Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1950, Page 22

Náttúrufræðingurinn - 1950, Page 22
Magnús Grímsson: Geysir og Strokkur Magnús Grimsson var fæddur á Lundi í Lundárreykjadal 3. júní 1825; voru foreldr ar hans Grímur, síðar bóndi á Grimsstöðum í Reykholtsdal (f. í júlí 1791, d. 10. marz 1854), Steinólfsson, bónda á Hvanncyri í Andakíl, og kona hans Guðrún (f. um 1802, d. 29. apríl 1836). dóttir séra Þórðar Jónssonar, cr prestúr var á Lundi 1815—1833. Magnús settist í Bessastaðaskóla haustið 1842 og var þar fjóra vetur, hélt síðan áfram námi við Reykjavíkurskóla og brautskráðist þaðan vorið 1818. En um haustið settist hann í prestaskólann og lauk þar prófi 22. júlí 1850. Dvaldist síðan um fimm ára skeið í Reykjavík við ýmisskonar ritstörf, unz hann var vígður prestur að Mosfelli í Mosfellssveit 2. september 1855. Þár lézt hann 18. janúar 1860. Sumarið 1846 réðst Magnús, ásamt skólabróður sínttm Bjarna Einarssyni Thorlacius frá Saurbæ í Eyjafirði, fylgdarmaður erlendra náttúrufræðinga, er hingað komu til þess að kanna landið. Ferðuðust þeir fyrst um Kjalarnes, Borgarfjörð og austur að Reykjum í Ölfusi. En héldu síðan úr Reykjavík sem lcið liggur austur á Þingvöll, um I.augardal, Biskupstungur, Hrcppa og austur að Heklu, er gosið hafði Jtá um vet- urinn. Síðan fóru þeir norður Sprengisand og allt til Mývatnssveitar. Næsta vetur ritaði sVo Magnús nokkurar smágreinir um athuganir sínar frá sumrinu varðandi land- og náttúrufræði. Ekkert af því hcfur þó vcrið prentað ncma lýsing hans af Sprengisandi. er birtist í 7. árg. Nýrra félagsrita. En veturinn 1848 tók Magnús sig til og ritaði sain- fellda ferðasögu frá sumrinu 1846. f inngangi lætur hann þcss getið, að hún sé samin að ósk útgcfanda Þjóðólfs, er þá var að hefja göngu sína og átti hún að koma í blað- inu. Inn í ferðasöguna fellir Magnús svo smágreinir þær, er hann hafði áður ritað og cykur við sumar þeirra. En fcrðasagan kom aldrei í Þjóðólfi, hvað sem valdið hefur. Eiginhandrit höf. er geymt í Landsbókasafni (JS 543 8vo) og hefur eigi vcrið prentað fyrr en nú, að ferðasagan kemur í riti þeirra Pálma Hannessonar og Jóns Eyþórssonar: Hiakningar og heiSavegir II. Þó eru felldir þar niður smákaflar, og þar á meðal grein sú. er hér birtist. Kyntii Magnúsar Grímssonar af hinuin erlendu náttúrufræðingum sumarið 1846 tuðu til þess, að Kristján konungur áttundi veitti honum lítils háttar fjárstyrk til jrrðfraðirannókna sumarið 1848. Fór Magnús það sumar um Kjósar- og Borgarfjarðar- sýslu og ritaði síðan allýtarlega lýsingu af Kjósarsýslu og suður og efra hluta Borgar- fjarðarsýslu, sem geymd cr í Landsbókasafni JS 122 4to, og í IB 72 fol. er einnig lýsing Magnúsar af Revkjancsskaga 1847. — Þorvaldur Tboroddsen hefur í Landfræðisögu

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.