Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1928, Blaðsíða 102
96
Frádráftur.
IDUNN
vera draug og þorir ekki að opna, þykir ólíklegt að
maður geti verið uppi á fjallgarði um hánótt í slíku
veðri. En um morguninn, þegar hann opnar, liggur
Einar bróðir hans, sem hann hefir elskað allra manna
heitast, dáinn við dyrnar.
Það mun líklegra til vinsælda, að hylla með fjöldan-
um fornar erfikenningar en að opna dyrnar fyrir nýjum
sannindum. Einar skáld Kvaran hefir sagt þessa setn-
ingu: »Það er ekki til neins að standa í dyrunum fyrir
sannleikanum«. Þetta mun rétt vera. Sannleikurinn mun
halda innreið sína, þrátt fyrir alt. Og hófaför hans munu
verða dýpst á skalla þeirra manna, sem ötulastir hafa
verið að verja honum dyrnar. (Frh.)
Rifað í desember 1927.
Steingvímuv Avason.
Ritsjá.
Stefán fvá Hvítadal; Helsingjar. Reykjavík, MCMXXVII.
Enn þá eru mér í minni þessi orð, sem Sfefán frá Hvítadal lét
prenta framan við aðra ljóðabók sína, Óð einyrkjans, sem kom út
f Reykjavík árið 1921:
„Pessi bók er gefin lit í 400 tölusettum eintókum og verður
ekki aftur gefin út um mína daga“.
Þótti mér sem þessi hógværa yfirlýsing vitnaði ærið glöggt um
kjör margra skálda vorra og Iistamanna og fæli jafnfranit í sér
dapurlegan sannleika.
íslenzk skáld hafa flestum öðrum meiri ásfæðu til þess að
harma það, hve fámenn þjóð vor er og eigi síður getuleysi al-
mennings til bókakaupa. Þau geta því hvorki vænzt mikillar frægð-