur.
Jarðhræringarnar urðu afdrifa-
ríkar fyrir Reykjanesvitann. Árið
1907 var svo komið, að verulega
hafði hrunið úr Valahnúknum
og ekki nema 10 m frá vitanum
frarn á brún, en holt undir og allt
sundursprungið. Neitaði vita-
vörðurinn að vaka í vitanum, og
var úr því ákveðið að byggja nýjan
vita á Bæjarfelli, sem er hóll
nokkru ofar en Valahnúkur.
Var nýi vitinn reistur árið 1908,
úr grjóti og steinsteypu, 22 m á
hæð upp á pall, sívalur að innan,
2.5 m í þvermál, en keilumyndað-
ur að utan, 9 m í þvermál neðst en
5 m efst. Er því veggþykktin 3.25
m neðst og 1.25 m efst. Þessi mikla
veggþykkt var talin ráðleg vegna
hinna tíðu jarðskjálfta, og hefur
byggingin reynst vel og er enn í
fullum notum.
Lokaorð.
Á fyrstu áratugum 20. aldarinnar
var kerfisbundið unnið að því að
reisa vita umhverfis landið. Voru
vitar jafnan reistir í þeirri röð, sem
hentugast þótti, meðal annars
VÍKINGUR