Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2004, Blaðsíða 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2004, Blaðsíða 16
að að ganga í félagið, ef ekkert skip- stjóra- og stýrimannafélag starfaði í heimabyggð þeirra. Afleiðingin varð sú að rnargir skipstjórar og stýrimenn af Austfjörðum, af Snæfellsnesi og frá Þor- lákshöfn gengu í Ölduna á næstu áratug- unt. Austfirðingar að skipstjórnarmönn- um á Höfn í Hornafirði undanskildum hurfu síðar úr félaginu og stofnuðu eigið Ibyrjun febrúar 1918 gerði norðan stór- viðri með mikilli snjókomu og frosti. Er veðri þessu slotaði hafði landsins forni fjandi lagst að öllu Norðurlandi. hessar voru aðstæður á Akureyri 13. febrúar þegar 18 skipstjórar og stýri- menn komu saman i fundahúsi bæjarins, sem í daglegu tali var nefnt Gúttó og stofnuðu Skipstjórafélag Norðlendinga. Félagsstofnunin mun hafa átt nokkurn aðdraganda því oft mun málið hafa borið á góma áður. Þá voru ekki kjaramál, ör- yggismál né nein önnur hagsmunamál félag. I’egar 100 ár voru liðin frá stofnun Öldunnar kom saga félagsins út á bók sem Lýður Björnsson skrifaði. Þetta ör- stutta ágrip af sögu félagsins er byggt á þeirri bók. Formaður Skipstjóra- og stýrimannafé- lags Öldunnar við sameininguna er Guð- laugur Jónsson. sjómannastéttarinnar í föstum farvegi og flest þau mál sem hreyft var til að fá til betri vegar talin óþarfi og því lítt eða ekki sinnt. Einn aðalhvatamaðurinn að stofnun fé- lagsins mun hafa verið Stefán Jónasson skipstjóri og var hann kosinn fyrsti for- maður félagsins. í fyrstu fundargerð fé- lagsins voru færð inn þau lög sem sam- þykkt voru fyrir það. 2. grein þessara laga hefur staðið nær óbreytt allar götur síðan og er hún þannig: Tilgangur félagsins er efla hag og vernda réttindi skipstjóra og stýrimanna, svo sem með því að: a) Stuðla að því að meðlimir fái viðun- andi kaup fyrir vinnu sína og sjá um að ekki sé gengið á rétt þeirra. b) Stuðla að umbótum og auknum vitum og sjómerkjum við strendur landsins og hverskonar slysavörnum. c) Með því að hafa slysatryggingasjóð fyrir meðlimi sína og styrkja þá þegar slys ber að höndum eða veikindi, samkvæmt reglugerð sjóðsins. Strax á fyrstu fundum félagsins hófust umræður um launakjör skipstjóra og stýrimanna. En framan af mun sá háttur hafa verið hafður á, að útgerðarmenn auglýstu þann taxta er þeir hugðust greiða þessum mönnum. Eftir stofnun fé- lagsins fór það fljótlega að blanda sér í kjaramálin og vinna að því að fá samn- inga við útgerðarmenn og tókst þetta fljótlega. Ýmis framfaramál Ýmisleg framfaramál voru rædd á fundum félagsins strax fyrstu árin. Má þar nefna að fljótt var vakin athygli á þörf fyrir skipakví á Akureyri. Einnig á þörf fyrir þokulúður eða hljóðbauju við innsiglinguna til Siglufjarðar. Hins vegar voru deildar meiningar um hvort þokulúðurinn ætti að vera austan eða vestan við fjarðarmynnið. Félagið hafði forgöngu um að á Akureyri væri maður sem leiðrétti áttavita. Tók einn féfags- manna að sér að læra þetta og hafði þann starfa um áratugi. Skipaskoðun og léleg frammistaða í henni var mikið rædd og taldi félagið fráleitt að útgerðarmaður sinnti starfi skoðunarmanns. Réttindamál skipstjórnarmanna og undanþágur voru snemma á dagskrá í fé- laginu og 1935 voru miklar umræður um málið vegna kröfu smáskipaprófsmanna að fá aukin réttindi með lítt auknum lær- dómi. Deilt var hart um málið. Um 1970 var starfsemi félagsins í nokkurri lægð og höfðu menn áhyggjur af framtíð þess. Kom þá fram hugmynd um að ná samstarfi við skipstjóra og stýrimenn á Siglufirði. Fór svo að félagið á Siglufirði var lagt niður og gengu fé- lagsmenn í Skipstjórafélag Norðlendinga. Það var svo árið 1972 að félagið opnaði skrifstofu á Akureyri til að sjá um ýmsa fyrirgreiðslu og upplýsingamiðlun lil fé- lagsmanna, sem og innheimtu fyrir félag- ið og sjóði þess. Reyndist þetta mikið happaspor. Þessar upplýsingar eru úr ágripi af sögu félagsins semjónas Þorsteinsson tók saman á sínum tíma. Formaður Skipstjóra- og stýrimannafé- lags Norðlendinga við sameininguna er Árni Bjarnason forseti FFSÍ. Ryðfríir stálbarkar Barkasuða Guðmundar ehf. Vesturvör 27 • 200 Kópavogur Sími: 564 3338 • Fax: 554 4220 GSM: 896 4964 • 898 2773 fyrir Hitaveitur • Pústkerfi • Vatnslagnir Olíulagnir • Frystikerfi • Loftlagnir Viðgerðir og smíði á þenslumúffum Kt. 621297 2529 Skipstjóra- og stýrimannafélag Norðlendinga Stofnað í skugsa hafíss og styrjcmar 16 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.