Sjómannadagsblaðið - 05.06.1988, Blaðsíða 176
174
SJÓMANNADAGSBLAÐIO
Þyrlan SIF og fjórir starfsmanna Landhelgisgæslunnar úti á Reykjavíkurflugvelli: Pétur Steinþórsson flugmaður, Benóný Ásgríms-
son flugstjóri, Magnús Óskarsson, stýrimaður og Sigurður Steinar Ketilsson skipherra. Sjómannadagsblaðiö/Björn Pálsson
herstjórnir NATO-landanna við
Norður-Atlantshaf, auk borgara-
legra yfirvalda björgunarmála í þess-
um löndum, Bretlandi, Danmörku,
Noregi, Þýskalandi ogHollandi. Við
tókum þátt í æfingum þessum í fyrsta
sinn í fyrra og munum halda því
áfram.
Leitar- og björgunarstarfið hefur
þannig orðið miklu ríkari þáttur í
starfsemi Landhelgisgæslunnar eftir
að fullur sigur vannst í landhelgis-
málinu. Flugvél okkar er fyrst kölluð
á vettvang ef skipuleggja þarf leit
hérna á hafsvæðinu í kring — og í
kjölfarið fylgja varðskipin. En góð-
an radar vantar tilfinnanlega í flug-
vélina og skipunum þyrfti að fjölga,
eða auka útgerð þeirra sem fyrir eru,
svo að stofnunin geti rækt þetta hlut-
verk sitt sem best og í samræmi við
alþjóða samþykktir.
Við höfum átt gott samstarf við
Slysavarnafélagið í gegnum tíðina.
Björgunarsveitir þess annast meira
og minna leit við björgun inn við
land, en af eðlilegum ástæðum hljót-
um við í fámennu landi að byggja
mjög á fórnfúsum sjálfboðaliðum
við slík störf.
Samband okkar við varnarliðið á
Keflavíkurflugvelli hefur sömuleiðis
verið ágætt. Við erum í beinu sam-
band við það og ef það er eitthvað
sem við getum ekki annast, leitum
við til þess. Þá vinnum við náið sam-
an í sambandi við Bright-Eye æfing-
arnar. Sem betur fer hefur ríkt friður
hér á norðurslóðum og þess vegna
hafa varnarliðsmenn getað veitt
okkur mikilsverða aðstoð, en við
megum aldrei gleyma því að ef til
átaka kemur, þá mun sjálfkrafa
draga mjög úr þeirri aðstoð sem við
getum vænst af þeirra hálfu. Við
hljótum því að treysta á okkar getu í
þessum efnum.
Elsta varðskipið, Óðinn, er
orðið 28 ára gamalt, þannig
að það veitti ekki af að fara
að huga að nýju skipi. Óðinn er 839
brúttórúmlestir og nær 18 sjómílna
hraða á klukustund. Ægir og Týr eru
nokkru stærri, eða 927 brúttórúm-
lestir og ná yfir 19 sjómílna hraða á
klukkustund. Tvær aflvélar eru í öll-
um skipunum og þau eru sérstaklega
styrkt til siglinga í ís og vondum
veðrum, og vatnsþétt hólf eru 10-11.
Á þeim öllum er þyrluþilfar og
þyrluskýli. Ein 57 mm fallbyssa er á
hverju varðskipanna og um borð í
þeim eru einnig handvopn. Öflug
slökkvitæki eru í skipunum og annar
nauðsynlegur útbúnaður til að fást
við eldsvoða um borð í skipum.
Skipin eru búin margvíslegum björg-
unartækjum, í þeim er sérstök
sjúkrastofa og búnaður vegna al-
mannavarna, þ.á m. tæki til geisla-
mælinga. 22 manna áhöfn er á varð-
skipunum, en pláss m borð fyrir 65-
70 manns.
Flugvélakostur Landhelgisgæsl-
unnar er ein sérsmíðuð Fokker-flug-
vél og tvær þyrlur.
Fokker-vélin, TF-SYN, hentar
mjög vel til almennrar landhelgis-
gæslu, hún hefur mikið flugþol og er
ágætlega búin siglinga- og fjarskipta-
tækjum — en hennar mikli annmarki
er sá að það vantar í hana góðan
radar. Þess vegna nýtist hún ekki
sem skyldi við leitar- og björgunar-
störf við erfið skilyrði, og sömuleiðis
gætum við hagað eftirlitsfluginu
öðruvísi í okkar langa skammdegi ef
vélin væri búin góðum radar.
Minni þyrlan okkar, TF-GRÓ, er
ekki búin blindflugstækjum og því
einkum notuð á sumrin. Hún sinnir
m.a. vitaflutningum, minni háttar
sjúkraflugi yfir landi og ýmiss konar
eftirliti, svo sem lögreglueftirliti
með umferð. Hún þykir mjög þægi-
leg og hefur nýst okkur á margan