Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1987, Blaðsíða 12

Stúdentablaðið - 01.12.1987, Blaðsíða 12
Tölvuvinna Vel skermaðir loftlampar, sem er ekki hafðir beint yfir vinnusvœðinu. Vinnulampi með stillanlegu birtu- magni. Ljósgeislar lampans beinast frá skjá og starfsmanni en lýsa á handritið. Veggir eru hafðir í dempuðum lit. Ljómi frá handriti, lyklaborði, skjá og umhverfi á að vera svipaður, þ. e. þessir hlutir þurfa að endurkasta álíka mikilli birtu. Skjánum er komið fyrir þannig að dagsbirtan komi frá hlið og á þann hátt er komist hjá óþœgilegu endur- kasti. 1. Hæð augna. 2. Hæð lyklaborðs frá gólfl. 3. Hæð tölvuskjás frá gólfi (frá miðju skjás). 4. Hæð handrits frá gólfl (frá miðju handrits). 5. Fjarlægð augna frá lyklaborði. 6. Fjarlægð augna frá handriti. 7. Fjarlægð augna frá tölvuskjá. Niðurstöður þessara mælinga þarf að hafa til hliðsjónar þegar sjónprófið er gert. Áður en mælingar er gerðar er mikilvægt að borð og stóll séu rétt stillt. Tölvuskjár, lyklaborð og handrit þurfa aö vera í þægilegri stöðu og helst í svipaðri íjarlægð frá notanda. Gleraugu Mjög æskilegt er að velja gler- augu, sem hafa verið meöhöndluö sérstaklega til að draga úr endur- kasti. Tvískipt eða fjölskipt gler- augu, sem ætluð eru til daglegra nota, henta að Jafnaði ekki þegar unnlð er við tölvuskjái. Þau eru ekki gerð fyrir þær fjarlægðir sem vlnna við tölvu krefst. Hægt er að nota tvískipt gleraugu sem eru sérstaklega gerð fyrir þær íjarlægðir sem skjávinnan krefst. Stúdentar sem nota linsur, þurfa í mörgum tilvikum einnig að nota hlálpargleraugu. Lýsing Kröfur um lýsingu við vinnu vlð tölvuskjái er mjög frábrugönar þeim kröfum sem gerðar eru við venjulegan lestur eða skriftir. Tölvuskjárinn er dökkur og auðveldast að lesa af honum þegar almenn lýsing herbergisins er dempruð. En um leið er þörf fyrir góöa lýsingu á handrit og lyklaborö. Andstæðurnar milli dökks skjás og bjarts umhverfls s.s. handrits og borð, veggja og gólfs geta verið truflandi og valdið glýju. Augað þarf þá í sífellu að aðlagast mismunandi ljóma hluta í umhverfinu. Þetta gerist með því að vöðvar augans stækka eöa minnka ljósopið eftir því sm við á, og getur valdið augnþreytu. Birta frá gluggum og ljósgjöfum getur speglast í tölvuskjánum og truflaö aflestur af skjánum. Ef stúdent, sem vinnur við skjá, klæðist hvít- um eða mjög ljósum fötum getur það valdið speglun í skjánum. Hvemig ber að hafa lýsinguna? Birta við venjulegar skriftir og lestur á að vera a.m.k. 500 lux (mælieining notuð um birtumagn sem fellur á ákveðinn flöt). Við tölvuskjái, sem eru oft eða stöðugt í notkun, er hins vega ráðlegt að birta sé 300-500 lux. Æskilegt er að hægt sé að stilla almenna lýsingu, svo að hægt sé að auka hana þegar önnur vinna fer fram. Hægt er aö minnka lýsingu með því að draga fyrir glugga og fækka loftlömpum í grennd vlð tölvuna. (Við almenna lýsingu á að nota lampa sem auðvelt er að skerma af.) Ákjósanlegasta staðsetning tölvuskjásins er þannig aö dags- birtan komi frá hlið - ekki framan frá eða aftan frá. Ef skjárlnn er nálægt glugga er nauðsynlegt að draga úr áhrifum birtu með gluggatjöldum. Ljómi frá handriti, lyklaborði og skjá á að vera svipaður þ.e. þessir hlutir eiga að 12 Stúdentablaðiö

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.