Fréttablaðið - 22.12.2009, Blaðsíða 16
16 22. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR
FÆREYJAR Formaður Sjálfsstjórnar-
flokksins í Færeyjum, Kári P. Høj-
gaard, segist tilbúinn til þess að
þingmenn fái hér eftir ekki greitt
sérstaklega fyrir embætti innan
þings, svo sem þegar þeir fara með
formennsku í þingnefndum, heldur
verði þingfararkaup látið duga.
Hann og Jenis av Rana, for-
maður Miðflokksins, höfðu lagt
til að nefndarmönnum í tveimur
nefndum yrði fjölgað, þannig að
litlu flokkarnir, nefnilega Mið-
flokkur og Sjálfsstjórnarflokkur,
fengju þar sæti einnig. Þetta væru
lýðræðisumbætur því þá gæti
stjórnar andstaðan fylgst betur
með stjórnar flokkunum.
Sósíalurinn greinir frá því að
gagnrýnendur hafi þá vænt þá
Kára og Jenis um að vilja komast
í nefndina til að hækka í launum.
Þeir brugðust við með ofangreind-
um hætti.
Í Færeyjum mega þingmenn
sem gerast ráðherrar ekki vera
þingmenn um leið. Kári segir að
laun fyrrverandi ráðherra megi
einnig endurskoða. Ekki fari ekki
vel á því að ráðherrar, sem detta
úr ríkisstjórn og taka sæti á þingi
að nýju, séu á biðlaunum sem ráð-
herrar í einhverja mánuði. Nær
væri að láta ein laun, hærri upp-
hæðina, duga.
- kóþ
Formaður Sjálfsstjórnarflokksins í Færeyjum telur grunnlaunin duga:
Þingmenn missi nefndarlaun
KÁRI P. HØJGAARD Var vændur um að
vilja komast í nefnd peninganna vegna
og svarar með því að stinga upp á að
grunnlaun þingmanna verði látin duga
fyrir öllum þingstörfum þeirra.
FRÉTTABLAÐIÐ/KLEMENS
HÚSAVÍK Skemmdarverk hafa
verið unnin í skrúðgarðinum við
Búðará á Húsavík.
Í garðinum eru tveir fjallaþin-
ir og greinir þingeyski fréttamið-
illinn skarpur.is frá því að allar
neðstu greinarnar hafi verið sag-
aðar af öðru trénu. Líkum er leitt
að því að viðkomandi hafi líkast
til ætlað að skreyta húsið sitt
með stolnum greinum fyrir jólin.
Jan Klitgaard, garðyrkjustjóri
Norðurþings, segir tréð mikið
skemmt en þó ekki ónýtt. Lík-
lega muni taka áratug fyrir það
að jafna sig. Hann segir ótrúlegt
hversu litla virðingu sumir beri
fyrir þessum fallega garði. - th
Skemmdarverk í skrúðgarði:
Greinar sagað-
ar af fjallaþin
FERÐAÞJÓNUSTA Þrettán íslensk
ferðaþjónustufyrirtæki héldu
vinnufundi í Amsterdam og
Brussel í síðustu viku. Fulltrúar
fyrirtækjanna voru ánægðir með
viðtökurnar og telja góð sóknar-
færi á svæðinu. Búist er við sam-
drætti á ferðum Hollendinga til
flestra áfangastaða nema Norður-
landanna. Ástæðan er að náttúru-
skoðun er að verða eitt vinsæl-
asta viðfangsefni í ferðalögum.
Brussel er markaður þar sem
opnast fyrir mikla möguleika með
beinu flugi Icelandair þangað
næsta sumar. - shá
Hollendingar og Belgar:
Vilja koma til
að skoða landið
Sorpgjald lækkað
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs hefur
samþykkt að lækka gjaldskrá vegna
sorphirðu um 3,03 prósent.
FLJÓTSDALSHÉRAÐ
VIÐSKIPTI Jón Kr. Sólnes, stjórnar-
formaður Byrs, hefur ákveðið
að segja sig úr stjórninni vegna
rannsóknar sérstaks saksóknara
á viðskiptum Byrs við eignarhalds-
félagið Exeter. Jón hefur réttar-
stöðu grunaðs manns í rannsókn-
inni, þrátt fyrir að telja sig hafa
hreinan skjöld í málinu, að því er
segir í tilkynningu frá honum.
Jón segir að tildrög þeirrar stöðu
sem upp er komin séu að 19. desem-
ber 2008 hafi hann verið kallaður
inn á stjórnarfund í Byr sem vara-
maður. Á fundinum hafi verið sam-
þykkt að framlengja yfirdráttar-
lán til Exeter, sem sagt hafi verið
í eigu MP fjárfestingar banka.
Lánamörk hafi verið hækkuð til
að mæta vaxtagreiðslum.
Segir Jón að á fundinum hafi
komið skýrt fram að ekki væri
ætlunin að nýta reikninginn í bráð,
„en atburðarás næstu vikna leiddi
í ljós að við það var ekki staðið,“
segir Jón. Segir Jón að nauðsyn-
legt sé að fullkomið traust ríki í
garð þeirra sem koma að endur-
reisn sparisjóðsins. Því vilji hann
víkja til hliðar meðan hann hafi
réttarstöðu grunaðs manns.
Fréttablaðið greindi frá því í síð-
ustu viku að Jón Þorsteinn Jóns-
son, fyrrverandi stjórnarformaður
sparisjóðsins, hefði verið úrskurð-
aður í farbann vegna rannsóknar-
innar. Hann hefur nú réttarstöðu
sakbornings. - sh
Er grunaður í rannsókn sérstaks saksóknara á Byr:
Jón Kr. hættir sem
stjórnarformaður
GRUNAÐUR MAÐUR Jón Kr. Sólnes, fyrir miðri mynd, hefur gegnt stjórnarformennsku
í Byr síðan Jón Þorsteinn Jónsson lét af störfum sem stjórnarformaður í maí síðast-
liðnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
DÓMSMÁL Rúmlega fertugur
karlmaður hefur verið dæmdur
í Hæstarétti í eins árs fangelsi
fyrir að hjóla á lögreglumann.
Föstudagsmorguninn 6. apríl
2007 var maðurinn á ferli á reið-
hjóli sínu um Fellahverfi í Breið-
holti. Hafði hann skömmu áður
haft samband við konu sem hann
hafði eitt sinn verið í tygjum við.
Þar sem konan taldi sig hafa
orðið fyrir endurteknu ónæði af
hálfu mannsins hringdi hún til
lögreglu og kvartaði yfir þessu.
Fóru lögreglumenn heim til kon-
unnar og fóru svo að svipast um
eftir manninum. Lögreglukona
klædd einkennisbúningi lögreglu,
var stödd ofarlega á göngustíg
sem er á milli fjölbýlishúsa. Kom
maðurinn hjólandi upp stíginn á
nokkurri ferð og lenti hjól hans á
lögreglukonunni sem við það féll
og handleggsbrotnaði. Hún þurfti
að undirgangast aðgerð hjá bækl-
unarlækni sem setti spöng ofan á
handlegginn og festi með fimm
skrúfum. Gat hún ekki hreyft
úlnliðinn eðlilega eftir brotið.
Héraðsdómur hafði áður dæmt
manninn í fimm mánaða fang-
elsi, meðal annars vegna þess að
hann hafði með athæfi sínu rofið
skilorð. Hæstiréttur þyngdi dóm
hans vegna þessa brots um sjö
mánuði. - jss
Dómur þyngdur um sjö mánuði:
Hjólaði á lögreglumann
og situr inni í eitt ár
ANDVÍGUR NAUTAATI Þessi andstæð-
ingur nautaats stillti sér upp fyrir utan
þinghús Katalóníu í Barcelona á Spáni
með skilti þar sem krafist er banns.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP