Menntamál - 01.10.1972, Blaðsíða 4
Ritstjóri
kveður
Með þessu hefti lýkur 45. árgangi Mennta-
mála, og enn einu sinni hefir mistekizt að haga
útgáfu ritsins á tilætlaðan hátt. Heftin hafa
orðið fimm í stað sex, og þetta lokahefti er
nær hálfu ári á eftir áætlun. Að blaðsíðutali er
árgangurinn að vísu rösklega sjö hefta ígildi,
og efni hans treystir ritstjórn að hafi verðskuld-
að áhuga lesenda, þótt eflaust hafi margir
saknað þar eins og annars. En nægilegt efni
og nógu gott er aðeins sjálfsagður hlutur. Hitt
er ekki síður nauðsynlegt, að Menntamál komi
út reglulegar en raun hefir orðið á um þennan
árgang; með því móti einu verða, svo ekki sé
annað nefnt, verulegar líkur á að efni ritsins
nái til áskrifenda — að þeir verði í raun les-
endur þess.
Naumast mun þurfa að taka það fram, að sú
töf, sem orðið hefirá útkomu síðari hefta þessa
árgangs, stafar ekki af ásetningi ritstjórnar.
Af öllu því, sem töfinni veldur, skal þess eins
getið, að skyldum ritstjóra verður ekki með
góðu móti gegnt í hjáverkum. Af þeim sökum
lætur sá, er þetta ritar, nú af ritstjórn Mennta-
mála með þökkum til ritnefndar fyrir vinsemd
og þolinmæði í samstarfi, með góðum óskum
til handa ritinu og þeim málefnum, sem það er
helgað, og með hvatningu til allra, sem að rit-
inu standa, um að leggja sinn skerf til eflingar
þess í hvívetna.
♦---------
MENNTAMÁL
182