Fréttablaðið - 12.12.2009, Blaðsíða 150

Fréttablaðið - 12.12.2009, Blaðsíða 150
94 12. desember 2009 LAUGARDAGUR sport@frettabladid.is Lækjargata 2a sími 511-5001 opið alla daga frá 9.00 - 22.00 Helgar tilboð 3.995 2.995 Reginn ehf. er félag sem annast umsýslu og rekstur fasteigna og fasteignafélaga sem Landsbankinn kann að eignast við fullnustuaðgerðir. Félagið er að fullu í eigu Landsbankans. Fyrirhugað er að ráðstafa eignum m.a. með útleigu og sölu og leitar Reginn ehf. eftir öflugum sam- starfsaðilum á sviði fasteignasölu og leigumiðlunar fasteigna til að sinna þjónustu tengdri umsýslu á fasteignum félagsins. Verið er að leita að aðilum sem hafa víðtæka þekkingu, reynslu og öll tilskilin réttindi til að veita þjónustu á þessu sviði. Ráðgert er að gera þjónustu samninga við 3 – 4 aðila á hvoru sviði, þ.e. fasteignasölu og leigumiðlun. Þeir sem vilja kynna sér þær kröfur sem gerðar eru til samningsaðila og hafa áhuga á að veita umrædda þjónustu, geta óskað eftir frekari gögnum um málið með því að senda tölvupóst á netfangið reginn@reginnehf.is með upplýsingum um nafn, heimilis fang, símanúmer og kennitölu umsækjanda. Gögn verða afhent á rafrænu formi frá og með mánudeginum 14. desember 2009 og verða send viðkomandi í tölvupósti. Gögn verða ekki afhent á annan hátt, hvorki prentuð né á geisladiski. Skilafrestur upplýsinga frá áhugasömum er til 9. janúar 2010. Fasteignasala og leigumiðlun Logi Gunnarsson og félagar í St. Etienne eru komnir í gang í frönsku C-deildinni eftir erfiða byrjun. Logi er farinn að spila meira og meira með hverjum leik. „Við byrjuðum frekar illa og ég var ekki með í fyrstu fjórum leikjunum. Núna erum við farnir að vinna leikina, við unnum toppliðið um daginn og erum búnir að vinna tvo leiki í röð,“ segir Logi sem missti af upphafi tímabilsins vegna nárameiðsla. Auk meiðslanna þurfti Logi að búa á hóteli og gat ekki verið með fjölskyldu sína með sér. „Það var rosalega erfitt að geta ekki spilað og að vera einn. Núna er allt komið og fjölskyldan var að koma fyrir tveimur vikum. Það er rosalega fínt,“ segir Logi sem eignaðist son 10. október. „Það var erfitt að vera í burtu þegar strákurinn fæddist og ég missti af því. Ég fékk að fara heim daginn eftir að hann fæddist og fékk að vera heima í tvo daga.“ Það gekk ýmislegt á í byrjun móts eftir að St. Etienne-liðið var dæmt niður um deild. „Liðin fóru í verkfall og við mættum í fyrsta útileikinn okkar og enginn mætti í leikinn. Þeir náðu síðan að leysa þetta,“ sagði Logi. „Ef við vinnum þessa leiki okkar í desember verð- um við vonandi komnir meðal toppliðanna eftir áramót. Við erum með eitt best mannaða liðið en erum ekki alveg búnir að stilla strengina. Það kemur og við erum alltaf að líta betur og betur út,“ segir Logi. Logi hefur spilað mikið sem leikstjórnandi með St. Etienne. „Ég er bara að dreifa boltanum og er ekki að skjóta eins mikið og áður. Í síðustu leikjum hef ég bara verið að skjóta einhverj- um fjórum til fimm skotum í leik sem er eitthvað sem ég er ekki alveg vanur,“ segir Logi. „Ég hef alltaf getað spilað báðar stöðurnar en nú þarf maður alltaf að læra tvær stöður í öllum leikkerfum. Ég fagna þeirri áskorun að spila leikstjórnanda,“ segir Logi. „Maður er búinn að vera lengi í þessu og það er fínt að fá þetta land í reynslubankann. Þetta er eitt af þessum löndum þar sem mig langaði að prófa að spila og vonandi get ég gert það gott hér og séð síðan til hvað gerist í framhaldinu,“ segir Logi að lokum. LOGI GUNNARSSON: KOMINN MEÐ FJÖLSKYLDUNA SÍNA ÚT TIL FRAKKLANDS OG ORÐINN GÓÐUR AF MEIÐSLUNUM Var erfitt að missa af fæðingu sonarins KÖRFUBOLTI Jón Arnór Stefánsson er kominn með leyfi frá læknum CB Granada um að fá að spila á ný með liðinu í spænsku úrvalsdeild- inni en hann meiddist illa á baki í æfingaleik á móti rússneska liðinu Khimki 1. október. Meiðsli Jóns Arnórs voru það alvarleg að búist var við að hann yrði frá í fjóra mánuði en Jón Arnór ætlaði sér alltaf að koma til baka fyrir jól. Jón Arnór lagði mikið á sig til að komast aftur af stað og er hrósað fyrir dugnað á heimasíðu félagsins en þar er sagt að vinnusemi Jóns sé aðalástæð- an fyrir því að hann er kominn af stað eftir rétt rúma tvo mánuði. Jón Arnór var á sjúkrahúsi til 6. október og fór strax að vinna í að byggja sig upp á nýjan leik þegar hann kom heim. Hann hóf síðan æfingar 16. nóvember og fór síðan að æfa að hluta með liðinu 1. desember. Jón Arnór hefur síðan tekið þátt í æfingunum að fullu í þessari viku. CB Granada mætir Estu- diantes á útivelli á morg- un og verður Jón Arnór væntanlega í leik- mannahópi liðsins. Est- udiantes og CB Granada eru með jafnmörg stig en Granada hefur dreg- ist niður í fallbaráttuna á þessu tímabili og situr sem stendur í síðasta örugga sæti deildarinnar. - óój Jón Arnór Stefánsson má spila með spænska liðinu CB Granada í dag: Tveimur mánuðum á undan áætlun – þökk sé dugnaðinum TIL BAKA FYRIR JÓL Jón Arnór Stefánsson er orð- inn góður af meiðsl- unum langt á undan áætlun. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN > Stjörnuleikshátíð KKÍ í dag Það verður sannkölluð körfuboltahátíð í Dalhúsum, íþróttahúsi Fjölnis í Grafarvogi, í dag þegar Stjörnuleikir karla og kvenna fara fram með öllu tilheyrandi eins og þriggja stiga skotkeppni, troðslukeppni og skemmti- leik á milli frægðarliði KKÍ og úrvalsliði eldri lands- liðsmanna. Stjörnuleikur kvenna hefst klukkan 13.00 og Stjörnuleikur karla hefst klukkan 15.30. Troðslukeppnin og skemmtileikurinn (um kl. 14.30) eru á milli leikja og þriggja stiga keppnirnar eru síðan í hálfleik leikjanna. FÓTBOLTI Hornfirðingurinn Ármann Smári Björnsson hefur náð að stimpla sig inn í ensku C- deildina með Hartlepool United. Hann hefur til að mynda skorað í síðustu tveimur leikjum liðsins og uppskorið fyrir vikið hrós liðsfé- laga síns, Peters Hartley. „Tveir leikir, tvisvar í byrjun- arliðinu og tvö mörk. Það er ekki hægt að biðja um mikið meira en það hjá framherja,“ sagði Hartley við enska fjölmiðla. „Hann hefur verið frábær á æfingum og hefur ekki gefið neitt eftir. Ég er varn- armaður og er dauðfeginn því að þurfa ekki að dekka hann í föstum leikatriðum.“ Það hefur þó tekið sinn tíma fyrir Ármann Smára að vinna sér sæti í liðinu en hann kom til Eng- lands í september síðastliðnum frá Brann í Noregi. Hann vann sér strax sæti í leikmannahópi liðsins og kom inn á sem varamaður í sjö leikjum í september og október án þess að skora. Hann var svo „frystur“ á bekkn- um í nóvember en fékk loksins tækifærið í byrjunarliðinu þegar Hartlepool mætti Carlisle á útivelli hinn 1. desember. Ármann Smári var ekki nema fimm mínútur að setja mark sitt á leikinn og koma sínum mönnum yfir. Hartlepool tapaði reyndar leiknum, 3-2. Um síðustu helgi var Ármann Smári aftur í byrjunarliðinu og skoraði þriðja markið í 3-0 sigri á Millwall. Þá lék hann allan leikinn og var það í fyrsta sinn sem hann fékk að gera það hjá félaginu. „Þetta hefur vissulega tekið sinn tíma,“ segir Ármann Smári í sam- tali við Fréttablaðið. „En ég átti heldur ekki von á því að ég myndi labba beint í liðið þegar ég kom. Ég vissi að ég þurfti að bíða eftir mínu tækifæri og þá var bara spurning um að nýta það.“ Hann segist auðvitað hæst- ánægður með gang mála nú. „Jú, vissulega, en þetta eru bara tveir leikir. Ég þarf að einbeita mér að því að halda ótrauður áfram og berjast með liðinu.“ Hartlepool er hafnarbær í norð- austurhluta Englands, rétt norðan við Middlesbrough. Aðrir fótbolta- bæir, Newcastle og Sunderland, eru ekki langt undan. „Okkur hefur gengið misjafn- lega í þessari deild,“ segir Ármann Smári. „Við erum í ellefta sæti eins og stendur en það er mjög þétt- ur pakki um miðja deild. Það var markmið okkar að vera í hópi efstu tíu liða deildarinnar og vantar ekki mikið upp á að það takist.“ Hann sagðist ekki hafa vitað mikið um knattspyrnuna í þessari deild áður en hann kom út. „Þetta er mikill krafta- og háloftabolti. Það hentar mér reyndar ágæt- lega,“ sagði hann í léttum dúr. „En þetta snýst að mestu leyti um að koma boltanum sem fljótast frá okkar marki og nota svo kantana á hinum vallarhelmingnum og beita þar fyrirgjöfum.“ Ármann Smári á að baki sex A-landsleiki en rétt eins og hjá Hartlepool hefur hann nýtt tæki- færi sín vel þar. Hann á að baki einn leik í byrjunarliði og þá skor- aði hann fyrra markið í 2-1 sigri á Norður-Írum í undankeppni EM 2008. Hann hefur þó aðeins einu sinni komið við sögu í landsleik á undanförnum tveimur árum. „Ég hef auðvitað mjög gaman af því að spila fyrir hönd minn- ar þjóðar og vonandi fæ ég tæki- færi til þess aftur. Ég verð bara að halda áfram og standa mig – þá hlýtur að verða tekið eftir því. Tækifærið kemur bara þegar það kemur.“ eirikur@frettabladid.is Háloftabolti hentar mér Ármann Smári Björnsson hefur látið til sín taka með enska C-deildarliðinu Hartlepool að undanförnu. Hann hefur skorað í tveimur leikjum í röð eða í bæði skiptin sem hann hefur fengið tækifærið í byrjunarliði félagsins. SKORAÐI Í EINA BYRJUNARLIÐSLEIKNUM Ármann Smári Björnsson er hér í leik með íslenska landsliðinu gegn Norður-Írum árið 2007. Hann skoraði fyrra mark Íslands í 2-1 sigri. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.