Andvari - 01.01.1907, Blaðsíða 16
10
Páll Jakob Briem.
ýins störf, seni nú er orðið algengt, að þeir liaíi á
hendi, svo sem lóðasölu, húsasölu og þess háttar.
Hið eina starf, sem málfærslumenn þá höfðu á liendi
auk málfærslu, var innheimta skulda, en við það
vildi hann eigi fást, og vísaði venjulega frá sjer, ef
leitað \'ai' til hans í því skyni. Hann vísaði jafnvel
frá sjer málum, sem ilutt voru fyrir bæjarþinginu, og
var því í orðsins fyllsta skilningi einungis yfirrjettar-
málafœrslumaður.
Rangárvallasýslu þjónaði Páll Br. í liðug 4 ár,
eða þangað til hann tók við amtmannsembættinu
norðan og austan í nóvemberlok 1894, en veitingu
hafði liann fengið fyrir því 12. sept. s. á. Sýslu-
mannsembættinu gegndi liann með alúð og samvizku-
semi, en um leið röggsamlega. Hann komst fyrir
heilt þjófaíjelag, sem í mörg ár hafði stolið reka af
fjöru undir Eyjafjöllum, og varð úr því mjög um-
fangsmikið salcamál; sá orðrómur komst á lopt, að
sýslumaður hefði beitl mikilli liörku og ómannúð
við sakborninga í máli þessu, og notuðu fornir póli-
tískir andslæðingar hans þennan orðróm til þess að
ófrægja liann á ýmsan liátt, en í landsyfirrjettardóm-
inum er þess getið, »að það sjáist ekki af skjölum
málsins, að kærur þessar (um ólöglega hörku) hafi
við nokkur rök að styðjast«. Á þessuin árum var
Páll formaður kaupfjelags þar eystra, og í öllu leið-
togi bænda í ýmsum framkvæmdum. Fyrsl var
liann í húsmennsku í Odda, en síðustu árin hjó hann
i Árbæ í Holtum. Á þessum árum mun hann lítið
eða alls ekkert hafa fengizt við ritstörf.
þegar Páll Br. tók við amtmannsembættinu var
liann læplega fertugur, og því á hezta aldri. Hann
settist í það embætti, er margir af merkustu mönn-
um þjóðarinnar höfðu í setið; það var því mikil upp-
hvatning fyrir hann að feta í fótspor þeirra; forsjónin
hagaði því svo, að liann varð hinn síðasti amtmaður