Menntamál - 01.09.1926, Page 6

Menntamál - 01.09.1926, Page 6
MENTAMÁL iió Kvíar. Páfarnir nýiu í Moskva hafa bannaS lestur eigi allfárra rita, til a'S forSa sjálfum sjer frá óþægilegum viðræhum og játend- um sínum frá óþörfum efasemdum. Þeir fylgja í þessu fordæmi annara páfa, er stýra kirkju- deilum e'Sa þjó'Smálaflokkum. Þeir vita, a'S stjórnin verSur þá auSveldari, ef takast má aS verja hina trúuSu fyrir innrás- um nýrra hugsana og hugsjóna. „HjörS vor dafnar best innan öruggs gerSis, er hindrar allar óþarfa útrásir, og vjer einir vitum hvaSa fóSur henni er holt,“ . -segja klerkar og kennrmenn og a'Srir lýStogar. En nrisjafn er sauSur í mörgu fje, og víSa finnat sjervitring- ar, sem fýsir a'S vita hvaS viS tekur utan réttarveggjanna. Þeir vilja vita, hvort þar vaxi engar jurtir, sem sjeu heilnæmari jrróttgjafar en kvíataSan. HjörSin verSur aldrei nægilega varin fyrir þessum afglöpum. Aldrei verSur þess of vel gætt, a'S engin ókyrS komi á k.víafjeS. Þá fyrst er vel, ef hjörSin hyggur rjett sína heim allann, og finnur hvorki til þrengsla nje ófrelsis innan veggja hennar. Þá eiga hirSarnir náSuga daga. Göngum vjer eigi oft viljugir í kvíar? Hlö'Sum vjer eigi um oss ókleifa garöa úr skoSunum bóka, blaöa og stallbræöra? Því eldri sem vjer veröum, því betur fellur oss aS jórtra gamla fóSriö, og því ánægöari verSum vjer meS þann kost, sem skóli sá, söfnuSur og flokkur vill bjóöa, er oss hefir fjötraS. Blett- urinn, sem vjer grillum, veröur oss ærinn heimur, og vjer fyrirlítum hvern þann, sem víSar vill sjá. Afglapinn, sem skygnst hefir yfir kvíavegginn, og sje'S nokk- uö gott utanrjettar, er kallaSur fri'Srofi, liShlaupi og trúvill- ingur. HjörS og hirSar rísa einhuga gegn honum. Múgurinn þolir eigi aS makt vanans sje rirS. Ótti viö alt nám, alla leit, alt nýtt, er runninn honum í blóS og merg, og þann aígeng- asta sjúkdóm, allra hjarta kvilla, er jafnörSugt aö lækna og æSakölkun.

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.