Sjómannadagsblaðið - 05.06.1988, Blaðsíða 185
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
183
SETNINGUR BÁTA í BOLUNGAVÍK
Geir Gudmundsson verkstjóri í Bolungavík er eljumaður mikill. Hann
hefur um langt árabil safnað Ijósmyndum í frístundum sínum og haldið til
haga ýmsum fróðleik úr heimabyggð sinni frá fyrri tíð. í myndasafni hans
kennir margra grasa — og hefur hann leyft Sjómannadagsblaðinu að birta úr
því valdar myndir, en Geir er umboðsmaður blaðsins í Bolungavík og hefur í
mörg ár verið lífið og sálin í Sjómannadagshaldinu þar. Að þessu sinni eru
birtar myndir af setningi báta í Bolungavík á fyrri hluta aldarinnar. Því
sérkennilega og erfiða verklagi er best lýst /'Einars sögu Guðfinnssonar (1978)
eftir Ásgeir Jakobsson, sem er öðrum þrœði saga byggðar og mannlífs í
plássinu. Fara hér á eftir kaflar úr bókinni til skýringar á myndunum úr safni
Geirs Guðmundsssonar.
Eftir að vélbátaöldin hófst,
varð mönnum ljósara en
áður nauðsyn þess, að
byggja varnargarð, sem skýldi vör-
unum, sem lent var í, og hægt væri
jafnframt að losa fisk úr bátum á
þann garð og létta þá fyrir setning-
inn.
Setningur báta, allt að 9 tonnum
að stærð, með 30 hestafla vélar, upp
og ofan kambinn í hverjum róðri,
var afrek, sem verður að lýsa dálítið
nákvæmlega hér, þótt mörgum verði
það máski leiðigjarn lestur.
Finnbogi Bernódusson hefur
skrifað ýtarlega lýsingu á setningi
vélbátanna í ritið Heima (bls. 139-
150). Einkum lýsir hann útbúnaðin-
um ýtarlega, en hér verður meir lýst
verkinu sjálfii, og þá mest byggt á
lýsingu Finnboga, en dálítið á eigin
reynslu.
Finnbogi segir, að Særúnin, sem
þeir létu smíða sér 1942, Hannes Sig-
urðsson og Einar [Guðfinnsson], en
hún var tæp 12 tonn, hafi verið
stærsti bátur, sem settur var á bök-
um. Þaðerrétt, aðSærúninvarsettá
bökum, en menn hlífðust við því og
var oft farið með hana inná ísafjörð,
Þetta er floti Bolvíkinga fram á miðjan sjötta áratuginn, að hafnarskilyrði leyfðu stærri báta. Myndin er af bátum í Brimbrjótsvör-
inni, aðalvörinni. Það er farin þarna að riðlast hin hefðbundna röð báta í vörinni, komnir bátar úr innri vörum og útí Brimbrjótsvör.
Stærstu bátarnir eru næst Brjótnum, það voru 9 tonna bátar, en flestir voru bátarnir 6-7 tonn. Þessi floti var allur settur í hverjum
róðri. Það var ekki hættan á, að menn væru ekki vel vaknaðir, þegar haldið var á miðin eftir að baka þessar fleytur niður og góð ábót
að lokinni sjóferð að hífa þá upp á gangspili. Það var átakaverk fyrir skipshöfnina eina.