Fróði - 01.12.1911, Blaðsíða 15

Fróði - 01.12.1911, Blaðsíða 15
FRÓÐI. 161 þá, — en sinn í hvoru lagi. — Þetta var sannarlegt þrekvirki. En hann skýröi aldrei nákvœmlega frá því. Þegar menn komu aö, stóö hann rennandi votur og móöur mjög milli þessara tveggja manna, er virtust steindauöir, Þaö leit því svo út sem hann lieföi látið þá falla, sinn undan hvorri hendi sinni.. “Ég hefi bjargaö þeim báöum’’, hrópaöi hann. “Farið þið með þá heim til mín á svipstundu’’. Þeir lögðu af stað og spjölluðu drjúgum. Að eins d á n i r Frakkar þegja. Séra Beret var ekki aö eins nœrri druknaöur, heldur var hann líka stór-slasaður Hann lá meira en viku í húsi Roussill- ons, áður en hann gat reist höfuöið frá koddanum. Alice sat yfir honum nótt og dag. og naut varla svefns eða matar fyr en hann var úr allri hoettu. En Beverley hrestist brátt. Nœsta dag reis hann úr rekkju og tók til starfa sinna eins og ekkert heföi í skorist. Hann var mjög ánægður meö það er við haföi borið. Það er þægileg tilfinning aö vera sér þess meðvitandi, að hafa gert gott verk, og engum ungum manni líður illa, er hann í fyrsta sinn kemst í kynni við fagra, unga stúlku. Eins og eðlilegt var, sinti Alice Beverley líka, um leið og hún stundaði séra Beret. Hún haföi livorki séð eða lesið um neinn mann líkan honum. V’æri hann borinn saman við René de Rossville, er var helstur þeirra ungra manna er hún þekti, þá skaraði Beverley svo fram úr þar, aö ekki var unt með orðum að lýsa. En bœri hún hann saman við hetjur þœr, er hún hafði skapaö sér úr skáldsögum þeim er hún hafði lesið, þá var hann ekki líkur þeim meö öllu. En hann vék ekki úr huga hennar. Hann var efalaust mikilmenni. Beverley kom á hverjum degi þangað til þess, aö líta eftir séra Beret, og varð dvölin lengri og lengri eftir því sem hann kyntist betur. Honum tók að þykja gam’an að tala við prest, veraldleg þekking gægöist oft hjá honum gegnum guðræknis- hjalið. Alice hlýtur aö hHa vakiö mjög eftirtekt hans, því aug- un hans fylgdu henni hvert sem hún fór. Hann athugaði með nákvœmni hálf-villimannlega búninginn liennar, léttu gyðjulegu

x

Fróði

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fróði
https://timarit.is/publication/427

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.