Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.2001, Blaðsíða 34

Bjarmi - 01.06.2001, Blaðsíða 34
Sjálfskennd eóa sjálfsmat hefur aó gera með persónulega skoóun einstak- lingsins á þeim sérkennum eöa persónu- einkennum sem lýsa þeim sjálfum best. Þetta sjálfsmat tekur mestum breyting- um á unglingsárunum. Unglingurinn verður aö áhugasömum heimspekingi sem notar nýfundinn hæfileika til að rök- ræða á afstæðan hátt um lífið og tilver- una. Hann/hún verður að tengilið milli tveggja heima og flytur nýjar fréttir og hugmyndir um lífið inn á heimilið. Þetta reynist sumum foreldrum erfitt, sérstak- lega þegar vióurkenndar túlkanir á lífinu fá keppinaut í þessum nýju, aðfluttu kenningum. Þessi tilraun til að finna nýja sjálfskennd skapar oft ósamkomulag milli foreldra og unglinga. Foreldrar með sterka sjálfskennd bregðast vægar við þessum átökum og gefa afkvæminu svig- rúm til aó finna sig. Foreldrar sem eru óöruggir með sína eigin sjálfsmynd lenda í tíðum deilum við ungling sem heldur því fram að foreldrarnir séu gamaldags og leiðinlegir. Þeir foreldrar svara gjarn- an með því aó lýsa hversu ólík afstaða unglinga til foreldra var þegar þau voru ung, og bilió breikkar enn frekar. Leitin aó sjálfstæði vex með hverju unglingsárinu og sjálfstæð ákvarðana- taka verður æ ríkari þáttur í mótun ung- lingsins. Tengsl við aðila utan heimilisins veróa æ þýðingarmeiri. Það er mikilvægt fýrir foreldra að gefa unglingnum tæki- færi til að æfa sig í sjálfstæðri ákvarðana- töku og að virða þeirra leiðir, án þess þó að leyfa þeim að stofna lífi eða limum sjálfra sín eða annarra í hættu. Mistök eru algeng í þessari tilraun og unglingur- inn þarf rými til aó gera mistök án þess að eiga á hættu aó heimurinn farist. Þaó hefur verió sýnt fram á að unglingar verða sjálfstæðari þegar þeir eru aldir upp í fjölskyldu þar sem þeir voru hvattir til þátttöku í ákvörðunum, þó þannig að foreldrar báru lokaábyrgð á endanlegri ákvörðun. Þegar þátttaka í ákvörðunum var takmörkuð þá urðu unglingarnir lengur háðir foreldrum sínum og ekki eins sjálfsörugg. Foreldar sem eiga í bar- áttu sín í milli virðast eiga erfióara með að virða löngun unglingsins til sjálfstæð- is. Unglingurinn lendir þá gjarnan í valdabaráttu foreldranna og fær ekki tækifæri til aó þroska sitt eigið sjálf- stæði. Verkefni foreldranna Óhamingja foreldra ýtir gjarnan undir óöryggi unglingsins. Uppreisn unglings er mun tíóari þar sem foreldrar eiga í baráttu sín í milli. Það reynist ungling auóvelt að afsaka viróingarleysi gagnvart foreldri þegar fýrirmyndin er stöðug að- finnsla foreldranna hvors við annaó. Þeim. kenningum er haldið á lofti að uppreisn unglinga sé tilraun þeirra til að sameina foreldrana með því verkefni að ráóa bót á vanda unglingsins og þannig gleymi þau eigin átökum á meðan. Þaó er flókið samband milli aga og uppreisnar unglingsins. Kannanir sýna að uppreisn unglinga er mest þar sem agi og reglur eru miklar og ósveigjanleg- ar annars vegar og hins vegar á heimilum þar sem lítill eða enginn agi er til staðar. Uppreisn virðist minnst þar sem jafnvæg- is er gætt. Ójöfn skipting valds á heimilinu virðist hafa talsverð áhrif á neikvæð viðbrögð unglingsins. Ef annaó foreldrið hefur áberandi meiri völd en hitt þá eru meiri líkur á uppreisn unglingsins. Vandi ung- lingsins verður oft að spurningunni um hvert hlutverk valdalausa foreldrisins er í aga og uppeldi. Hin hliðin snýr að ein- hliða yfirráðum þess sem stýrir öllu á heimilinu. Unglingurinn verður pirraður á þessu ójafnvægi og snýst til varnar. Jöfn skipting valds virðist skapa mest ör- yggi og stuðla aó eðlilegum þroska sjálfskenndar. Skortur á samkennd eða of mikil og náin samkennd ýtir undir uppreisn ung- lingsins. Samkennd hefur að gera með félagslega og tilfinningalega þátttöku meðlima innan fjölskyldunnar. Ungling- urinn er aó feta sig í gegnum það verk- efni að standa á eigin fótum. Hann/hún þarf jafna blöndu af stuðningi og frelsi til að feta sig á þessari nýju braut sjálf- stæðis. Þar sem haldió er fast, er erfitt að losna nema meó átaki. Þegar haldið er laust eóa alls ekki neitt þá skortir vió- mið þegar spurt er hversu langt má ganga. Foreldar í tilvistarkreppu hafa til- hneigingu til að halda annað hvort of fast í unglinginn vegna eigin þarfa eða að ýta honum/henni of hratt út til að losna við áreitið. Sameiginleg verkefni Það er á þessum árum sem gildismat tekur mestum breytingum. Þar kemur þáttur trúarinnar sterkur inn og spurn- ingar um siðferði verða áberandi í um- ræðunni. Það er afar mikilvægt að um- ræðan um trúmál snúist ekki eingöngu um sannfæringarmátt foreldranna held- ur einnig og ekki síður um þá fýrirmynd sem þau sýna unglingnum í bæói orði og verki. Margir unglingar taka afgerandi trúarafstöðu á þessum árum og leita þá gjarnan til hópsins sem þeir hafa sam- samað sig með og fylgja þeim sem á bestan hátt lifa því lífi sem unglingurinn telur samræmast ,,eigin“ nýfundnu af- stöðu til lífsins. Ef þessi hópur er trúar- lega sinnaóur þá hefur það mikil áhrif á mótun einstaklingsins. Foreldrar þurfa að gefa unglingnum tækifæri til aó spreyta sig á verkefnum sem skipta máli. Það er hvetjandi fýrir ungling í mótun að fá verkefni sem reyna á nýfundinn styrk og hæfileika til að sjá lausnir í nýju Ijósi. Unglingurinn þarf að sýna ábyrgð og vilja til aó takast á við ný og fjölbreyttari viófangsefni. Kirkjan þarf líka að taka sér tak í þess- um málum. Unglingastarf má ekki ein- göngu verða að skemmtiklúbbi í kirkj- unni. Unglingarnir þurfa aó fá verðug verkefni innan kirkjunnar þannig aó áhugi á kirkjulegu starfi byggist á sann- færingu sem þroskast í lifandi trúarsam- félagi. Þau veróa að fá tækifæri til reyna trú sína með því að takast á vió þrosk- andi verkefni sem hjálpa þeim aö skil- greina sína eigin trúargöngu og að taka afstöðu til framtíðar. Bókaskrá: Balswick, J. O. &Judith. 1991. The family: A Christian perspective on the contemporary home. Grand Rapids, Ml: Baker Book House. Preto, N.G. 1989. Transformation ofthe family system in adolescence. ÍThe changing family life cycle, ritstj. B. Carter og M. Mc- Goldrich, 255 — 283. Needham Heights, MA: Allyn and Bacon. HafJiði Kristinsson er sjálfstcett starfandi fjölskylduráðgjafi. 34

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.