Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1988, Síða 161

Andvari - 01.01.1988, Síða 161
andvari „LAND MÍNS FÖÐUR“ 159 hvað er ómgöfug lind, hvað er upphafið fjall, hvað er angan mín, tíbrá og þeyr, ef í gegnum það allt heyrist örmagna kall þess, sem út af í skugganum deyr? Rödd landsins fordæmir þá heimsku, að vinnufús þjóð skuli snúast iðjulaus kringum verkefnin, meðan skorturinn vex og feigðin brýst inn í sálirnar, og afneitar þeim börnum sínum, sem knýja veikari bróður á hjarn og vilja gína ein yfir auði síns lands. Og þegar hún felur syni sínum hag sinn og segir: Pú ert maður of stór, þú ert maður of dýr, til að minnka við afslátt og svik! vex honum ásmegin, hann rís hljóður og sæll upp úr rústum fallinnar borgar, leggur hornstein að annarri og brýnir landa sína alla til að slá skjaldborg um réttlætið. Það má gjarnan taka þetta volduga kvæði sem dæmi margra ann- arra úr skáldskap Jóhannesar, þar sem glöggt kemur fram sá skilningur hans, að gildi íslands fyrir íslendinga sé ekki síst fólgið í þeirri eggjun og hvatningu, sem af því leiðir að eiga svo dýrlegt land. Fegurð náttúrunnar og tign verður þjóðinni táknrænn vegvísir og leiðarstjarna í stríði dægranna, hugdeigum brýning og hrjáðum styrkur. Það getur í fljótu bragði virst þversagnakennt, að maður, sem gerðist jafneindreginn sósíalisti og Jóhannes, skyldi verða það ættjarðarskáld, jafn- vel átthagaskáld, sem raun ber vitni, og ljóð hans flest bundin einu landi, einni þjóð. Raunar orti hann ófá kvæði um samtímaviðburði erlendis og samúð hans var engan veginn staðbundin. En hins ber að minnast, að þrátt fyrir alþjóðahyggjuna var þjóðerniskenndin mjög gildur þáttur í baráttu þeirrar kynslóðar sósíalista, sem hann tilheyrði. Þeim var ljóst, að hver verður að rækta sinn garð, þann reit, sem hann er bundinn óslítandi böndum, °g í ljóðum hans er ísland aðeins tákn jarðarinnar allrar og barátta lands- manna samofin baráttu mannkynsins fyrir brauði og rétti. En hvers virði það var Jóhannesi sem skáldi að eignast þá sannfæringu, sem hann barðist fyrir til æviloka, sést skýrt af samanburði tveggja fyrstu ljóðasafna hans og þeirra, sem á eftir komu. Fyrstu bókunum má líkja við landslagsmálverk í björtum og daufum litum, en þegar maðurinn er kominn í forgrunninn og baráttu- og ádeiluljóðin koma til sögunnar, þrungin sársauka og samkennd skáldsins, fær myndin nýja vídd, hlutföllin breytast, andstæðurnar kallast á, og línur og litir dökkna og skýrast og ljá henni kraft og tign. Þeir, sem af skyndingu vilja ganga úr skugga um sannleiksgildi þessara °rða, geta borið saman Hátíðarljóð 1930 og íslendingaljóð 17. júní 1944. Hið fyrra er langur bálkur, ortur vegna Alþingishátíðarinnar, þar sem les- andanum finnst mælskan a.m.k. sums staðar verða að innantómri mælgi, en
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.