Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1966, Blaðsíða 23

Náttúrufræðingurinn - 1966, Blaðsíða 23
NÁTTÚRUFRÆÐI NGURINN 173 sem bylgjur skullu yfir þær, að totur þessar bólgnuðu út í endann og síðan brotnúðu þessir endar af í öldurótinu. Líklegt má telja, að reglulegt bólstraberg sé þarna að finna neðan fjörumáls, en hversu djúpt er á því, er ennþá ókannað. Forvitnilegt. var að sjá, hversu mikið af hrauninu molnaði niður í snertingu við sjóinn. Oft mátti sjá gervigos, er brimöldur skullu á glóandi hraunjaðrinum og stóðu þá gosmalarstrókar stundum hátt upp úr brimgarðinum. Þegar öldur skullu á glóandi helluhrauns- totum, sem teygðu sig niður í fjöruna, snarkólnaði yfirborð þeirra og myndaðist þá þunnt storklag, sem jafnharðan kvarnaðist í svart- gljáandi glerkennda mylsnu, sent skolaðist af, svo að aldan sortn- aði, en síðan var hraunið glóandi að nýju, er aldan féll frá, en af þessari síendurteknu kvörnun yfirborðslags hraunsins myndaðist svartur, glerkenndur grófsandur. Með hliðsjón af orðinu gervigíg- ur og gervigos, mætti nefna þennan sand gervigosmöl (pseudo- tephra), en eldfjallafræðingurinn kunni, Alfred Rittmann, nefnir slíkan sand hyaloclastile, en hann er víðast samfara bólstrabergs- myndun. Kvörnunin gat verið svo hröð, að mjög hægskreiðar hrauntotur kæmust ekki gegnum brimgarðinn, kvörnunin hefði við aðstreym- inu. En væri um liraðstreymar hraunelfur að ræða, eins og t. d. upp úr miðjum apríl 1964, héldu þær viðstöðulaust áfram undir sjávarmál og runnu áfram niður eftir hallandi sjávarbotninum. Það var ekki aðeins yfirborð rennandi hraunsins, sem kvarnaðist í brimgarðinum. Brimið molaði oft hrauntoturnar í stærri og rninni stykki og útsogið dró með sér glóandi hraunflykki, stundum ærið stór, sem sjá mátti rjúka úr í fjörusandinum marga metra framan við hraunjaðarinn. Sakir hinnar öru kvörnunar og molunar mynd- aðist stöðugt kragi af svörtum sandi framan við hraunjaðarinn, svo að ganga mátti þurrum fótum á fjöru, þar sem hraun var að skríða fram, nema það væri því hraðstreymara. Þess vegna skreið hraunið stöðugt fram yfir gjallsand, sem jiað sjálft hafði myndað. Ætla má, að í þeim hluta af neðansjávarstöpli Surtseyjar, senr myndazt hefur síðan hraungosið hófst, skiptist á lög af gervigosmöl og hrauni, sem sumpart hefur runnið eftir sjávarbotni niður hallann út frá strönd- inni, sumpart runnið í lokuðum rásum og þá ýmist rnyndað inn- skot neðansjávar eða koniið upp á sjávarbotni mislangt frá strönd- inni, hafandi runnið þangað í lokuðum rásum, svo sem kann að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.