Æskan

Volume

Æskan - 01.05.1974, Page 49

Æskan - 01.05.1974, Page 49
 Lítið en öflugt efdýrið er smávaxið dýr. Það er ekki sterkt, og það getur ekki hlaupið hratt. Maður gæti því haldið, að það yði auðveld bráð fyrir önnur dýr. En það eru fá dýr, sem feyna að drepa það. Þefdýrið hefur nefnilega mjög sterkt v°pn. Innvortis hefur það tvær litlar blöðrur, og úr þeim getur það sprautað vökva, sem hefur mjög slæma lykt. Meira segja á þefdýrið sjálft bágt með að þola þessa lykt. Þess vegna notar það þetta vopn aðeins, ef það er neytt. Fyrst ris það upp á framfótunum. Síðan lyftir það skottinu eins hátt og það getur og reynir að halda því frá þununni eins og mögulegt er. Það bíður dálítið í von um að hitt dýrið hypji sig í burtu. En stundum fer ekki þannig, og þá sprautar þefdýrið frá sér. Hundar eru einu dýrin, sem virðast áldrei læra af þessu. Þeir fá sprautað yfir sig hvað eftir annað. En flest önnur dýr þarf aðeins að sprauta á einu sinni. Þá hafa þau lært nóg til þess að láta litla þefdýrið f friði. En dagar haustsins eru stuttir. Kvöld nokkurt, þegar tungl- '5 hafði tekið við af sólinni, kom Shih Tun af akrinum og Jaða-blóm úr þreskingu. Þau fóru með gras til hestanna. Gamla konan hafði eldað matinn og var að bera hann út 1 bakgarðinn, þegar hún sá stórt, rautt laufblað falla til Jarðar. þag þeyttist um garðinn eins og hvirfilvindur hefði v°rið þar á ferðinni, og loks hætti það að snúast. I miðj- um garðinum stóð rauðeygður ári, rauðhærður, rauðskeggj- aður, rauðklæddur og rauðskæddur. Hann potaði í lauf- blaðið, og það breyttist á stundinni í brúðarstól. Gamla konan veinaði og féll til jarðar, en Shih Tun og 'Jaða-blóm, sem höfðu heyrt til hennar, hlupu af stað. Rauðeygði púkinn hló, þegar hann sá Jaða-blóm, og um leið var hún komin í brúðarstólinn. Hann veifaði hendinni, °3 stóllinn sveif til himins. Innan skamms voru allir horfnir, en rödd árans heyrðist úr fjarlægð: „Hún drakk vatnið úr lindinni rauðu, og ég á hana.“ Gamla konan grét hástöfum og Shih Tun leið líka illa, en hann táraðist ekki. Hann hjálpaði gömlu konunni að rísa á fætur og sagði: „Ég ætla að ná henni aftur, hvað sem það kostar!" Gamla konan hætti að gráta og sagði æst: „Þú ferð ekki fet! Rauðeygði skrattinn hefur stolið mörgum stúlkum, en engin þeirra hefur nokkru sinni komið heim aftur. Þú fórnar l'fi þínu til einskis." Meðan Shih Tun studdi gömlu konuna inn, sagði hann ekki orð, en um leið og hún var lögst fyrir, sagði hann: ■>Ég ætla að finna hana, móðir góð.“ Gamla konan sá, að það var ekki til neins fyrir hana að reyna að telja hann á að vera kyrran, og því sagði hún: ■>Þú ferð þó ekki tómhentur. Taktu rýtinginn þann arna með þér.“ Hún rétti fram rýting, og Shih Tun stökk á bak öðrum hestinum og þaut í áttina til fjallsins mikla. Nú höfðu orð gömlu konunnar rætzt, rauðeygði púkinn var búinn að taka Jaða-blóm og fara með hana upp á fjallið, þar sem lindin rauða spratt fram. En góða, gamla konan hafði gefið honum rýting til þess að verja sig með, °9 Þá er að halda áfram sögunni: Shih Tun var mjög óþolinmóður, eins og geta má nærri. Hann hrópaði á hestinn og sagði: „Stökktu yfir gilið, hest- ur.“ Hesturinn stökk eins og elding yfir gilið. Þá sagði hann: „Hlauptu upp hlíðina, hestur." Og hesturinn hljóp upp hlíðina. Þegar dagaði, var Shih Tun kominn að stóra fjallinu. Það var stórt, skógi vaxið og gilin mörg. Shih Tun gekk um allt fjallið, en hvergi fann hann rauðu lindina. Tárin streymdu niður andlit hans. Hann starði á fjallið og óskaði þess heitt og innilega, að hann vissi, hvert rauðeygði púkinn hefði farið með Jaða-blóm. Hann kleif upp á tind fjallsins og hugleiddi, hvað hann mundi gera, ef hann sæi rauðeygða púkann og Jaða-blóm á þessari stundu. Hann þerraði af sér tárin og sagði við hestinn sinn: „Ég verð að finna Jaða-blóm, þótt ég neyðist til að sigra hvert fjall heimsins. Finndu nú fyrir mig fjarlægasta og stærsta fjallið." Hesturinn spratt af stað. Hann stökk yfir gil, hann hljóp inn í hella og ólmaðist upp hlíðarnar, auk þess sem hann rann niður óteljandi skriður. Shih Tun hélt aldrei aftur af hestinum, þótt förin virtist hættuleg á stundum. Fjallstindur á fjallstind ofan, en aldrei fann hann þó hæsta tindinn. Rauðeygði púkinn hafði falið Jaða-blóm í helli hálfa leið upp í hlíðar hæsta fjallsins. Hellirinn var skreyttur lands- lagsmyndum, sem málaðar voru á silki. Á rúminu var silki- dýna og silkisæng. Rauðeygði árinn breytti sér og tók á sig líki vel menntaðs manns og sagði brosandi við Jaða- blóm: „Þú hefur dreypt á vatninu ( lindinni minni rauðu og verður því konan min. Gleymdu eiginmanni þinum fyrrver- andi, sem kæmist aldrei hingað, þótt hann hefði sex hend- ur og væri þrfhöfðaður þurs." Þegar Jaða-blóm heyrði rödd púkans, titraðl hún af reiði. Hún var lokuð innl f helli og heyrðl ekki andvörp vindsins né tist fuglanna, en hún var samt sannfærð um, að Shih Tun væri að leita hennar. Hún vissi, að hann felldi tár hennar vegna, og þvl rótti hún úr sér og sagði: „Ég hef bergt af vatni lindarinnar rauðu, en eiginkona þín verð ég aldrei."
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.