Menntamál


Menntamál - 01.08.1970, Blaðsíða 25

Menntamál - 01.08.1970, Blaðsíða 25
mann Halldórsson, Ólafur H. Kristjánsson o. fl.) sýndu fram á með óumdeilanlegum rökum, að kennarar við héraðsskólana ynnu miklu fleiri vinnustundir en þeir fengju greiddar. Næsta mál á dagskrá var orlofsheimili B.S.R.B. og rakti Haraldur Steinþórsson, hvernlg málin stæðu i þeim efnum. Þar sem Ásgarður hefur nýlega flutt ýtar- lega skýrslu um þetta alriði, verður frásögn um þennan dagskrárlið slepþt hér. Þá flutti Ólafur S. Ólafsson fréttir frá skólarannsókn- um í forföllum Harðar Lárussonar. Hugmyndir skóla- rannsókna eru þær, að námskeið fyrir kennara fari fram víðar en i Reykjavík og verði bæði til endurhæfingar og viðbótarnáms. Laun verði e. t. v. greidd þátttakend- um í einhverju formi. Endanlegar tillögur um þetta mál lágu ekki fyrir. Fulltrúar L.S.F.K. á 27. þing B.S.R.B. var næsta mál á dagskrá. Ólafur S. Ólafsson reifaði málið og þá mis- ReykiavlK, 7/4 1970. Á 12. þingi L.S.F.K. var gerð sú breyting á lögum sambandsins, að kjörtímabil stjórnar og fulltrúa á þing B.S.R.B. var lengt í 3 ár, þ.e. að reglulegt þing L.S.F.K. skyldi eftirleiðis haldið á þriggja ára fresti. Þetta var gert að fengnum þeim upplýsingum um, að sams konar breytingar myndu gerðar á lögum B.S.R.B. á haustþingi 1968. Eftir að þessar breytingar voru gerðar á þingi L.S.F.K. var kosið í stjórn og einnig full- trúar á þing B.S.R.B. Nú var á þingi B.S.R.B. frestað að láta umræddar breytingar taka gildi fyrr en að loknu þingi 1970. Við þetta hefur myndazt ósamræmi milli laga L.S.F.K. og B.S.R.B. að þessu leyti. Þeir fulltrúar L.S.F.K., sem kosnir voru á þing B.S.R.B. 1968 hafa þegar setið eitt þing, en tvö ár verða liðin í júní frá kosningu þeirra. Þar sem samkvæmt lögum L.S.F.K. er óheimilt að kveðja til aðalþings og aukaþing er einnig varla bær aðili að kosningu fulltrúa á þing B.S.R.B., hefur stjórn L.S.F.K. einróma samþykkt tillögu þess efnis að fara þess á leit við stjórn B.S.R.B. að hún láti í Ijós álit sitt og meti hugsanlegar aðstæður, sem kynnu að skapast við þá ákvörðun, að sömu fulltrúar frá L.S.F.K. sitji næsta þing B.S.R.B., og bendi þá jafnframt á aðra hugsanlega lausn ef hún lelur þessa að einhverju leyti athugaverða. Bókun stjórnar L.S.F.K. er svohljóðandi: ,,Tekin var til umræðu umsögn Þórðar Eyjólfssonar, dr. jur. um ákvæði í lögum L.S.F.K. og B.S.R.B., hvernig haga beri fulltrúavali á þing B.S.R.B., sem væntanlega verður haldið í júní n.k. Eftir nokkrar umræður var samþykkt einóma að fara eftir þeirri umsögn sem þar um getur um tilnefningu á fulltrúum frá L.S.F.K. á þetta þing, sem er á þá leið, að endurnýja beri kjörbréf fulltrúa L.S.F.K. frá síðasta þingi B.S.R.B. og tilkynna jafnframt stjórn B.S.R.B. um eðli og gang málsins með fyrirvara um endurskoðun". Afrit af umsögn dr. jur. Þórðar Eyjólfssonar fylgir. Stjórn L.S.F.K. væntir þess, að þetta mál verði afgreitt eins fljótt og kostur er. Virðingarfyllst, f.h. stjórnar L.S.F.K. Ólafur S. Ólafsson. Til stjórnar B. S. R. B. Reykjavík, 14. apríl 1970. Á fundi stjórnar B.S.R.B. í dag var samþykkt svofelld ályktun með 6 atkv. gegn 3, en 2 sátu hjá. ,,Vegna erindis stjórnar L.S.F.K. dags. 7. þ. m. um fulltrúa landssambandsins á 27. þing B.S.R.B. tekur stjórn B.S.R.B. fram, að hún telur að rétt sé I sllku máli sem þessu að leita ráða færustu lögfræðinga, eins og stjórn L.S.F.K. hefur gert. Að fengnu áliti Þórðar Eyjólfssonar, fyrrverandi hæstaréttardómara, hallast stjórn L.S.F.K. að því, að rétt sé að gefa út ný kjörbréf til þeirra fulltrúa á þing B.S.R.B., er kosnir voru á þingi L.S.F.K. fyrir tveimur árum. Þing B.S.R.B. hefur ákvörðunarvald um gildi kjörbréfa þeirra fulltrúa, sem aðildarfélög bandalagsins fela umboð sitt og stjórn B.S.R.B. hefur því ekkert vald í þessu máli. Bandalagsstjórnin hefur borið mál þetta undir lögfræðing bandalagsins, Guðmund Ingva Sigurðsson, og styður álitsgerð hans þá ákvörðun stjórnar L.S.F.K. að gefa út ný kjörbréf til þeirra fulltrúa, sem kosnir voru á þingi landssambandsins 1968. Þar sem ákvörðun stjórnar landssambandsins er þannig studd í álitsgerðum tveggja viðurkenndra lög- fræðinga, er það álit stjónar B.S.R.B., að stjórn L.S.F.K. hafi gert það, sem I hennar valdi stendur til þess að velja þá leið ( þessu máli, sem lagalega er rétt." Með félagskveðju, f.h. stjórnar B.S.R.B. Kristján Thorlacius. Til Landssambands framhaldsskólakennara Reykjavlk. MENNTAMÁL 139

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.