Andvari - 01.01.1979, Blaðsíða 41
ANDVARI
BERSERKJAHRAUN
39
Þótt segja megi, að Berserkjahraun sé
mjög gróðursnautt og ófært og illfært
utan vegar, þá eru þó víða gróðurvinjar
og berjalautir, og þar má sjá nokkrar
tegundir blómjurta og lyngs, sem ekki
finnast annars staðar í grennd, og má í
því sambandi nefna mjaðjurtir, maríu-
stakka, hrútaberjalyng, sóleyjar, rjúpna-
lauf, aðalbláberjalyng, bláberja- og
krækiberjalyng, auk þess einir og reyn-
ir og fleira, sem ég kann ekki að nefna,
og margt kann þar að vera, sem ég hefi
ekki séð, því þó ég hafi farið þarna um
í fjárleitum mörg undanfarandi ár, þá
má segja, að hraunið sé ókannað af
mér og svo til óþekkt.
Og þó lítill gróður sé í hrauninu
annar en grámosi, þá má þó víða finna
þar góða berjabletti, og utan með í
hraunköntunum eru víða fallegir
hvammar og brekkur. En þó vekur
mesta athygli fjölbreytni í hrauninu
sjálfu, ég held, að fólk, sem hefir auga
fyrir þess lags fegurð og tíma og tæki-
færi til að korna og skoða Berserkja-
hraun, muni sjá margt þar, sem óvíst er
að hægt sé að sjá annars staðar.