Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.2001, Blaðsíða 18

Bjarmi - 01.06.2001, Blaðsíða 18
Á fastan erindi vió nútímamenn? Olaf Engsbráten Iflestum kirkjudeildum á Vesturlöndum hefur mönnum sést yfir gildi föstunn- ar. Hún hefur verið lítils metin og talin sérkennileg og framandi. Fastan er oft tengd við miðaldir og lögmálsþrælkun. Hví er þessu svo farið enda þótt Biblían tali um föstu bæði í Gamla testamentinu og Nýja testamentinu? Misnotkun föst- unnar, sem átti sér stað á seinni hluta postulatímans og á miðöldum, veldur þar eflaust miklu. Fasta var einatt tengd ytri guðrækni og meinlætum þar sem áhersla var lögó á að þjaka líkamann. Vió heyrum öðru hverju um leifar þessar- ar afvegaleiddu guórækni þegar fréttir berast um páskana af fólki á Filippseyj- um sem lætur krossfesta sig. Hjá okkur hefur pendúllinn sveiflast til baka eftir siðbótina og fastan verið rang- túlkuó eða henni vísað á bug enda talin óþörf. Þetta hefur gerst enda þótt vió vitum að sióbótarmenn eins og Lúther og Kalvín hafi iðkað föstu. Við höfum ekki enn komið á því jafnvægi sem ríkti í kristindómnum á tímum Nýja testa- mentisins. I tíð postulanna var fastan orkulind í lífi kirkjunnar. Hvað er þá fasta? Stundum er sagt að fasta þurfi ekki að vera fólgin í því að neita sér um fæóu heldur allt sem hindr- ar samfélagið við Guð, eða að fasta sé sama og sjálfsafneitun. En þá er hætta á að við gerum merkingu orðsins svo víða að allar línur verði óljósar og að vió af- nemum föstuna í reynd. Nú kemur fýrir að oróió er notað í víð- tækri merkingu í Biblíunni. Samt fer ekki á milli mála að frummerkingin er aó „borða ekki“. I ritningunni er talað um þrenns konar föstu og þar er alls staðar um að ræða að neita sér um mat, bók- staflega. Þessar föstur getum við kallað venjulega föstu, algjöra föstu og tak- markaóa föstu. Venjuleg fasta Jesús var í eyóimörkinni og fastaði áður en hann hóf þjónustu sína. I Matt. 4:2 er ritað um Jesú: „Þar fastaði hann í fjörutíu daga og fjörutíu nætur og var þá orðinn hungraður." Lúkas segir: „Ekki neytti hann neins“ (4,2). Þetta var venjuleg fasta. Hann neytti ekki matar en drakk vatn. Sagt er að hann hafi hungrað en ekki aó hann hafi þyrst. Þegar minnst er á föstu í Biblíunni án nánari skýringa má gera ráó fyrir að um sé að ræða venjulega föstu þar sem menn borða ekki en drekka vatn. Algjör fasta Á nokkrum stöðum f Biblíunni er vikið aó föstu þar sem menn neyttu ekki held- ur vatns. Svo segir um faríseann Sál (Pál): „Þrjá daga var hann sjónlaus og át hvorki né drakk" (Post. 9:9). Þegar Ananías fær skilaboó í sýn um aó fara og biðja fýrir Sál er honum sagt: „Hann er að biðja“ (v. 11). Hinn ungi farísei tekur að biðja og fasta í þeirri sálarkreppu og djúptæku umbyltingu sem á sér staó í lífi hans. Hin algjöra fasta á við þegar menn lenda í alvarlegum þrengingum. Ester drottning boóar algjöra föstu í þrjá daga þegar sú hætta vofir yfir allri Gyó- ingaþjóðinni að henni verði útrýmt. Við grípum til örþrifaráða þegar allt er í húfi. Líkaminn þolir lengi matarleysi en get- ur skaóast ef hann er án vatns lengur en þrjá sólarhringa. Takmörkuó fasta í þessari föstu er lögð áhersla á samsetn- ingu fæðunnar, ekki á að neita sér um allan mat. Daníel spámaður og vinir hans föstuðu með þessum hætti (Dan. 1:5 og 10:30). Daníel iðkaði líka venju- lega föstu. Hugsanlegt er að hann hafi takmarkað föstuna vegna þess að hann gegndi trúnaðarstöóu hjá konungi. Má vera að vinnan hafi á köflum verið of erf- ið til þess að hann gæti iðkað venjulega föstu. Fastan í Nýja testamentinu Eins og nefnt var hér að framan fastaði Jesús langan tíma áður en hann hóf að starfa opinberlega. Hann fræðir um föstuna í Matt. 6. Tökum eftir orðalag- inu sem er endurtekið í v. 2, 5 og 16: „Þegar þú gefur ölmusu," „þegar þú biðst fyrir,“ „þegar þér fastið". Ekki ef heldur þegar. Að mati Jesú er það sjálf- sagt mál aö lærisveinarnir bæói biðji og fasti. Hann lítur svo á að í föstunni helgi menn sig Guði. Hún var leið til aó leita Guðs líkt og bænin. Það er hins vegar guórækni farísea sem hann varar við. Þeir báðu og föstuðu til þess að hljóta lof og heiður manna. Þetta er tæplega mikil freisting fyrir okkur nú á tímum. 18

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.