Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1927, Side 55

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1927, Side 55
IÐUNN Stephan G. Stephansson. Eftir Guðmund Gíslason Hagalín. V/art mun nokkur sá, er gott skyn ber á bókmentir og sögu íslands, ganga þess dulinn, að Stephan G. Stephansson var eitthvert hið mesta skáld vort að fornu og nýju og einhver hinn mesti maður, sem borinn er með íslenzkri þjóð. Um æfi Stephans og skáldskap hefir ritað verið all- ýtarlega í »Iðunni«, en ritstjóra hennar finst samt vel hæfa, að hún flytji nú, að. Stephani látnum, nokkur orð um hann og skáldskap hans. Hefir hans verið minst í öllum blöðum landsins, og hirði ég ekki um að rekja annað en höfuðdrætti æfi hans. Hann fæddist 3. október 1853 á Kirkjuhóli í Skagafjarðarsýslu, og dvaldi hann þar fyrstu sjö ár æfi sinnar. Þaðan fluttist hann með foreldrum sínum að Syðri-Mælifellsá. Þar var hann þrjú ár. Þaðan fluttust foreldrar hans að Víðimýrarseli. Dvaldi hann þar hjá. þeim í sjö ár, en réðist 17 ára gamall í vinnumensku að Mjóadal í Bárðardal. Tvítugur fór hann með foreldrum sínum til Ameríku og bjó í Kanada til dauðadags. Hann kvæntist 1878 frændkonu sinni, Helgu Sigríði, og eignuðust þau mörg börn. Stephan var bóndi og hafði jafnan ærnar annir. Lengst æfi sinnar hafði hann lítinn bókakost. Að eins einu sinni kom hann heim til íslands öll sín útlegðarár. Var það 1917, er ung- mennafélögin buðu honum heim. Hann lézt í sumar. Þess munu ekki vera mörg dæmi í sögu veraldar, að maður, sem engrar nýtur skólamentunar og flytur alfar-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.