Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1999, Blaðsíða 56
Netasalan
Netasalan með
niðurleggiara
Netasalan ehf. hefur hafið
sölu á netaniðurleggjurum frá
NET-OP í Danmörku fyrir
netabátaflotann. Niðurleggjar-
inn vinnur með þeim hætti að
hann dregur netin frá netaspil-
inu og greiðir um leið úr netinu
áður en þau fara í kassa eða
kör.
NET-OP niðurleggjarinn er
ólíkur öðrum tegundum sem
áður hafa verið fluttir landsins
að því leyti að á honum eru
tveir rótarar í stað eins. Þetta
gerir það að verkum að kraft-
urinn eykst sem kemur sér afar
vel við erfiðar aðstæður og
þegar þörf er fyrir meiri átök í
drættinum. Einnig kemur þessi
aukni kraftur sér vel þegar
draga þarf netin lengri leið en
frá spili eins og t.d. þegar
draga þarf netin uppúr lest.
Fyrir grásleppubáta kemur
þessi aukni kraftur, sem fylgir
því að hafa rótora sér vel
þegar þari og önnur óhreinindi
setjast í netin. NET-OP niður-
leggjarinn er þó svipaður
öðrum niðurleggjurum að því
leyti að lása þarf sundur á milli
trossa.
Niðurleggjarinn vinnur á við
einn til tvo menn og er því mik-
ið hagræði fyrir þá sem stunda
netaveiðar en tækið hentar
sérstaklega vel fyrir fram-
byggða báta. Niðurleggjarinn
er fljótlegur í uppsetningu en
gert er ráð fyrir að hann sé
festur í bómu eða gálga yfir
netakassanum svo að netin
leggist betur niður.
NET-OP niðurleggjarinn
kemur í fjórum stærðum sem
henta misstórum bátum hver.
Mótorarnir eru vökvaknúnir og
er olíuþörfin í minnsta tækinu
17 til 20 IVmín, heildarbreiddin
er 67 sentímetrar og legndin
107 sentímetrar. Næsta stærð
fyrir ofan gerir ráð fyrir 20 til 25
LVmín, heildarbreiddin er 79,5
sentímetrar og legndin 119
sentímetrar. Næst stærsti
niðurleggjarinn þarf 25 til 30
IVmín, heildarbreiddin er 92
sentímetrar og lengdin er 130
sentímetrar.
Stærsta gerðin þarf sama
glussamagn og sá fyrir neðan
eða 25 til 30 IVmín en breiddin
er 139 sentímetrar og lengdin
er 130 sentímetrar. ■
SKIPAVERSLUNIN
SKIBSHANDLER ■ SHIP CHANDLER ■ SCHIFFSAUSRUSTER
KOSTUR FYRIR
SKIP OG BÁTA
Allt á einum stað:
Ferskar vörur - Gott verð
og fagleg þjónusta.
HRINGBRAUT 121 - 107 REYKJAVÍK Skipaverslun -
SÍMI 562-5570 - TELEFAX 562-5578 Sérverslun sjómanna
56
Sjómannablaðið Víkingur