Muninn

Árgangur

Muninn - 01.03.1961, Blaðsíða 23

Muninn - 01.03.1961, Blaðsíða 23
LAUSAVISNAÞATTUR Enn hefur Lausavísnaþátt. Bar svo við snemma á þorranum, að Muninn bauð nokkrum vísnasmiðum til kaffidrykkju á vertshúsi, og skulurn vér nú lutga að upp- skerunni. Einn upphóf raust sína svolát- andi: Sá, sem einn á breiðu baki borið getur ábyrgð þunga, má ei æðrast, þó að þjaki jnotlaus rógur, meinskæð tunga. Og hélt áfram: Þú varst reykur, þú varst lygi, þú varst blekking tóm, há og brött sem himnastigi, hrund með karlmannsróm. Þorsteinn sneri sér að Rögnvaldi: Aður fyrr ég orti ljóð undir fornum hætti. Og hann svaraði: Þorsteinn eltir fíngerð fljóð með fumi og handaslætti. Þar komst eldur í púðrið, og Þorsteinn svaraði: Kátlegan á kvæðahryssu keikan Rögnvald ber. Fretar níði úr fólskubyssu og fælir undan sér. Björn Teitsson gerist vífinn: Vér skulum tæpast ætla oss æðri hlut né meiri, en að þiggja kvenmannskoss og kannski atlot fleiri. Hirti þótti fáir mættir: Þá skal beita þungu straffi, þegar færi gefst, sem ekki þiggja þrælsterkt kaffi, þegar vakan hefst. Mælti þá einhver til hans: Renna ofan í ritstjórann regin firn af kaffi. Fleira drukkið hefur hann, sem hefst á vaffi. Skjótt skipast veður í lofti, og hreppa- pólitíkin lét ekki á sér standa; Óttar segir: Sé ég nú að sverfur að Suður-Þingeyingum. Björn svarar: Nýtist illa nýlegt tað frá Norður-Þingeyingum. En Þorsteinn' vildi hafa botninn svona: En engum hefur auðnazt það að ógna Reykvíkingum. Þessu svaraði Óttar: Þið skuluð ekki gera grín að góðum Þingeyingum. Lítt á okkur lastið hrín né leir úr Reykvíkingum. Björn yrkir: Ilia lýðinn leikur hríð, land er víða þakið fönn. Fær mér kvíða fárleg tíð, fiskistríð og hagabönn. Óttar sendi nú Hirti tóninn: Hjörtur metur sjálfan sig sýnu meir en hina. M U N I N N 75

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.