Menntamál - 01.08.1967, Blaðsíða 82
176
MENNTAMÁL
málastjórn forgöngu um námskeið íyrir starfandi kennara.
Sérstaklega bæri að fagna því, að starfsfræðsla væri nú hafin
í mörgum skólum landsins.
Náin samskipti við aðrar þjóðir leggja okkur meiri ábyrgð
á herðar. Framtíð okkar sem sjálfstæðrar þjóðar hlýtur að
fara eftir því, hvernig okkur tekst að varðveita sérkenni
þjóðarinnar, tungu, þjóðerni og andlega reisn, sem verið
hafa hornsteinar sjálfstæðisbaráttu okkar. Þjóðin verður að
halda vöku sinni og þroska með sér glögga dómgreind til
þess að velja og hafna, sagði formaður að lokum.
Við þingsetningu ávarpaði dr. Gylfi Þ. Gíslason mennta-
málaráðherra þingið. Hann ræddi lesturinn í skólum lands-
ins og þýðingu bókarinnar. Ráðherrann þakkaði samstarf
undanfarinna ára og árnaði þinginu heilla.
Síðan var tekið í'yrir aðalmál þingsins: Þjóðernið, skólinn
og uppeldið.
Þórhallur Vilmundarson prófessor flutti athyglisvert er-
indi um þetta mál og sagði frá könnun, sem gerð var á veg-
um kennarasamtakanna. Erindi Þórhalls verður ekki rakið
hér, þar sem það verður væntanlega birt í heild í næsta hefti
Menntamála.
Miklar umræður urðu um málið og gerði þingheimur
góðan róm að erindi Þórhalls.
Erindi um Ríkisútgáfu námsbóka flutti Jón Emil Guð-
jónsson framkvæmdastjóri. Hann sagði, að fjárhagsaðstaðan
hefði verið erfið fyrstu 20 árin, þar til tekjur útgáfunnar
komust á fastari grundvöll fyrir 10 árum.
114 bækur (bókatitlar) hafa verið gefnar út fyrir skólana.
Endurnýjun á bókakosti er í undirbúningi og athugun á
flokkaskipan lestrarbóka. Ræðumaður talaði um húsnæðis-
kaup ríkisútgáfunnar til að tryggja henni viðunandi að-
stöðu, svo hægt sé að hafa upplögin stærri og þjónustuna
betri.
Einnig ræddi Jón Emil um yfirstandandi kennslutækja-