Muninn - 01.11.1994, Blaðsíða 27
flugstöðvarinnar, sem skreytt var engu,
vorum við leidd upp í langferðabifreið
(sjá skilgreiningu, kafla 1) en hún var
með olíufýringu og þrýstijöfnunar-
þrifi, en það er búnaður til að róa
taugar bílstjórans í þungri umferð
hreindýra, sem hvergi var að finna.
Á HIMNUM
Þegar ekið var fyrir horn eitt var
þar að finna himnu eina allmerkilega
er kennd hefur verið við horn. Þetta
reyndist svo síðar vera hótelið. Um
200 töskur með þar til gerðum
lífrænum burðarbúnaði flæddi inn á
móttöku hótelsins. í þeim voru bleik
nærföt og skór, þó ekki
Hallormsstaðaskór. Þessu „hafurtaski"
var síðan skipað niður á þar til gerðar
stíur sem einmitt voru til þess fallnar
að hýsa „hafratöskur" (ath. finnst ekki
í Orðabók Menningarsjóðs).
„Við Bjöggi Qón hlaupari), Dóri,
Mummi, Gústi og Jón nokkur sonur
Guðna villtumst þegar í borgina kom.
Það ber þó ekki að skilja svo að við
höfum tapað okkur heldur einungis
áttum, en við bara fjórar, eina af hverri
sort, þannig að við áttum ekki kost á
að fá alslem", er haft eftir Jóhannesi
Dagssyni sem villtist út í nóttina
ásamt félögum sínum. Ökklinn átti
stórleik og brosti sínu breiðasta. En allt
fór vel um síðir (ekki Frakkar) og allir
maurarnir vöknuðu í búum sínum.
Sól skein í Ragnheiði 4-G þegar
fyrstu hvítu kropparnir stungu sér til
sunds í lauginni við Hótelið. Þeim var
brugðið. Kuldinn var slíkur að vel
hraustum ísBirni Ágústi hefði brugðið.
Litlu líkamarnir stífnuðu upp í
kuldanum og við nánari efnagreiningu
Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar kom í ljós
að notast mátti við fólkið sem
saltstangir. Sú skýring var þar á að
saltmagn sundlaugarinnar hafði verið
vel yfir ferskvatnsmeðaltali skv.
Theolappalappalappaduz-staðli sem
gefinn hefur verið út af Nasa í
takmörkuðu, tölusettu upplagi.
Strax í upphafi náði Sagres
umtalsverðum vinsældum svo og
hillufélagar hans í hinum stórmerka
Módelo stórmarkaði sem einnig seldi
lifandi krabba, en þeir náðu ekki jafn
mikilli hylli og Sagres en vinsældir
hans voru um 5,4%.
LÖG HINNA MÖRGU FERÐA..........?
Fyrsta ferðin sem boðið var upp
á var á markaðstorg síguna í Loule. Þar
mátti kaupa allan and...fúlan ef þú
hafðir tilskilin leyfi. Til allrar lukku,
sem Láki nokkur hafði miðlað okkur
þegar við keyrðum framhjá Kántríbæ,
vorum við í sumarleyfi. Þar gat að líta
mörg „Special offerto, only for you my
friend, come on, good price".
Sölumenn þar voru svo ágengir að þeir
hefðu þurft skíðaklossa
MUNINN
27