Sjómannadagsblaðið - 01.06.1983, Blaðsíða 52
Tunnuhlaup er vinsæl íþrótt. Stakkasund á sjómannadeginum á Flateyri.
kelsson, en þeir á Flateyri hafa
þann hátt á, að það sjómanna-
dagsráð, sem starfar að sjó-
mannadeginum hverju sinni,
skipar næsta ráð, þannig að flestir
sjómenn, og menn tengdir sjósókn
á Flateyri, starfa einhvern tímann
í sjómannadagsráði. í því eru sex
menn og þrír til vara.
Það er helst að segja frá sjó-
mannadeginum á Flateyri, að
keyptir hafa verið nýir kapp-
róðrabátar, er teknir voru í notkun
á sjómannadaginn 198F
Sjómannadagurinn er með
nokkuð föstu sniði í Önundarfirði,
og hófst hann í fyrra með því að
boðið var í skemmtisiglingu með
togaranum GYLLI ÍS 261 frá
Flateyri. Útgerðin bauð veitingar,
við mikinn fögnuð yngri kynslóð-
arinnar. Blíðskaparveður var um
morguninn og hélst það allan
daginn.
Að lokinni siglingu hófst
keppni í beitningu og varð Böðvar
Gíslason hlutskarpastur. Þar eftir
var keppt í netabætingu og sigraði
Stefán Dan Óskarsson í þeirri
grein. Loks var keppt í stakka-
sundi og sigraði Einar Valgeir
Jónsson.
Kl. 13.30 hófst skrúðganga og
var gengið til kirkju, þar sem séra
Lárus Guðmundsson messaði. Að
því loknu var lagður blómsveigur
á leiði óþekkta sjómannsins, er
hvílir á Flateyri.
Fannst hann á stríðsárunum og
varð eigi nafngreindur. Hefur það
verið föst venja að leggja blóm-
sveig á leiði hans frá sjómönnum á
Flateyri þennan dag. Og með því
móti votta sjómenn einnig ön-
firskum sjómönnunt, er farist
hafa, sem og öðrum látnum sjó-
mönnum virðingu sína.
Kl. 16.00 hófst kappróður. Alls
kepptu 7 sveitir og sigraði úrvals-
sveit Hjálms hf., en skipverjar á
Gylli urðu í 2. sæti.
í kvennaflokki réru þrjár sveitir
og sigruðu konur sjómanna á
Gylli.
Að loknum kappróðri hófust
hátíðahöld á íþróttavellinum, þar
sem keppt var í ýmsum greinum,
þar á meðal fótbolta, og var jafn-
tefli milli sjómanna og land-
manna „að vanda“.
Um kvöldið var dansleikur, sem
stóð til morguns. (03.00).
Skoöun
og viðgeröir
gúmmíbáta
allt áriö.
Teppi og dreglar
til skipa ávallt
fyrirliggjandi.
GÚMMÍBÁTAÞJÓNUSTAN
Eyjargötu 9 Örfirisey
Sími: 14010
52 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ