Menntamál - 01.08.1967, Blaðsíða 73
MENNTAMÁL
167
Jón Emil Guðjónsson
hefur verið framkvæmda-
stjóri Ríkisútgáfu náms-
bóka frá miðju ári 1956,
en þar áður var hann fram-
kvæmdastjóri Bókaútgáfu
Menningarsjóðs um 10 ára
skeið og hafði verið starfs-
maður Menningarsjóðs frá
árinu 1939, svo segja má,
að hann hafi verið í tengsl-
um við Ríkisútgáfuna nær-
fellt jirjá áratugi.
— Og úr því að við erurn að ræða um kennslubækur í
sögu, má geta þess, að gefin hefur verið r'it sem handrit ný
íslandssaga fyrir barnaskólana eftir Þórleif Bjarnason náms-
stjóra, sem nær yfir tímabilið frá upphafi íslandsbyggðar
og til ársins 1874.
— Hvað felst í því, að bók er gefin út sem handrit?
— Þá er hún gefin út í takmörkuðu upplagi til reynslu í
því skyni að gefa starfandi kennurum kost á að nota hana
og láta í ljós álit sitt á henni. Þetta höfum við gert við bók
Þórleifs, við gáfum öllum sögukennurum kost á að fá hana
í vetur, og væri æskilegt, að kennarar almennt skrifuðn til
höfundar eða Ríkisútgáfunnar um reynslu sína af bókinni.
— Það er dýrt að gera þetta, og það nær auðvitað ekki til-
gangi sínum, nema kennarar sinni þessu. Þetta er ekkert
einsdæmi með bók Þórleifs, við höfum áður gefið náms-
bækur út sem handrit í fyrstu.
— Og hver er reynslan?
— Ég vil ekki segja, að það hafi misheppnazt, fjarri því,
það hefur verið okkur nokkur styrkur, en Jrað væri mjög
æskilegt, að undirtektir kennara væru almennari, og ég vil