Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Side 45

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Side 45
Hilmar Snorrason skipstjóri !lUtan úr heimi Hér gefur að líta 4 af 11 skipum Renaissance bundnum við biyggju á Gíbraltar eftir gjaldþrotið. Gjaldþrot Ekki er það svo að öllum fyrirlækjunum í skemmtiferðaiðnað- inum hafi tekist svo vel til sem varð með samruna P&O og RCC. Eitt af þeim fyrirtækjum sem ntargir töldu að væri sterkl á markaði, Renaissance Cruises stóðst ekki þá kreppu sem hryðjuverkin hrundu af stað en fyrirtækið lokaði hurðum sínum þann 25. september s.l. Aðeins viku áður hafði útgerðin fengið afhent síðustu nýsmíði sína í raðsmíði glæstra skemmtiferða- skipa. Stjórnendur útgerðarinnar sögðu að hryðjuverkin hefði verið síðasti nagli í kistu útgerðarinnar en hún var sú fimmta stærsta í heiminum með skipastól upp á 11 skip. Fangelsaður Skipstjóri á 45 þúsund tonna búlkskipi, Siete Oceanos, hefur verið handtekin í Fortaleza í Brasiliu, ákærður fyrir að hafa haldið laumufarþega hlekkjuðum um borð í skipinu. Við eftirlit strandgæslu um borð í skipinu fannst 25 ára gamall Nígeríu- maður í klefa sem liktist fangaklefa og var hann hlekkjaður á fótum. Að sögn laumufarþegans Guerry Dieprite Isaac Ayan fannst hann skömmu eftir að skipið lét úr höfn í Nigeríu og á- sakaði hann skipstjórann og áhöfn um slæma meðferð á sér á leiðinni til Brasilíu. Ayan verður sendur aftur til Nígeríu meðan að skipstjóinn, Jerry Serves, fær í staðinn að dvelja í fangelsi í Brasilíu þar til réttað hefur verið í rnáli hans. Hann getur átt von á allt að þriggja ára fangelsi fyrir meðferðina á Ayan því þar- lend yfirvöld líta málið mjög alvarlegum augutn. Á síðustu tveimur mánuðunt hafa tvö lík af Nígeríumönnum rekið á fjörur hjá þeim. Er talið að um laumufarþega frá skipum sé um að ræða. Nýtt símkerfi sjómanna ITF hefur stutt fjárhagslega við að koma upp nýju símakerfi sem kallast CrewLink en það er símafjarskipti í gegnunt In- marsat gerfihnattakerfið. Hér er um að ræða lággjaldasímkerfi um þetta annars dýra fjarskiptanel en nrínútuverðið hefur verið um 700 krónur mínútan sem hefur orðið til þess að þetta kerfi hefur ekki verið notendavænt fyrir sjómenn. Sjómenn geta keypt sér símakort sem eru að andvirði 20, 50 og 100 US dollar- ar og á næsta ári er búisl við að tölvupóstssamband verði einnig í boði fyrir sjómenn sem sigla unt heimshöfin um lnmarsat kerf- ið. Hættulegur varningur Breskur flutningabílstjóri hefur verið sektaður um 3.500 pund fyrir að gefa ekki upp að í bíl hans var hættulegur varningur meðan hann var í flutningi í ferju milli Calais og Dover. Sam- kvæmt farmbréfum gaf hann upp að í bílnum væri pappírsfarm- ur og engar merkingar voru um að annað væri í vagninum. Eft- ir að bílnum var ekið frá borði í Dover var innihald vagnsins skoðað og komu þá í ljós að 20 mismunandi hættulegur varn- ingur var í vagninum. Með ferjunni voru 623 farþegar og líta bresk siglingayfirvöld málið ntjög alvarlegum augum. Auk sektarinnar var bílstjóranum gert að borga 4.000 pund vegna þess að hann ógnaði öryggi skipsins og farþega þess. Sem sagt rúm 1,1 miljón króna hafa runnið úr vasa bílstjórans við það að hafa ekki gefið upp að hættulegur varningur væri í bíl hans um borð í ferjunni. Á einní nóttu tvöfaldaðist skipastóll Fœreyinga með skráningu á þessu skipi Tvöföldun skipastólsins Á einum degi tvöfölduðu Færeyingar skipastól sinn. Með til- komu á færeyskum siglingafána, sem á að efla færeyskan kaup- skipastól, var tankskipið Bergina skráð í l'órshöfn og þar með var fyrsta skipið komið undir þennan nýja siglingafána. Skipið er aðeins 134 þúsund tonn að stærð en er eins og fyrr segir fyrsta skipið undir FAS skráningafánans sem gerir kröfu um 20% eignaraðild Færeyinga í skipinu. Að sjálfsögðu fylgja skattaívilnanir þó aðallega til útgerðar en áhöfnin fær 35% skatt sem síðan 28% ganga aftur til útgerðar en 7,7% fær landssjóður. Skráning skipsins er liður í væntingum færeyinga í olíugróða eftir að olía er fundin á landgrunni þeirra en að sögn útgerðar verður ekki færeyskur skipstjóri á skipinu en klárt er að það verður skandinavi. Eru einhverjir íslendingar tilbúnir til að leita eftir vinnu I Færeyjum? Farsímar í GMDSS kerfinu Kólombíski sjóherinn hefur tilkynnt að neyðarfjarskipti við strendur landsins muni verða látnar fara um farsímakerfi þar sem ekki eru til staðar strandstöðvar senr ná talstöðvarsambandi nteð allri strandlengju þeirra. Er þetta liður þeirra til að upp- fylla þær kröfur, sem gerðar eru á vettvangi Alþjóðasiglinga- stofnunarinnar IMO, um neyðarfjarskipti GMDSS. Skipurn hef- ur verið úthlutað sérstöku neyðarnúmeri, 146, sem hægt er að hringja í úr farsímum og fá þau þá samband við Siglingaum- ferðastofnun í Barranquilla. Farsímanet þeirra er talin hafa góða útbreiðslu og ná allt að 12 mílum á haf út en þetta á reyndar einungis að vera til bráðabirgða þar sem á næsta ári á að bjóða út uppsetningu á 14 strandstöðvum þar í landi. Tölvukerfi lirynur Mikil skclfing greip um sig hjá North Sea Terminal í Bremer- Sjómannablaðið Víkingur - 45

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.