Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1987, Blaðsíða 127
miðjutogara 1968
Á Spáni. (slenska sendinefndin, ásamt eigendum togarans sem er i
baksýn. fslendingarnir skoöuöu þetta skip m.a. þegar þeir leituðu
hófanna um kaupa á verksmiðjutogara frá Spáni.
alds Guðmundssonar. Enn-
fremur lýstu forseti A.S.Í.,
Jón Sigurðsson, stuðningi við
málið, Landsamband is-
lenskra útvegsmanna, for-
ustumenn Félags islenskra
botnvörpuskipaeigenda og
Landssambands iðnaðar-
manna. Arið 1968 voru skipin
sem keypt voru 1947 og siðar
orðin safngripir og ekkert
arðandi upp á þau, svo mönn-
um fannst tima til kominn að
gera myndarlegt átak i út-
geröarmálum.
Nú skal kaupa
verksmiðjuskip
Sambandsstjórn samþykkt
á fundi sinum á haustdögum
1968 aö keypt skyldi verk-
smiðjuskip, og var áætlað að
samþandið hefði forgöngu
um málið. Til þess kaus sam-
bandsstjórn framkvæmda-
nefnd, sem eftirtaldir áttu
sæti i: Henry Hálfdánarson,
Guömundur Pétursson, Sig-
urður Guðjónsson og undirrit-
aöur þáverandi framkv.stj.
samþandsins. Átti nefndin að
skila tillögum að mánuði liðn-
um. Nefndarmenn höfðu und-
irbúiö ýmislegt sem að þessu
máli laut og gátu að frestinum
liðnum lagt fyrir stjórn sam-
bandsins tilboð frá pólskri
skipasmiðastöð ásamt tillögu
um nafn á fyrirhuguðu hluta-
félagi. Á fundi sambandsins
þar sem þetta lá fyrir var
samþykkt að hlutafélagið
skyldi heita Úthaf h.f. og
ennfremur samþykkt að gera
þoðsbréf til allra íslendinga
frá Úthafi h.f. Þá var einnig
búió að hanna merki fyrir fé-
lagið. Var nú leitaö tilboða
viðar að og fengust tilboð frá
Spáni og eitt ameriskt tilboð
kom einnig. Tilboðinu frá
Bandaríkjunum fylgdi leyfi um
að skipið mætti landa aflan-
um þar og jafnvel fiska innan
bandariskrar landhelgi. Þetta
skip var búið mjög fullkomnu
vinnslukerfi en var nokkru
dýrara en skip frá Evrópu-
löndunum. Rækilega var farið
yfir öll tilboöin, kannaðir lána-
möguleikar, og annað þaö
sem þurfti til.
Sérsinna
bankastjórar
Ekki fengum við góðar und-
irtektir hjá bankastofnunum
með þetta verkefni, og var
hugsun margra forráða-
manna i fiskiðnaði að ísland
væri besta verksmiðjuskipið,
og töldu ekki að breytt yrði til
batnaöar þó verksmiðjuskip
kæmi til.
Almenningur tók hugmynd-
inni vel, eins og fram kemur
þegar farið var að senda út
boðsbréfin. Um 160 manns
skrifuðu sig fyrir hlutum, og
einnig nokkur stéttarfélög.
Ekki dugði hinn mikli áhugi
sem almenningur hafði á
frystiskipi til þess aö fá
bankastjóra Landsbanka ís-
lands til þess að taka sinna-
Hlutaútboð til kaupa og
reksturs á verksmiöju-
togara.
TIL
ALLRA Í5LENDINGA
FRÁ
ÚTHAF H.F.
FARMANNA-
□ G FI5KIMANNASAMBAND ÍSLANDS
BÁRUGATA 11 - REYKJAVÍK
skiptum. í undirbúningshóp-
inn hafði fljótlega komið Loft-
ur Júlíusson skipstjóri, sem,
VÍKINGUR 127
L