Menntamál - 01.06.1970, Blaðsíða 18

Menntamál - 01.06.1970, Blaðsíða 18
breytingum á núgildandi löggjöf, þannig að orð hans frá 1965 gætu orðið að veruieika. Úrelt löggjöf. Löggjöfin um menntun bóknámskennara á gagn- fræðastigi er gjörsamlega í molum, hún krefst einfald- lega ekki kennaramenntunar. í lögum um gagnfræðanám nr. 48/1946, nánar til- tekið í grein 37, er fjallað um menntun kennaranna. Samkvæmt þessari lagagrein er þess ekki krafizt, að kennari í bóknámsgreinum hafi lokið námi iil undir- búnings undir starf sitt, hvorki í kennslugrein né kennslufræðum. Hins vegar er þess krafizt í lögum um fræðslu barna (sbr. 16. gr. laga um íræðslu barna nr. 34/1946) og sömuleiðis í lögum um menntaskóla. Gagnfræðaskólarnir eru því alger hornreka hvað þetta snertir. Þeir eru olnbogabarn skólakerfisins. Áðurgreind lagaákvæði hafa nú staðið óbreytt í aldar- fjórðung. Um forgangsrétt til kennslustarfa gilda ákvæði laga nr. 36, 11. júlí 1911. Einkum koma þar til greina 2. og 3. mgr. 1. greinar, en þeim var bætt inn í forgangs- réttarlögin 1952. Samkvæmt þessum greinum skulu þeir menn, er lok- ið hafa meistaraprófi eða kandidatsprófi í fsl. íræðum við Heimspekideild Háskóla íslands að öðru jöfnu hafa forgangsrétt iil kennslu í ísl. tungu, fsl. bókmenntum og íslandssögu við alla framhaldsskóla. Þeir, sem lokið hafa B.A.-prófi við Heimspekideild Háskóla íslands eða erlenda háskóla, skulu með hlið- stæðum hætti njóta forgangsréttar til kennslu við skóla gagnfræðastigsins og við sérskóla í þeim greinum, er próf þeirra tekur til. Það styðst við augljós rök, sem hér verða ekki rakin, að kennarar, sem hafa búið sig undir starf sitt með sérstöku námi, hafi ótvíræðan forgangsrétt í bók- námsgreinum á gagnfræðastigi, hvort sem á málið er litið frá sjónarhóli skólanna eða kennaranna. Jafnaugljóst er það, að forgangsréttarlögin eru hvergi nærri nógu skýr né afdráttarlaus. í skjóli íyrirvara og undantekninga er unnt að brjóta í bág við anda þeirra og tilgang. Ég leyfi mér að vekja sérstaka athygli á því, að samkvæmt forgangsréttarlögunum er þess ekki kraf- izt, að kennarar ljúki námi í uppeldis- og kennslufræð- um. í stað þess er visað til ákvæða í öðrum lögum, þar sem einungis er talað um nám í þessari grein, en ekki krafizt lokaprófs. Ákvæði um próf í uppeldis- og kennslufræðum er ekki að finna í lögum um gagnfræðanám, og var ekki í lögum um menntaskóla fyrir 17. marz s.l., er ný lög um menntaskóla voru samþykkt á Alþingi. Það var því fyrst ákveðið fyrir fáum mánuðum, að menntaskóla- kennarar skyldu hafa kennaramenntun. Þessum grund- vallarfræðum í kennslu og uppeldi er ekki gert hærra undir höfði en svo, enda þótt nágrannaþjóðir okkar, sem fjalla um skólamál í alvöru, leggi nú æ ríkari áherzlu á þessi fræði. Lagaákvæði þau, sem hér hefur verið lýst, eru því ýmist meingölluð eða að engu hafandi. Það verður að nema þau úr gildi og setja ný, og hefði raunar átt að vera búið að þvi fyrir löngu. Kennaraskorturinn. Og þá er komið að kennaraskortinum. Hann hefur skapað einn hinn hrikalegasta vanda, sem við er að etja á gagnfræðastiginu. Svo rammt hefur stundum kveðið að honum á undan- förnum árum, að enginn maður með háskólapróf í kennslugrein ásamt prófi I uppeldis- og kennslufræðum hefur sótt um stöðu við gagnfræðaskóla Reykjavíkur (sbr. haustið 1968). Samkvæmt yfirlitsskýrslu ;rá íræðslumálaskrifstof- unni fyrir skólaárið 1961—’62 voru 243 kennarar í bók- námsgreinum starfandi við skóla gagnfræðastigsins. Aðeins 62 höfðu fyllstu kennararéttindi (þ.e. háskóla- próf í kennsiugrein að viðbættu prófi í uppeldis- og kennslufræðum), þ.e. 25,5% allra bóknámskennara á gagnfræðastigi. Samkvæmt yfirliti frá sömu skrifstofu um setta og skipaða skólastjóra og kennara við skóla gagnfræða- stigsins skólaárið 1968—’69 voru íastir bóknámskenn- arar 436 að tölu, en aðeins 72 þeirra höfðu íyllstu kennararéttindi eða 16,5%. Tala kennara með íyllstu kennsluréttindi þ. e. réttindi, sem ein geta talizt full- nægjandi til kennslu bóknámsgreina — hefur því á tímabilinu 1962 til 1969, á einum 7 árum, lækkað úr 25,5% allra bóknámskennara í 16,5%. Dæmi eru til þess, að gagnfræðingar hafi kennt í gagnfræðaskólum úti á landi, og stúdentar hafi ann- azt stundakennslu i menntaskólum. Samkvæmt upp- lýsingum frá skrifstofu rektors við Menntaskólann i Reykjavík kenndu 10—15 stúdentar s.l. vetur við þann skóla. Stundakennarafarganið, þetta afkvæmi kennara- skortsins, ríður nú öllum húsum á gagnfræða- og menntaskólastigi. Jafnvel tugir stundakennara starfa við suma skólana. Þar hafa þeir ekki sömu skyldur og fastir kennarar, tengsl þeirra við skólana eru miklu lausari en hinna, sem íastráðnir eru. Eins og eðlilegt er, hafa þeir oftast nær miklu meiri áhuga á aðalstarfi sínu en aukastarfinu. Þeir eru yfirleitt í kennslu til þess að drýgja laun sin. Margir þeirra eru algjöriega rétt- indalausir og hafa ekki hina minnstu nasasjón af upp- eldis- og kennslufræðum. Það má með sanni segja, að við íslendingar erum á stigi vanþróaðra þjóða í þessum efnum. Þeir, sem kunna örlítið meira, kenna hinum, sem minna kunna. Þetta er tröppugangur eins og á Kúbu og í Kongó, aem fyrir fáum árum hafa öðlast sjálfstæði og þurfa að byggja menntun upp frá grunni. MENNTAMÁL 100

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.