Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1953, Page 60

Andvari - 01.01.1953, Page 60
56 Magnús Már Lárusson ANDVARl frá árinu 1356, að vísu einvörðungu í afritum frá 17. öld. Þar segir, að Ingjaldshóll eigi reka frá Baðsteini til Sauðskers fyrir utan Hjalla, og skipshafnir tvær til Hjalla.40) í Jarðabókinni segir: „Þessi rekavon liggur svo vítt, að hún eftir undirrétting manna, skuli taka frá Sandskeri. Það liggur á millum Gufuskála og Brekkna allt inn að Bökkum á Rifi, laust frá Rifi, verður þar með þetta reka ítak fyrir Hraunskarðslandi, sem er kóngseign, fyrir Hellulandi, sem er kirkjueign og fyrir Keflavíkurlandi, sem hálf er kóngseign, en að helmingi kirkjueign." „Skipsuppsátur og búðarstöður á Hjallasandi, . . . og undirréttast nú, að þeim 4um búðarstöðum skuli fylga tvær skipshafnir".41) Mislestur virð- ist Sandsker vera, og ætti að lesa Sauðsker. Hjallar og Hjalla- sandur er eitt og hið sama. Leshátturinn „Sauðsker fyrir utan Hjalla" er staðfestur af tveimur skjölum frá árinu 1438, að vísu í afritum frá fyrra hluta 17. aldar,42) og Sauðsker heitir enn sker eitt milli Krossavíkur vestan Sands og plássins sjálfs, á miðri víkinni milli Brimness og Brekknahöfða, er kemur á þunt að mestu um fjörur (B. S. B.). í skjali, sem að uppistöðunni til er frá því um árið 1360, segir, að Þrándarstaðir eigi búð á Hjöllum og Þæfusteinn uppsátur á Hjöllum.43) I Jarðabókinni segir, að „Kalla- búð“ á Hjallasandi sé eignuð Þæfusteini og brúkist þaðan frí skipsuppsátur um vertíð.44) Og Hraunhúð á Hjallasandi er eign- uð Þrándarstöðum til frí skipstöðu og vergagna.45) Hjallar þessir eru löngu glataðir sem ömefni, en efalaust er það, að átt sé við stalla í landslaginu, en ekki fiskhjalla. Benedikt kaupmaður Benediktsson á Sandi telur, að hjallar þessir hafi getað verið utan í svokölluðum Brekknahöfða austan við sand- víkina, sem er milli Sauðskers og Brekknahöfða, sem kaupfélags- húsið stendur á, vestan Brekknalendingarinnar. Hins vegar mætti einnig gjöra sér í hugarlund, að þeir hafi verið nokkm austar eða um miðjan Sand, en sléttazt úr þeim smámsaman vegna öskuhauga og búðargjörðar. Brekkur heitir enn yzti hlutinn á Sandi. Þær eru nefndar í skjalinu frá árinu 1360, sem að ofan getur, og sagt, að Kjalvegur eigi búð og uppsátur á Brekkum.46) Þetta kem-

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.