Fréttablaðið - 22.12.2009, Blaðsíða 62
46 22. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR
folk@frettabladid.is
„Þetta byrjaði sem verkefni í skól-
anum sem við fengum 48 tíma til að
framkvæma. Einu fyrirmælin sem
við fengum voru að taka verkefnið
út fyrir skólann og láta gott af okkur
leiða,“ segir Anna Rakel Róberts dóttir
Glad, nemandi í grafískri hönnun í
Listaháskóla Íslands. Í gær gekk hún
niður Laugaveginn ásamt þeim Hildu
Björgu Stefánsdóttur og Kötlu Rós
Völudóttur samnemendum sínum,
þar sem þær fengu vegfarendur til að
teikna eða skrifa skilaboð, en þetta er
í þriðja sinn sem þær stöllur gera slíkt
hið sama fyrir jól. „Við báðum fólk að
teikna eða skrifa eitthvað sem því
liggur á hjarta, einhvern áróður
eða eitthvað í umhverfinu,“
útskýrir Anna Rakel, en
afrakstur inn var sýndur á
Prikinu í gærkvöldi. „Við skönnuðum
þetta inn og hengdum upp. Þetta er
engin grafísk snilld eða meistaraverk
heldur erum við bara að sýna vegfar-
endum á Laugaveginum hvað var að
gerast þar þann daginn,“ útskýrir hún
og segir Pixel hafa styrkt þær undan-
farin þrjú ár.
Aðspurð segir Anna Rakel mikinn
mun vera á skilaboðum og teikningum
fólks milli ára. „2007 voru allir mjög
„ligeglad.“ Í fyrra var svo margt sem
tengdist hruninu, en núna upplifðum
við meiri samstöðu og kærleik,“ segir
hún. „Við erum búnar að taka upp
myndband öll þrjú árin og planið er að
setja upp vefsíðu þar sem fólk getur
séð myndböndin og spjöldin samhliða.
Stefnan er svo að gefa út bók um verk-
efnið í janúar,“ bætir hún við. - ag
Tóku púlsinn á Laugaveginum
TEIKNA OG SKRIFA SKILABOÐ Þær Anna Rakel,
Hilda Björg og Katla Rós fengu vegfarendur á
Laugaveginum til að teikna og skrifa skilaboð
í gær. Þær nutu aðstoðar Ragnars Más Nikulás-
sonar, en afraksturinn var sýndur á Prikinu í
gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Stefanía Ómarsdóttir hefur
heillað Dani upp úr skónum
sem hin níu ára gamla
Ásta í verkinu Seest. Henni
er spáð miklum frama í
dönsku leikhúsi og hún var
á forsíðu Berlingske Ti-
dende um helgina þar sem
henni er hælt á hvert reipi.
„Slá í gegn, tja, þetta hefur bara
gengið mjög vel,“ segir Stefan-
ía þegar Fréttablaðið náði tali af
henni. Leikverkið Seest verður
sett aftur upp strax eftir áramót
og sýnt í bæði Kolding og Allerød
eftir mikla velgengni í fyrra hjá
Mungo Park-leikhúsinu. Sögusvið
Seest er samnefndur smábær rétt
fyrir utan Kolding og hið hræðilega
flugeldaslys sem reið yfir íbúana
árið 2004. Einn slökkviliðsmaður
dó og 750 fjölskyldur misstu heim-
ili sitt í þessum harmleik og Stefan-
ía útskýrir að rannsóknir hafi sýnt
að börn á svæðinu þjáist mörg af
áfallaröskun. Um það snúist leik-
ritið. „Ég leik Ástu, hún er níu ára
og er að safna saman brotum úr
lífi sínu,“ segir Stefanía en danskir
gagnrýnendur héldu vart vatni yfir
frammistöðu Stefaníu á sviðinu og
hún uppskar Reumert-verðlaun
(hina dönsku Grímu) sem ein af
björtustu vonum ársins. Berlings-
ke gerði meira að segja heiðar lega
tilraun til að eignast hlut í Stefan-
íu með því að kalla hana íslensk/
danska en leikkonan segist hafa
farið fram á það við blaðamann-
inn að hann leiðrétti það. Hún væri
Íslendingur og ekkert annað.
Stefanía ætlaði sér þó aldrei að
verða leikkona. „Nei, síður en svo.
Mig langaði alltaf að verða læknir
eða hjúkrunarkona,“ útskýrir hún
en hún er Garðbæingur og bjó hér
á landi til fjórtán ára aldurs, Þegar
foreldrar hennar skildu flutti hún
með mömmu sinni til Danmörku.
Hún kom þó aftur heim og bjó hér í
tvö ár áður en hún settist að í Dan-
mörku nítján ára gömul.
Stefánía eignaðist sitt fyrsta barn
það sama ár en það var svo fyrir
algjöra tilviljun að hún fékk leik-
listabakteríuna beint í æð. „Sofie
Stougaard, virt leikkona hér útí,
var með barn á sama leikskóla og
ég. Hún bauð mér á sýningu og það
var bara ást við fyrstu sýn,“ segir
Stefanía sem reyndi síðan árið eftir
við inntökuprófið í Leiklistarskól-
anum í Kaupmannahöfn. „Ég komst
inn í fyrstu tilraun og útskrifað-
ist 2005.“ Stefanía viðurkennir að
námið hafi verið erfitt og í við-
talinu við Berlingske kemur fram
að hún hafi á köflum verið við það
að gefast upp. Hún fékk því kær-
komna hvíld eftir útskriftina og
naut þess að vera heima með dótt-
ur sinni. Og svo eignaðist hún strák
árið eftir útskrift sem nú er tveggja
og hálfs. „Síðan hringdi leikstjórinn
Moqi Simon Trolin í mig árið 2008
og bauð mér hlutverkið í þessari
sýningu og ég ákvað bara að slá
til,“ segir Stefanía en honum hafði
hún kynnst innan veggja leiklistar-
skólans. Stefanía sér væntanlega
ekki eftir því, enda hefur danska
pressan borið hana á gullstól síðan
þá.
Stefanía er einstæð tveggja
barna móðir en lætur það ekki aftra
sér, segist bara verið hörkukvendi
sem láti verkin tala. Vinnan krefst
þess þó að allt sé skipulagt í þaula.
„Strákurinn fær að gista hjá pabba
sínum þegar ég er að leika og svo
hefur stelpan mín bara komið með
mér í vinnuna. Mamma hefur líka
lagt sitt á vogarskálarnar.“
freyrgigja@frettabladid.is
Íslensk leikkona leggur
Danmörk að fótum sér
Leikkonan Demi Moore ætlar að draga ljósmyndar-
ann Anthony Citrano fyrir dómstóla. Lögfræðing-
ur Moore hefur sent Citrano bréf þar sem honum
er hótað lögsókn dragi hann ekki ummæli sín um
Moore til baka. Citrano benti á að svo virtist sem að
forsíðumynd af Moore hefði verið ofunnin af mynd-
vinnslumönnum tímaritsins W og því virðist sem
hluta af læri leikkonunnar vanti.
Moore fer fram á að Citrano fjarlægi öll niðrandi
ummæli af netsíðu sinni ellegar hljóti hann verra af.
Citrano hefur þó neitað og segist standa við ummæli
sín og bendir jafnframt á að allar myndir sem rata
á síður tískutímarita séu unnar, þó að Moore vilji
meina að forsíðumyndin af henni sé algjörlega
óunnin.
Demi í hart við ljósmyndara
FER Í MÁL Demi Moore fer í mál við ljósmyndara.
SLÆR Í GEGN Stefanía
Ómarsdóttir hefur slegið í
gegn sem hin níu ára gamla
Asta í leikverkinu Seest en
það byggir á flugeldaslysinu
í Kolding árið 2004.
> DANSAR EINKADANS
Síðan söngkonan
Rihanna hætti með
Chris Brown hefur hún
verið orðuð við ýmsa
úr tónlistarbransanum
hið vestra. Nú nýlega bár-
ust fréttir af því að hún
hefði verið að slá sér upp
með Kanye West og gefið
honum lítinn einkadans á
skemmtistað í New York.
Tímaritið National Enquirer flutti
í október frétt af því að Mathew
Knowles, faðir og umboðsmaður
söngkonunnar Beyoncé, hefði átt
barn utan hjónabands. Kanadísk
kona hafði komið fram og sagst
hafa átt í stuttu sambandi við Mat-
hew og fór fram á faðernispróf til
að sanna að Mathew væri í raun
faðir barns hennar. Vefritið TMZ
segir frá því að Tina Knowles,
eiginkona Mathews, hafi sótt um
skilnað eftir 29 ára hjónaband.
Tine og Mathew eiga saman dæt-
urnar Beyoncé og Solange. Auk
þess rekur Tina tískufyrirtækið
House of Dereon ásamt Beyoncé.
Mathew Knowles hefur mikið
verið gagnrýndur af fyrrverandi
meðlimum Destiny‘s Child og
sakaður um óprúttna viðskipta-
hætti. TMZ gerir ráð fyrir að Tina
Knowles muni fara fram á helming
eigna Mathews en muni reyna að
halda sínum hlut í House of Der-
eon óbreyttum.
Sótti um skilnað
Wood ekkert án Jo
SKILNAÐARBARN Foreldrar Beyoncé
ætla að skilja eftir 29 ára hjónaband.
HÆTTUR Meðlimir
Rolling Stones hafa
fengið nóg af Ronnie.
Meðlimir hljómsveitarinnar Roll-
ing Stones hafa ákveðið að gefa
Ronnie Wood úrslitakosti, annað
hvort hættir hann drykkjunni
eða hann hættir í hljómsveit-
inni. Samkvæmt erlend-
um tímaritum var það
fyrrverandi eigin-
kona Woods sem gerði
honum kleift að sinna
tónlistinni sem skyldi.
„Án Jo hefði
Ronnie aldrei getað
spilað með hljóm-
sveitinni á tón-
leikaferðalögum.
Það er ekki hægt
að leggja upp í
tónleikaferða-
lag án þess að
hafa einhvers
konar trygg-
ingu, Jo hefur
séð um það. Öll samskipti undan-
farin ár hafa farið í gegnum Jo og
nú hefur Mick fengið nóg. Ronnie
hefur alltaf verið svolítið
týndur, án Jo getur enginn
náð til hans. Það er ólík-
legt að hann komi aftur
eftir þetta atvik,“ var
haft eftir innanbúðar-
manni. Ronnie Wood
hætt i ný ver ið
með t v ítug r i
kærustu sinni
eftir að hann
var handtekinn
fyrir að beita
hana ofbeldi á
almannafæri.