Menntamál


Menntamál - 01.08.1970, Blaðsíða 24

Menntamál - 01.08.1970, Blaðsíða 24
Aukaþing L. S.F. K. 12.-13. júní 1970 Formaður L.S.F.K., Ólafur S. Ólafsson, setti þingið kl. 14.00 og skýrði um leið frá þeim sérstöku ástæðum, sem lægju til þessa aukaþings. Ástæðurnar væru þær, að fyrir næsta fulltrúaþing B.S.R.B. ætti samkvæmt lög- um L.S.F.K. ekki að halda aðalþing, en þrýn nauðsyn væri að ræða ýmis mál, sem lægju fyrir þingi B.S.R.B. og kennarasamtökin yrðu að taka skýra afstöðu til, svo sem um starfsmatið og fleira. Síðan bar hann upp tillögu um, að Þorsteinn Eiríksson yrði kjörinn fyrsti forseti þingsins. Var sú tillaga samþykkt samhljóða. Aðr- ir starfsmenn þingsins voru kjörnir: 2. forseti, Ármann Halldórsson, og fundarritarar: Bryndís Steinþórsdóttir og Guðrún Halldórsdóttir. Við nafnakall voru 48 fulltrúar mættir. Ólafur H. Einarsson kvaddi sér hljóðs og bar fram tillögu þess efnis, að allir meðlimir landssambandsins hefðu heimild til að sitja þingið með málfrelsi og til- lögurétti, þótt þeir væru ekki kjörnir þingfulltrúar. Vitn- aði hann til eldri laga í þessu sambandi. Nokkrar um- ræður urðu um þessa tillögu og lögðust nokkrir full- trúar gegn henni á þeirri forsendu, að þar sem ógerlegt væri að tilkynna nema fáeinum þessa þreytingu, væri þeim, sem búa úti á landi en gjarnan vildu hafa sótt þingið, mismunað við hina, sem ættu stutt að sækja og fréttu af þessari ákvörðun. Tillaga Ólafs var síðan þorin undir atkvæði og felld með 27 atkv. gegn 3. Hins vegar var samþykkt samhljóða eftir tillögum þingforseta og form. L.S.F.K., að allir félagar hefðu rétt til að vera áheyrnarfulltrúar. Starfsmat. Að þessum umræðum loknum var gengið til dagskrár. Haraldur Steinþórsson hafði framsögu um starfsmatið og um launakjör opinberra starfsmanna og heildarsamninga þeirra við rikið almennt. Hann benti á, að heildarsamningum um launakjörin ætti að vera lokið í lok nóvembermánaðar, en samningar að gilda frá júlí 1970. Hann taldi, að það sem áynnist I yfirstand- andi verkföllum kæmi opinberum starfsmönnum til góða. 100 þúsund krónur hefðu verið gefnar I verkfallssjóð verkamanna, og kosin hefði verið 5 manna nefnd til þess að ræða við fulltrúa verkalýðsfélaganna, þar eð verkalýðsfélögin hefðu í síðustu samningum samið af okkur vísitölubætur, en nú væru líkur fyrir því, að slíkt kæmi ekki fyrir. Þá vék Haraldur að þeim hugmynd- um, sem komið hafa fram um gerð launasamninga við ríkið. E. t. v. kæmi fram sú hugmynd á næsta þingi B.S.R.B. að gerður yrði rammasamningur, en hvert ein- MENNTAMÁL 138 stakt félag semji síðan fyrir sig innan þessa ramma. Starfsmatið lægi nú íyrir endurskoðað, en margar at- hugasemdir hefðu verið gerðar við það. Kvaðst Har- aldur álíta, að ríkisvaldið hefði tilhneigingu til að blanda starfstíma inn I starfsmatið og rýra þannig hlut kennara vegna hins langa sumarleyfis þeirra. Þá skýrði Haraldur írá, hvernig tilraunamatið (einn þátturinn i sköpun starfsmatsins) hefði verið unnið í stórum dráttum af þeim Höskuldi Jónssyni, Þorsteini Vilhjálmssyni, Þresti Ólafssyni, Guðjóni Baldvinssyni og Kristjáni Helgasyni. Hefðu þeir metið starf eins manns I hverri grein og síðan byggt starfsmatið á þessu tilraunamati. Lagði Haraldur áherzlu á, að félagsleg hætta væri fólgin í því að kljúfa starfshópa, sem áður voru saman, niður í einingar. Þá vék Haraldur að drögum um launastiga og launa- flokka, sem fylgir drögunum að starfsmati. Taldi hann, að hugmyndin um að ákveðin krónutala væri ætluð á hvert stig yrði raunbezt fyrir hina fjölmennu miðflokka, þ. e. íyrir 16,—19. flokks menn, en rikisvaldið virtist hafa tilhneigingu til að halda þessum fjölmennu flokk- um niðri í kaupi. Samkvæmt dagskrá var næst kosið í nefndir, og af hagkvæmnisástæðum verður viðkomandi nefnd skráð síðar með þeim tillögum, sem hún flutti og samþykktar voru. Þessu næst fóru fram umræður um starfsmatið og tóku margir þátt I þeim umræðum. Kom skýrt í Ijós sú almenna skoðun kennara innan L.S.F.K., að allir gagn- fræðaskólakennarar ættu að vera í sama launaflokki (Jóhannes Pétursson, frm. F.G.R.). Margir fulltrúanna færðu rök íyrir því, að hinn langi kennslutími og starf skólastjóra og kennara við sérskóla (Árni Guðmunds- son, skólastj. o. fl.) væri vanmetið við skipun í launa- flokka. Að loknum þessum umræðum kynnti Þorsteinn Jóns- son tillögur L.S.F.K. um vinnutíma kennara og upp- hófust þegar miklar umræður um þær. Guðrún Hall- dórsdóttir bar fram tillögu um, að kennurum við fram- haldsdeildir (5. og 6. bekkur) gagnfræðaskólanna yrði ætlaður sami vinnutími og mennta- og kennaraskóla- kennurum. Guðmundur Árnason benti á, að eftirvinnu- taxti kennara væri lægri en dagvinnustundakaup stunda- kennara, þannig að dagvinnukaup stundakennara fyrir 30 stunda vinnuviku er kr. 50,000,00 hærra á ári en kaup fyrir 30 st. eftirvinnu á viku allt skólaárið. Fulltrúar frá héraðsskólunum (Albert Jóhannsson, Ár-

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.