Menntamál


Menntamál - 01.08.1970, Blaðsíða 22

Menntamál - 01.08.1970, Blaðsíða 22
Mánaðarlaun í 9 mánaða barnaskólum eru nú: Byrjunarlaun kr. 15.829,00, full laun eltir 12 ára starf kr. 18.487,00. í skólum, sem starfa færri mánuði á ári, eru árslaunin mun lægri. Laun skólastjóra eru nokkru liærri eítir stærð skólanna, en þó mun efnahagur þeirra með litl- um blóma. Hjá mörgum kennurum fer allt að því lielm- ingur launanna í húsaleigu. Öllum lilýtur þá að vera ljóst, að kennaralaunin hrökkva ekki til að framfæra fjölskyldu, þó fámenn sé, enda er stað- reyndin sú, að kennarar leggja á sig mikla auka- vinnu á starfstíma skólanna, og sumarfrís njóta þeir yfirleitt ekki, en ráða sig þá í ýmiss konar vinnu, ef fáanleg er. Þetta hlýtur auðvitað að koma niður á kenn- arastarfinu að einhverju leyti. Sá kennari nýtur sín ekki, sem er ofhlaðinn störfum og sér ekki fram úr fjárliagslegum örðugleikum. Afleiðing af lágum launum kennara er einnig sú, að fjöldi manns, sem ekki hefur kennara- réttindi, er ráðinn til starfa í skólum landsins, enda þótt til séu nægilega margir með kennara- réttindi, en þeir leita annars staðar fanga, þar sem betri kjör eru í boði. Þrjú síðastliðin ár var ljöldi réttindalausra manna við kennslu í barnaskólum þessi hlut- fallslega: Skólaárið 1967-68.... 14,24% 1968- 69 .... 12,05% 1969- 70 .... 10,55% Hlutfallstalan fer að vísu lækkandi, en þó er enn drjúgur spölur í land. Samkvæmt opinberum yfirlýsingum hefur fjár- hagur ríkisins batnað verulega undanfarið. Það virðist því augljóst, að laun opinberra starfs- manna hljóta að hækka verulega við næstu kjarasamninga. Kennarastéttin hlýtur að fylgja fast eftir kröf- um sínum um bætt launakjör og beita í barátt- unni öllum félagslegum mætti. Opinberir starfsmenn hafa ekki enn fullan samningsrétt um kjör sín, en sá tími getur ekki verið langt undan að þeir öðlist hann í krafti réttlætis og styrkra samtaka. Allsherjarjjing Sameinuðu þjóðanna samþykkti 17. desember 1968, að árið 1970 skuli kallað al- þjóða menntadr og að næsti áratugur skuli helg- aður menntun og uppeldi, eins og UNESCO lagði til. Allsherjarþingið og UNESCO skoruðu á allar aðildarþjóðir samtakanna að rannsaka menntunarástand í löndum sínum og hefja mark- vissa sókn í skóla- og uppeldismálum. Nú vill svo vel til, að hjá okkur hefur tekið til starfa stofnun skólarannsókna, sem vænta verð- ur mikils af, og verður á þessu þingi gerð grein fyrir störfum þeirrar stolnunar. Verið er að end- urskoða Iræðshdögin og lög um Kennaraskóla íslands. Því verður að treysta, að þessar aðgerðir séu upphaf að markvissri og farsælli sókn í skóla og uppeldismálum þjóðarinnar og að næsti áratugur verði sérstaklega helgaður menntun og uppeldi, eins og UNESCO mælist til. Samband íslenzkra barnakennara á fimmtugs- afmæli næsta ár eða 17. júní 1971. Síðasta fvdl- trúajung mælti svo fyrir, að sambandsstjórn skip- aði nefnd til þess að sjá um afmælið. Nefndin hefur tekið til starfa og gert tillögur um, á hvern hátt afmælisins skuli minnzt. Til- lögur nefndarinnar voru sendar öllum formönn- um svæðasambanda S.Í.B. og skólastjórum, og verða nú lagðar fyrir jvetta þing til umsagnar og ákvörðunar. Afmælisnefndin og sambandsstjórn eru sam- mála um að minnast afmælisins myndarlega og á margan hátt með það í huga að hvetja kenn- arastéttina og stjórnvöld til samvirkra átaka í skóla- og uppeldismálum. Góðir þingfulltrúar. Ég veit, að þið eruð allir mættir til þessa þings með það í huga, að vinna sem bezt í þágu skóla- og uppeldismála. Kennarastéttin verður að halda viiku sinni, hún veit bezt, hvar skórinn kreppir. Hún hlýtur því að eiga frumkvæðið að framför- um í skólamálum þjóðarinnar. Hún þarf einnig að heyja markvissa baráttu fyrir mannsæmandi kjörum kennara, svo að þeir geti leyst störf sín af höndum eins og efni standa til, kjörum, sem gera Jveim mögulegt að helga starfskrafta sína eingöngu skóla- og uppeldismálum. MENNTAMÁL 136

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.