Menntamál - 01.06.1970, Blaðsíða 30

Menntamál - 01.06.1970, Blaðsíða 30
Á þessum fundi var samþykkt: 1. Að koma á í vetur landsþingi samtaka íslenzkra kennaranema. 2. Undirbúningur þingsins verði falinn 6 manna nefnd, skiþaðri 3 nemum úr Kennaraskólanum og einum úr hverjum hinna þriggja skóla hér í Reykjavík. Auk undir- búnings þingsins verði nefndinni falið að semja drög að lögum og starfsáætlun íyrir samtökin. 4. febrúar s.l. skipaði Nemenda- ráð K.í. í undirbúningsnefndina: Guðmund Guðmundsson, 1. A, Halldór Þórðarson, 1. A, Helga Baldursson, 2. F. Úr hinum skólunum voru valin í nefndina: Úr Húsmæðrakennaraskólanum, Guðrún Ingvarsdóttir, Úr Myndlista- og handíðaskólanum, Fjóla Rögnvaldsdóttir, Úr Tónlistarskólanum, Gunnlaugur Ólsen. Nefndin lauk störfum og boðaði til Landsþings samtakanna ( Nor- ræna húsinu 11. og 12. apríl c.l. Þingið sóttu fulltrúar allra þeirra skóla, sem á sínum víma stofnuðu samtökin og kaus þeim stjórn. Nafn samtakanna or: Samtök Is- lenzkra kennaranema. Skammstaf- að: S.Í.K.N. Aðild að S.Í.K.N. eiga kennara- nemar í eftirtöldum skólum: Húsmæðakennaraskóla íslands, íþróttakennaraskóla íslands, Kennaraskóla Islands, söngkennaradeild Tónlistarskól- ans í Reykjavík. Landsþing samtakanna ákveður um þátttöku annarra skóla. Óski einstakir nemendur að standa utan samtakanna, ckulu þeir tilkynna það skriflega til stjórnar. Tilgangur samtakanna er: 1. Að kynna, ræða og gera tillögur um menntun kennaranema. 2. Að taka til meðferðar og kynna fjárhagsleg, menningarleg og kennslufræðileg viðfangsefni og hagsmunamál nemenda. 3. Að vera málsvari kennaranema MENNTAMÁL 112 gagnvart öðrum félagssamtökum og yfirvöldum landsins. 4. Að leita eftir samstarfi við kenn- ara og æskulýðssamtök á Is- landi og erlendis. 5. Að efla samvinnu milli norrænna kenriaranema með því að halda námskeið og fundi ásamt þátt- töku í N.S.L. 6. Að leita einnig samstarfs við kennaranema utan Norðurlanda. Stjórn S.Í.K.N. fyrir næsta starfs- ár er þannig skipuð: Form.: Guðmundur Guðmunds- son, K.í. Ritari: Sigurjón Mýrdal, K.l. Féhirðir: Guðrún Ingvarsdóttir, H.K.Í. Starfsáætlun Samtaka íslenzkra kennarnema. Samþykkt á lands- þingi S.Í.K.N. í Norræna húsinu, 11. og 12. apríl 1970. 1 Fjármál 1. Fastur tekjuliður samtakanna verða árgjöldin, sem landsþingið ákveður hverju sinni (sbr. 11. gr.). Nefndin telur heppilegast, að ár- gjöldin komi sem heild írá hverjum aðildarskóla fyrir sig, sem e.k. skattur til samtakanna. Æskilegt er, að gjalddagi árgjalda sé ákveðinn (t.d. um áramót). b) Fáist víxlar ekki framlengdir, eða ekki til nógu langs tíma telur nefndin nauðsynlegt, að sækja fjár- hagsaðstoð, sennilegast lán til skólafélags, fræðsluyfirvalda, eða annarra aðila, til að greiða skuldir samtakanna. 3. Fé til reksturs og úrvinnslu ákv. verkefna (skv. t.d. starfsáætlun) leitist samtökin við að afla sér í formi lána og styrkja frá: a. fræðsluyfirvöldum, b. norrænum menningarmála- stofnunum. c. norrænum kennarasamtökum, d. kennarasamtökum, c. öðrum aðilum. 4. Aðrar fjáröf lunarleiðir, sem hugsanlegar eru fyrir samtökin, t.d. á sviði skemmtanahalds, námskeiðs- halds o.fl.þ.h. 2. Fræðsla og kynning Samtökunum er nauðsyn á því að kynna tilgang sinn og starfsemi. Áróður samtakanna verður að vera skipulegur, upplýsingastarfsemin einföld og markviss. Helztu verkefni: 1. Að stuðla að aukinni kynn- ingu milli aðildarskólanna, í.d. með því að halda nemendamót í vormi árshátíðar. Margt íleira kemur til greina. 2. Að efna til funda með kennara- nemum og forsvarsmönnum fræðslu- mála og kennarasamtaka. Leggja ber áherzlu á samstarf við kenn- arasamtökin. 3. Samtökin leiti eftir samvinnu við dagblöð og ríkisútvarp um frétt- ir frá starfi samtakanna. 4. Samtökin gerist aðili að tíma- ritinu Menntamál, afli því kaupenda meðal kennaranema og noti blaðið til þess að kynna starf og stefnu samtakanna. 3. Erlend samskipti Þingið samþykkir eftirfarandi: 1. Að höfuðáherzla skuli lögð á eflingu camskipta við camsvarandi samtök erlendis, sérlega norræn samtök. a) Með nánum bréfaviðskiptum. b) Með áskrift að blöðum kenn- arasamtaka á Norðurlöndum. c) Með utanferðum fulltrúa á landsþing norrænna kennarasam- taka. Stjórn og fulltrúaráð Lands- sambands ísl. kennaranema ákveði hverju sinni, hvernig utanferðum skuli háttað og hverjir íari í þær ferðir. 2. Ritari stjórnar sé valinn með hliðsjón af málakunnáttu, cvo hann geti haft yfirumsjón með erlendum bréfaviðskiptum. Honum sé heimilt að kveðja sér til aðstoðar hjálpar- menn eftir þörfum.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.