Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1906, Blaðsíða 111
ALMANAK 1906.
8l
að öll vor barátta fyrir framtíSarlífi hans mundi verða
árangfurslaus, að það væri svo þungft bjarg", sem hér væri
í andlegfum efnum veriS aS bisa við að velta, aS það mundi
verða oss eilífur Sisyfusar-steinn, sem hlyti að velta niður
eftir öllum götum jafnóðum og búib væri að koma honum
rétt upp undir fjallsbrún. Og eg geng út ft á því nærri
því sem sjálfsögðu aS suma dreymi þetta enn. En hvað
sem öllum slíkum draumum líður, og hvert sem nokkurn
hefir dreymt um það eða ekki, að guð væri með oss í
hinni kirkjulegfu baráttu vorri hér,þá geta nú allir vakandi
og með opnum augum sagt: ,,Hér er guðs hús“. Hinn
íslenzki söfnuður og hinn íslenzki þjóðflokkur vfir höfuð
í Winnipeg hefir nú fengið hús yfir sig þar sem hann getur
sameiginlega átt samfundi með drotni sínum, sameiginlega
notið guðlegrar sabbatshvíldar, sameiginlega virt fyrir sér
sitt mesta gleðiefni—heimsins óumræðilega gleðiefni, sem
forðum bar fvrir Jakob í draumi hans. Það er líkt ástatt
fyrir fólki voru, sem tekur sig upp og flytur burt frá ís-
landi hingað til þessa lands, heiman frá öllu kunnugu og
mörgu kæru, inn í nærri því alt ókunnugt hér, eins og
fyrir Jakob, þegar hann lagði fyrst á stað út í heiminn
burt frá sínu æsku-aðsetri...... Enginn veit hvað átt
hefir fyrr en mist hefir. Það hefir eflaust sannast á Jakob,
þá er hann var kominn á stað út í sinn leiðangur. En eg
veit, að það hefir líka sannast á mörgum íslenzkum vest-
urfara, eftir að til þessa lands var komið. Hann sinti ef til
vill ekki mikið kirkju sinni meðan hann var heima, því
það er vitanlegt, að áhuginn fyrir kirkjumálum er næsta
daufur á íslandi. En svo hrörleg sem íslenzka kirkjan er,
þrátt fyrir alt og alt, sem að henni kann að vera, þá mun
þó mörgum finnast, þegar þeir eru komnir hingað að
heiman í ókunnugt land, að margan dýrmætan fjársjóð
hafi þó þessi lítils virta kirkja gefið þeim. Ef þeir áttu