Andvari - 01.01.1979, Blaðsíða 102
FINNBOGI GUÐMUNDSSON:
Gamansemi Snorra Sturlusonar
I þáttum þeim, er hér fara á eftir, verður brugðið upp vmsum dæmum um
gamansemi Snorra Sturlusonar, byrjað á dæmum úr Eddu, þá tekið til við Egils
sögu og loks endað á Heimskringlu. Stundum eru dæmi tekin til samanburðar
úr fleiri en einu þessara verka.
Snorri segir svo í formá'la Eddu, að menn skildu það í öndverðu, „at a'l'lir
hlutir væri smíðaðir ór nökkuru efni“, og sannast það vissulega á verkum hans.
Hann hefur dregið saman margvíslegt efni og unnið úr því, stundum fylgt
heimildum sínum allnáið, en þó oftar breytt og þá tíðast til batnaðar.
Eins og öll stórskáld stelur hann 'frækilega, en verður ekki sóttur til saka
fyrir það, því að hann setur lengstum snillimark sitt á það. Gildir um hann
það, sem Dryden sagði fyrrum um Ben Jonson: „Það sem héti stuldur hjá
öðrum skáldum, kallast yfirhurðir einir, þegar hann á í hlut.“ Er þess þá og
að gæta, að á dögum Snorra háfa menn eflaust farið frjálslegar með verk
annarra en síðar he'fur þótt hlýða, og sýnir þó sagan af Auðuni illskælda og
Stolinstefju hans, að höggva mátti svo nærri, að til þess væri tekið og í minn-
um haft.
1 dæmunum um gamansemi Snorra er einungis stundum kannað, úr
hvaða éfniviði hann hefur unnið, þar eð þungt yrði í vöfum að rekja það út í
æsar hverju sinni. Góð saga, þótt aðfengin sé, lýsir sögumanni engu að síður,
smekk hans og tilfinningu 'fyrir því, hvað frásagnarvert er, aðalatriðið, að
sagan versni ekki í meðförunum, heldur batni, svo sem oftast er um þær frá-
sagnir, sem Snorri hefur frá öðrum. Svo er fyrir að þakka, að í ýmsum heim-
ildum, sem vitað er, að Snorri hefur stuðzt við og enn eru varðveittar, finn-
ast frábærar sögur, sem hann hefur sleppt. En sögur þær, scm hann hefur
samið og ékki verða nú raktar til annarra, eru svo margar og snjallar — og
sumar svo glögglega með hans merki brenndar —, að þær skipa honum í
fremstu röð ritsnillinga jafnt að fornu sem nýju.
Þess skal að lokum getið, að sumt efni í þáttunum hér á eftir héfur birzt
áður, en iflýtur nú á prent aftur, svo að dæmi verði tekin úr öllum verkum
Snorra. Ég á þar við rit mitt Gamansemi Egluhöfundar, gjatfabók Almenna
bókafélagsins í desember 1967, og ritgerðina um gamansemi Snorra í Ólafs