Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Qupperneq 60

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1995, Qupperneq 60
VÍKINGUR Höfnin á Sudureyri. miðstýringarinnar, þeir vilja hafa fáa stóra hluti uppi á borði hjá sér en ekki marga litla, þeir líta á það sem vand- ræði. Það sem er hættulegast við þetta er að breytingin sem er orðin á sókn- armynstri Islendinga síðastliðna tvo áratugi fer verr með miðin og verr með fiskstofnana. Við erum sakaðir um umframafla, sem ekki er gert ráð fyrir, en hann er bara smámunir miðað við þann sóðaskap, sem á sér stað á miðunum í dag.“ Nú er landburður af fiski á Suður- nesjum, en maður heyrir á sjómönn- um að þeir eru ekki sáttir við þetta kerfi? „Það er að sjálfsögðu spurning þegar það eru svona aflahrotur, með hrygningarstopp og þess háttar, að það sé eitthvert form á því, en þetta er endaleysa. Við ættum að hafa haft vit á að nýta grunnslóðina betur með þessum hefðbundnu veiðitækjum og, ef menn vilja takmarka sóknina, að gera það þá með einhverjum jákvæðum helgidagastoppum, en það virðist ekki vera stefna stjórnvalda heldur bara að gera þetta eins erfitt og hægt er. Þeir hunsa öll lög. Við höfum tvívegis staðið þá að lögbrotum en þeir hafa sloppið í bæði skiptin hjá sjávarútvegsráðuneytinu. Togarar voru hér fyrir innan 12 mílurnar þegar verið var að stela kolakvótanum frá dagróðrabátunum hérna. Við kærðum það að lokum og þá var það landssam- bandið sem fór í málið og fékk fyrr- verandi ríkislögmann, sem gat látið vísa málinu frá á tæknilegum forsend- um. Málið var það að þeir voru sekir, enda hafa þeir ekki hleypt þeim inn fyrir 12 mílurnar eftir að þetta var tekið upp. Það sem er alvarlegt við þetta er að framgangur málsins var nokkuð undarlegur. Eg frétti að skip væri komið inn fyrir og kærði til Landhelgisgæslunnar, en ég vitnaði til viðkomandi laga hér um. Þeir svöruðu því til að þeir hefðu fengið símhring- ingu frá sjávarútvegsráðuneytinu um að þetta væri heimilt, en það hefur enginn nema sjávarútvegsráðherra vald til að gefa slíka heimild og hann var staddur í Moskvu þegar þetta var. Þetta er komið á það stig hjá ráðuneyt- inu að þeir virðast ekkert þurfa að velta því fyrir sér hvort þeir hafi heim- ildir til aðgerða, eins og síðast með auglýsinguna um banndagana. Við höfum lögfræðilegt álit fyrir því að það, að banna veiðar krókaleyfisbáta á utankvótategundum á stoppdögum, er lögbrot. Það er ekki í samræmi við lögin sem unnið er eftir. Menn mega róa í tegundir sem ekki eru í kvóta, en þá kemur upp þetta vandamál sem þeir nýta sér, að ef menn fá kannski 100 kíló af þorski með 3-4 tonnum af steinbít þá nota þeir fúlustu refsingar á það. A sama tíma vita menn að meirihluti rækjuflotans er utan kvóta og þeir sem eru á kvóta eru að landa allverulegu magni af grálúðu og þorski. Lausn kvótakerfisins á öllu sem kemur upp er: Hendið því svo við sjáum það ekki. Ég heyrði á tal tveggja rækjuskipstjóra er ég var á leið austur á Hornbanka, annar þeirra sagði að hann hefði orðið að fleygja öllu sem kom í trollið og tók fram að slíkt gerði enginn að leik sínum. Ég skildi manninn mjög vel; hann er á kvótalausum rækjubát, hann getur ekki gert annað, ef hann kemur í land með aflann er hann að fremja refsivert athæfi og er sektaður. Hvaða kerfi er það sem býður mönnum upp á þetta: Ef þið gerið það sem er rétt, þá eruð þið sektaðir? Þetta er það sem kvóta- kerfið felur í sér: Ef þú kemur í land með undirmálsfisk ertu sektaður, út- gerðarmaðurinn rekur þig ef þú kemur með fisk sem fást 50 krónur fyrir en kvótinn kostar 70 krónur. Hvernig eiga menn að hegða sér? Ég vísa þessari ábyrgð gjörsamlega á hendur stjórnvalda, þau áttu ekki að taka upp þetta kerfi. Ég vil orða þetta þannig, að ef það hefur verið markmiðið með kvótakerfinu að búa til krimma og sóða þá hefur það markmið náðst.“ Frá Subureyri 60
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.