Muninn

Árgangur

Muninn - 01.03.1961, Blaðsíða 16

Muninn - 01.03.1961, Blaðsíða 16
BJORGVIN GUÐMUNDSSON IN MEMORIAM Björgvin Guðmundsson tónskáld og fyrr- um söngkennari við M. A. lézt þann 4. jan. sl. Fjölmenn og virðuleg útför hans var gerð frá Akureyrarkirkju 18. janúar. Um morguninn fór fram minningarathöfn ,,á Sal“. Skólakórinn söng lög eftir Björgvin, og Þórarinn Björnsson skólameistari flutti minningarræðu, og mælti hann m. a. á þessa leið: „ ... Það er auðkenni þeirra, sem eitthvað hafa til brunns að bera, að þeir þola það, að um þá sé sagt satt, að taldir séu bæði kostir þeirra og gallar. Og Björgvin þolir slíkt vel, enda var hann sjálfur manna hrein- skilnastur. Ég mun því segja, að kennsla hafi ekki látið Björgvin vel. Meðal annars var hans heita og viðkvæma listamannslund of ör og ekki nógu þolinmóð. Söngkennsla mun og flestri kennslu erfiðari, að minnsta kosti eins og henni befir verið hagað hér. Kennarinn hefir ekki við að styðjast aðhald neinna einkunna, og nemendur auk þess ýmsir lítt skynbærir á svo sérstæða grein sem tónlist. Hér við bættist, að Björgvin hafði sjálfur lítið sótt skóla og hafði ekki á þeim neina oftrú, svo að vægt sé orðað, og mun hafa talið hverjum manni hollast að bjargast sem mest sjálfum, eins og hann hafði sjálfur orðið að reyna. Ég hygg því, að hann hafi skort trúna á það, að tón- fræðsla í venjulegum kennslustundum, eins og þeim var háttað, væri til mikillar nyt- semdar. En hins er bæði ljúft og skylt að geta, að þeir, sem söng unnu og voru í skólakórnum hjá Björgvin, munu minnast margra sælla og glaðra stunda frá samvist- um við Björgvin og senda nú áreiðanlega hlýjar kveðjur og þakkir, þegar hann er borinn til hinztu hvíldar. . . . Það er hlutverk listamanna, ef þeir eiga það nafn skilið, að skapa varanleg and- leg verðmæti. sem leggist í sameiginlegan menningarsjóð þjóðarinnar, þar sem þjóðin á eins konar gulltryggingu fyrir því bezta í sjálfri sér. Því miður skortir mig öll skil- yrði til þess að dæma verk Björgvins af kunnáttu, en það er hugboð mitt, að Björg- vin hafi verið einn þeirra gæfumanna, sem auðnast að auðga þennan dýrasta sjóð þjóð- arinnar. Þess vegna mun þjóðin geyma nafn Björgvins í þakklátri minning. Auk tónsmíða fékkst Björgvin allntikið við ritstörf. Hann hefir skrifað minningar sínar, og er fyrra bindi, mikil bók, þegar komin út fyrir nokkrum árum, en hið síð- ara enn óprentað. Leikrit samdi hann, Skrúðsbóndann, og oft kornu greinar eftir liann í dagblöðum, bæði um tónlist og ann- að. Var Björgvin ritfær vel og mun hafa verið létt um að skrifa, enda var honum oft mikið niðri fyrir. Átti hann gnótt kjarnmik- illa orða og óvæntra samlíkinga. Datt mér aldrei annað í hug en lesa það, sem Björg- vin skrifaði. Af því stóð hressandi gustur, þó að sumar fullyrðingar gætu orkað tví- mælis. „Stíllinn, það er maðurinn", segja Frakk- ar. Ætla ég, að það hafi sannazt á Björgvin. Skrif hans voru eins og tal hans og eins og maðurinn sjálfur. Hann var allra manna hreinskilnastur og talaði aldrei neina tæpi- tungu. Hann var litríkur maður og sérstæð- ur persónuleiki, sem fór ódeigur sína slóð og lét aldrei ánetjast af múgsefjun tímans, enda var honum fátt rneiri hneykslunar- hella en einmitt sá nútímadraugur. Munu ýmsum finnast götur Akureyrar tómlegri eftir, þegar þess er ekki lengur von að mæta Björgvin á förnum vegi og heyra óvenju- lega orðræðu hans. Úr afli hans gátu hrokk- ið ýmsir neistar. Björgvin þótti margt mið- ur fara í menningu nútímans, og var hann ekki myrkur í máli um slík efni. Kvað hann upp harða dóma og hlífði engum, hvorki 6S m u N I N N

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.