Samvinnan


Samvinnan - 01.06.1956, Qupperneq 30

Samvinnan - 01.06.1956, Qupperneq 30
Hugmyndasamkeppni um umferðamál 10.000.00 krónur í verölaun þátttakendur svara spurningunni: Ilvað er SAMVINNUTRYGGINGAR efna hér með til almennrar hugmyndasamkeppni, og skulu hægt að gera til að fækka umferðaslysum og árekstrum og auka umferðamenningu þjóðar- innar? Svörin skulu vera mest 1000 orð og skulu fel- ast í þeim hugmyndir eða tillögur, er að efn- inu lúta, svo og helzt einhver rökstuðningur fyrir hugmyndunum. Því eru engin takmörk sett, hvers eðlis hugmyndir og tillögur þessar mega vera, svo framarlega sem framkvæmd þeirra mundi efla umferðamenningu þjóðar- innar og draga úr umferðaslysum — og tjóni. Öllum er heimil þátttaka í samkeppni þess- ari, hvort sem þeir eru ungir eða gamlir, hvort sem þeir hafa ökuréttindi eða ekki. Undanskil- in er aðeins dómnefndin og starfsfólk Sam- vinnutrygginga ásamt heimilisfólki þessara aðila. Þátttakendur skulu merkja svör sin með einhverju dulnefni, setja síðan fullt nafn og heimilisfang í lokað umslag, skrifa sama dulnefni utan á það láta það fylgja með svarinu. Svörin skal senda til Samvinnutrygginga, Reykjavík, og merkja þau „Samkeppni". Skulu þau hafa verið póstlögð fyrir 10. júlí næstkomandi. í dómnefnd eiga sæti: Jón Ólafsson, framkvæmdastjóri Samvinnutrygginga. * Ólafur Jónsson, fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík. * Guðbjartur Ólafsson, forseti Slysavarnafélags íslands. * Aron Guðbrandsson, stjómar- maður Félags íslenzkra bifreiðaeigenda. * Bergsteinn Guðjónsson, formaður Bifreiðastjórafélagsins Hreyfils. * Benedikt Sigurjónsson, hæstaréttarlögmaður * Ólafur Kristjánsson, deildarstjóri Bif- reiðadeildar Samvinnutrygginga. Tvenn verðlaun verða veitt fyrir beztu svörin við spumingunni, fyrstu verðlaun 7.000.00 krónur og önnur verðlaun 3.000.00 kr. SA3MivnKri:íii7,iriœ,'y'(K(EnK'©ÆJK, Sambandshúsinu — Reykjavík.

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.