Fréttablaðið - 26.06.2009, Blaðsíða 52
32 26. júní 2009 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Leikarinn Lou Diamond
Phillips stóð uppi sem sig-
urvegari í bandaríska raun-
veruleikaþættinum „I‘m a
Celebrity … Get Me Out of
Here!“ á miðvikudagskvöld.
Lou Diamond, sem er 47 ára
gamall, bar sigurorð af glímu-
konunni Torrie Wilson og
körfuboltahetjunni fyrr-
verandi John Salley.
Sjónvarpsþættirn-
ir „I‘m a Celebrity
…“ eru teknir upp á
Kosta Ríka og líkj-
ast Survivor tals-
vert. Sérkenni þátt-
anna er hins vegar
að þar eru útbrunn-
ar kvikmynda- og
tónlistarstjörn-
ur áberandi, sem
og fólk sem er
frægt fyrir eitt
og annað. Fræg-
ustu myndir
Lous Diamond
Phillips eru
La Bamba og
Young Guns.
Lou Dia-
mond eyddi
þremur vikum í
að berjast við skor-
dýrabit og snáka og
stóð sig eins og hetja.
Hann var með friðhelgi mest
allan tímann sem keppn-
in stóð yfir vegna sigra
sinna í ýmsum þrautum.
Sigurlaunin gaf hann til
Art Has Heart-stofnunar-
innar.
„Þetta er það svakaleg-
asta sem ég hef nokkurn
tímann gert. Engar
kvikmyndatökur
jafnast á við
þetta – þetta er
alvöru og hefur
verið frábær
tími,“ sagði
Diamond eftir
sigurinn. Fjöldi
þátttakenda í
raunveruleika-
þættinum gafst
upp á miðri
leið, meðal ann-
ars leikarinn
Steph en Baldwin
sem uppgötvaði
að skordýr höfðu
tekið sér búsetu
undir húð hans.
Lou Diamond sigraði
í raunveruleikaþætti
SIGURVEGARI Lou Diamond
Phillips sigraði í raunveru-
leikaþáttunum „I‘m a Cele-
brity … Get Me Out of Here!“
> KLÁR LEIKKONA
Leikkonan Emma Watson,
sem er þekktust fyrir leik sinn
í Harry Potter-myndunum,
hyggst liggja yfir skólabókum
í haust. Leikkonan sótti um
í nokkra háskóla í Bandaríkj-
unum og komst meðal ann-
ars inn í Yale, Brown og Har-
vard. Hún kaus þó að stunda
nám við Columbia-háskól-
ann í New York.
Sérstakt útileikhús á vegum Vodafone mun gleðja
landsmenn með ýmsum skemmtilegum uppákom-
um í sumar. „Við erum götulistahópur og ætlum ein-
faldlega að mála bæinn rauðan í sumar. Hópurinn
samanstendur af ungmennum á aldrinum 17 til 24
ára og þetta eru allt mjög hressir og skemmtilegir
krakkar sem gaman er að vinna með,“ segir Bjarni
Snæbjörnsson, leikstjóri Útileikhússins. Hálfgerður
sirkusbragur er yfir leikhópnum en auk tíu leikara
eru fimm Parkour-listamenn sem munu leika listir
sínar fyrir gesti og gangandi. Hópurinn hyggst fara
á stúfana hverja helgi í sumar og segir Bjarni að
fólk megi búast við því að hann skjóti upp kollinum
hvar og hvenær sem er. „Við ætlum að koma fólki að
óvörum og dúkka upp hér og þar. Við ætlum ekki að
einskorða okkur við miðbæinn heldur munum við
einnig fara út á land og taka þátt í ýmsum hátíðar-
höldum þar. Við munum æfa ný atriði í hverri viku
þannig að þeir sem hafa séð okkur einu sinni geta
séð okkur aftur án þess að vera að horfa alltaf á
sama atriðið,“ segir Bjarni að lokum. - sm
Ætla sér að mála bæinn rauðan
KRAKKARNIR Í ÚTILEIKHÚSINU Þessi hressi hópur mun skjóta
upp kollinum víðs vegar um landið í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hljómsveitin The Killers frá
Las Vegas ætlar að ljúka við
nýja plötu með lögum eftir aðra
tónlistarmenn á þessu ári.
„Þetta er eitthvað sem við
höfum lengi talað um að gera
og erum enn að tala um það,“
sagði söngvarinn Brandon
Flowers. „Okkur finnst erfitt
að velja lög sem skilgreina
hvern og einn okkar sem
einstakling. Ég er til dæmis
margslunginn persónuleiki
sjálfur. Ég fíla alls konar
tónlist, þar á meðal Neil Dia-
mond og The Cars.“
Trommarinn Ronnie Van-
ucci vill sjálfur hafa lög eftir
Genesis, Tom Waits, Cyndi
Lauper og Iggy Pop á plöt-
unni. Hann er einnig að velta
fyrir sér nokkrum lögum með
hinni vinsælu Fleet Foxes.
Vanucci segir að The Kill-
ers ætli að vinna að plötunni
á tónleikaferð sinni um heim-
inn sem stendur nú yfir. Þeir
félagar tóku upptökugræjur
með sér í ferðalagið og ætla
að vera duglegir að taka upp
um leið og þeim gefst frítími
frá tónleikahaldinu.
The Killers verða annars
önnum kafnir í sumar því á
meðal tónlistarhátíða sem hún
ætlar að heimsækja eru Rock
Werchter-hátíðin í Belgíu,
T in the Park í Bretlandi og
Lollapalooza í Bandaríkjun-
um. Í haust tekur síðan við
umfangsmikil tónleikakaferð
um Bandaríkin.
The Killers undirbýr nýja plötu
THE KILLERS Hljómsveitin The Killers frá Las Vegas er að undirbúa nýja
plötu sem er væntanleg á þessu ári.
Lífið og tilveran er ekki
einföld í heimi hinna ríku
og frægu. Og hún er ansi
flókin, sagan af Justin
Timberlake og Lindsay
Lohan í New York.
New York Post, eitt helsta
stjörnublað New York-borgar,
greindi frá því á miðvikudaginn
að Justin hefði neitað að dansa
við Lindsay Lohan á skemmti-
staðnum Avenue sem er í miðju
Chelsea-hverfinu. Sjónarvottar
sögðu við blaðið að vandræða-
gripurinn hefði reynt að stíga
í vænginn við söngvarann en
hann hefði verið snöggur til og
afþakkað boð um stuttan dans
ansi hastarlega. Enda hefði það
eflaust litið illa út ef unnusta
hans, leikkonan Jessica Biel,
hefði frétt af slíku uppátæki því
fjölmiðlar þar vestra hefðu ekki
verið lengi að þefa slíkt upp.
Líkt og Hallgerður launaði
Gunnari kinnhestinn ákvað
Lindsay að gera Justin töluverð-
an grikk. Því samkvæmt fyrstu
fréttum fór Lindsay rakleið-
is inn á Twitter-síðu sína eftir
skemmtistaðarferðina og gerði
það að umtalsefni að Justin hefði
gert sér dælt við nokkrar stúlk-
ur inni á barnum með ágæt-
is árangri. Og fjölmiðlar þar
vestra voru ekki lengi að gera
þessa færslu að fréttamat og
reyndu að hafa uppi á Justin til
að spyrja hann hvort þetta væri
satt; að hann hefði gerst sekur
um framhjáhald inni á bar í New
York.
Fréttin tók nokkra snún-
inga, meðal annars kom eigandi
Avenue, Noah Tepperpberg, Just-
in til varnar í samtali við vefsíð-
una Page Six og vísaði Twitter-
fullyrðingum Lohan á bug. „Ég
var með honum allt kvöldið og ég
get fullvissað ykkur um að hann
gerði ekkert af sér. Ég er meira
að segja með öryggismyndavélar
sem sanna mál mitt,“ sagði Noah.
Lindsay sendi í kjölfarið frá sér
yfirlýsingu þar sem hún sagðist
ekkert hafa með þessa færslu að
gera, einhver hefði brotist inn á
síðuna hennar og skrifað þessa
lygi í hennar nafni. Menn geta
síðan velt vöngum yfir því hvaða
tölvunjörður var staddur í sömu
veislu og Lindsay Lohan og Just-
in Timberlake.
Timberlake og Lohan rífast
ÁVÍSUN Á VANDRÆÐI
Það virðist vera ávísun á vandræði að vera
inni á sama stað og Lindsay Lohan. Justin
Timberlake fékk að kynnast því. Eftir að hann
neitaði Lindsay um stuttan dans skrifaði leikkonan
að tónlistarmaðurinn hefði verið á fullu við að
reyna við ókunnugar stúlkur.
SENDU S
MS SKEY
TIÐ
ESL LVK Á
NÚMERIÐ
1900
ÞÚ GÆTIR
UNNIÐ B
ÍÓMIÐA!
AÐRIR VI
NNINGAR
ERU:
TÖLVULEI
KIR, DVD
MYNDIR
, BÍÓMIÐ
AR,
GOS OG M
ARGT FLE
IRA
FRUMSÝ
ND 24. J
ÚNÍ
TVEIR VIT
LEYSING
AR.
FULLT AF
LESBÍSK
UM VAM
PÍRUM.
EIN SVAK
ALEG NÓ
TT!
WWW.BREIK.IS/LVK
9. hver
vinnur!
Vinningar verða afhentir í ELKO Lindum.149 kr/skeytið.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.